Kirsuberin komu til baka og stálu sigri af Skyttunum Arsenal komst yfir en tapaði 1-2 gegn Bournemouth í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Miðvörðurinn Dean Huijsen jafnaði um miðjan seinni hálfleik og Evanilson skoraði sigurmarkið skömmu síðar. 3.5.2025 18:30
Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Norsku meistararnir í Kolstad komust í úrslitaeinvígið þriðja árið í röð eftir að hafa snúið gengi sínu við í undanúrslitaeinvíginu gegn Nærbø. 3.5.2025 18:16
Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar TTH Holstebro, liðið sem Arnór Atlason þjálfar, vann 35-32 gegn Bjerringbro-Silkeborg í þriðju umferð riðlakeppninnar sem veitir sæti í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta. Sigurinn skaut TTH Holstebro upp í annað sætið, upp fyrir Fredericia, liðið sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar. 3.5.2025 17:58
Benóný kom inn af bekknum og skoraði í lokaumferðinni Benóný Breki Andrésson kom inn af varamannabekknum og skoraði jöfnunarmark Stockport í 1-3 sigri gegn Wycombe í lokaumferð League One deildarinnar á Englandi. Með sigrinum tryggði Stockport sér þriðja sæti deildarinnar, framundan er umspil um sæti í Championship deildinni. 3.5.2025 16:24
Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ „Þetta er það sem maður lifir fyrir“ sagði Viktor Sigurðsson eftir sigur í oddaleik gegn Aftureldingu. Valsmenn komust því í úrslitaeinvígi Olís deildarinnar, þar sem Viktor mun mæta bróður sínum. 2.5.2025 22:32
Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita Valur vann Aftureldingu 33-29 í oddaleik í undanúrslitum Olís deildar karla. Valsmenn voru við völd allan leikinn og fengu mikla hjálp frá markmanninum Björgvini Pál Gústavssyni. Afturelding átti nokkur ágætis áhlaup en tókst aldrei að minnka muninn í minna en tvö mörk. Rautt spjald á lokamínútum gerði svo algjörlega út af við leikinn. 2.5.2025 22:00
Forseti ÍSÍ fær laun og framboðin aldrei verið fleiri Í fyrsta sinn síðan 2006 verður forseti ÍSÍ ekki sjálfkjörinn og aldrei hafa jafn mörg framboð borist til embættisins, sem núverandi stjórn ÍSÍ stefnir á að gera að launuðu starfi. 1.5.2025 07:00
„Fannst við halda góðri stjórn á leiknum“ Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði Þróttar, er ánægð með byrjun liðsins á tímabilinu. Þróttur sótti eins marks sigur gegn Víkingi í jöfnum baráttuleik í kvöld og hefur ekki tapað enn í deildinni. 29.4.2025 20:34
Uppgjörið: Víkingur R. - Þróttur R. 0-1 | Óheppilegt sjálfsmark skilaði gestunum sigri Þróttur sótti 0-1 sigur gegn Víkingi í þriðju umferð Bestu deildar kvenna. Markmaðurinn Sigurborg Sveinbjörnsdóttir skoraði afar óheppilegt sjálfsmark sem reyndist eina markið í mjög færafáum leik. 29.4.2025 20:00
„Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ „Miðað við hvernig síðustu leikir hafa verið milli okkar þá bjóst ég við að við myndum stela þessu í lokin. Við vorum ansi nálægt því og það hefði verið mjög sætt að taka þrjú stig. En ég held að ef við lítum á allan leikinn hafi jafntefli verið sanngjörn niðurstaða“ sagði þjálfarinn Sölvi Geir Ottesen eftir 1-1 jafntefli Víkings við Val á Hlíðarenda. Bæði mörkin voru skoruð úr vítaspyrnum en Víkingur átti skalla í slánna í uppbótartíma. 28.4.2025 21:36