Landa milljarða samningi í Kína Kínverski efnaframleiðandinn Henan Shuncheng Group hefur samið við íslenska tækniþróunarfyrirtækið Carbon Recycling International um að hanna verksmiðju byggða á tækni CRI til að framleiða umhverfisvænt eldsneyti og efnavöru í Kína. 23.5.2019 16:39
Aukaframlag annað árið í röð til að opna Hálendisvaktina fyrr Hálendisvaktin fær 900 þúsund krónur í viðbótarframlag frá ferðamálaráðherra til að unnt verði að hefja viðveru á hálendinu hálfum mánuði fyrr en ella. 23.5.2019 14:55
Verðlauna fyrir framúrskarandi plastlausa lausn Umhverfisstofnun óskar eftir tilnefningum til nýrrar viðurkenningar sem hlotið hefur heitið Bláskelin. 23.5.2019 14:30
Reyna að halda stærsta bílastæðahúsinu opnu sem lengst Framkvæmdir eru hafnar við endurgerð á neðri hluta Hverfisgötu. Lokað hefur verið fyrir umferð upp Hverfisgötuna en girðingar afmarka svæðið sem nær frá Ingólfsstræti í áttina að Smiðjustíg. 23.5.2019 13:49
Hér verður malbikað í höfuðborginni í dag Malbikun á höfuðborgarsvæðinu er farin á fullt í góða veðrinu og verður áfram unnið við að fræsa og malbika í dag. Viðbúið er að því fylgi einhver óþægindi fyrir vegfarendur, sem eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitsemi. 23.5.2019 11:10
Hellir sér yfir Miðflokkinn: Földu peninga í Panama, lugu að þjóðinni og opinberuðu mannfyrirlitningu á Klausturbar Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir ofsóknarkennd eiga sér ýmsar birtingarmyndir. 23.5.2019 10:11
Laus af Hólmsheiði og berst fyrir veru sinni á Íslandi Nara Walker, áströlsk kona sem hlaut átján mánaða dóm fyrir að bíta hluta úr tungu þáverandi eiginmanns síns, er laus úr fangelsi. 22.5.2019 23:55
Fjórtán vilja verða héraðsdómari í Reykjanesi Dómsmálaráðuneytið hefur birt lista umsækjenda um stöðu dómara við Héraðsdóm Reykjanes. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 13. nóvember. 22.5.2019 16:18
Landsréttardómarar sækja um stöðu dómara við Landsrétt Umsækjendur um lausa stöðu við Landsrétt eru átta að tölu. 22.5.2019 16:05
Borgarstjóri innblásinn eftir heimsókn til bíllausrar miðborgar Oslóar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, virðist afar ánægður með heimsókn borgarfulltrúa í Reykjavík til Osló, höfuðborgar Noregs. Þar voru þeir viðstaddir ráðstefnu um borgarskipulag. 22.5.2019 15:31