Gæsluvarðhald fjögurra framlengt og einum sleppt Gæsluvarðhald yfir fjórum, sem taldir eru tengjast árásinni á Bankastræti club fyrir tíu dögum, var framlengt í dag. Einum var sleppt úr haldi og nú sitja alls fimm í gæsluvarðhaldi í tengslum við árásina. 28.11.2022 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Borgarstjóri segist sleginn óhug eftir hnífstunguárás á Bankastræti Club fyrir viku. Mögulega þurfi borgin að grípa til aðgerða gegn nýjum veruleika. Við fjöllum nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 28.11.2022 18:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 og Bylgjunnar klukkan hálf sjö segjum við meðal annars frá því að verð á bensínlítranum er nú fimmtíu krónum dýrara en það var í byrjun árs, þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð á olíu sé svipað og þá. Félag íslenskra bifreiðaeigenda segir græðgi stjórna ferðinni hjá íslenskum bensínfyrirtækjum. 27.11.2022 18:00
Landhelgisgæslan dró skip til Reykjavíkur og myndaði aðgerðir Áhöfn varðskipsins Þórs kom íslensku togskipi til bjargar í gær þegar upp kom vélarbilun og leki inn í skipið. Áhöfnin tók aðgerðir sínar upp. 27.11.2022 15:28
Leggur til að arðgreiðslur banka greiði skuldir ÍL-sjóðs Doktor í fjármálum segir Íslandsbankaskýrsluna vera svarta og að mikilvægt sé umræðan endi ekki í pólitískum skotgröfum. Þá leggur hann til að hagnaður banka í ríkiseigu verði nýttur til að greiða niður skuldir ÍL-sjóðs. 27.11.2022 14:39
Þrír skjálftar yfir þremur að stærð í dag Í dag hafa þrír skjálftar mælst yfir þremur að stærð í Mýrdalsjökli. Sá stærsti mældist í hádeginu og var 3,4 að stærð. 27.11.2022 13:08
Kokkalandsliðið hlaut gullverðlaun Íslenska kokkalandsliði hlaut gullverðlaun fyrir frammistöðu sína í keppni í þriggja rétta matseðli sem eldaður er fyrir 110 manns, sem fór fram í gær. 27.11.2022 12:45
Ljós Oslóartrésins tendruð Ljós Oslóartrésins verða tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli klukkan 16 í dag, fyrsta sunnudag í aðventu. 27.11.2022 12:06
Karlmaður skotinn til bana í Osló Karlmaður á þrítugsaldri var skotinn til bana nálægt miðbæ Oslóar á fimmta tímanum í nótt. Einn hefur verið handtekinn grunaður um morðið. 27.11.2022 10:17
Sigur Rós fyllti Laugardalshöll út úr dyrum Húsfyllir og vel það var í Laugardalshöll í gær þegar stórsveitin Sigur Rós steig á svið í fyrsta skipti í fimm ár hér á landi. 26.11.2022 16:17