„Það var búið að ákveða að ég yrði hérna einn“ Nokkra athygli vakti í Kastljósi kvöldsins þegar þáttastjórnandinn sagði Bjarna Benediktsson hafa gert það að forsendu fyrir viðtalinu að hann yrði einn. Það þvertók Bjarni fyrir og sagði stjórnandann hafa ætlað að breyta fyrirkomulagi viðtalsins á síðustu stundu. 14.11.2022 22:04
Þingmenn ósammála um nauðsyn rannsóknarskýrslu Ríkisendurskoðun segir margt hafa farið úrskeiðis við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og bendir á að Bankasýslan hafi ekki fylgt meginreglu laga um að fá hæsta verð fyrir hlutinn. Fjármálaráðherra hafnar því að farið hafi verið á svig við lög við söluna. 14.11.2022 20:09
Samkeppniseftirlitið gefur grænt ljós á samruna Síldarvinnslunnar og Vísis Niðurstaða rannsóknar Samkeppniseftirlitsins á kaupum Síldarvinnslunnar á öllu hlutafé í útgerðinni Vísi í Grindavík er að ekki séu forsendur fyrir íhlutun í samruna félaganna tveggja. Meðal þess sem rannsakað var voru möguleg sameiginleg yfirráð Samherja og tengdra félaga yfir Síldarvinnslunni. 14.11.2022 19:45
Segir Bjarna ekki þora að mæta sér í Kastljósi Formaður Samfylkingarinnar segir Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra ekki þora að mæta sér í Kastljósi í kvöld til þess að ræða Íslandsbankaskýrsluna. Hún segir málinu engan veginn vera lokið. 14.11.2022 18:08
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Ríkisendurskoðun segir margt hafa farið úrskeiðis við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka og bendir á að Bankasýslan hafi ekki fylgt meginreglu laga um að fá hæsta verð fyrir hlutinn. Fjármálaráðherra hafnar því að farið hafi verið á svig við lög við söluna. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 14.11.2022 18:01
Snarræði áhafnar þyrlunnar bjargaði mannslífi Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar komst í hann krappan á föstudag þegar sækja þurfti alvarlega veikan sjúkling á Ísafjörð í aftakaveðri. Áhöfnin ákvað að fljúga þyrlunni aftur á bak inn Skutulsfjörð og komst þannig á leiðarenda. Læknar sem meðhöndluðu manninn á Landspítalanum segja snarræði áhafnarinnar hafa bjargað lífi hans. 14.11.2022 07:00
Bankasýslan bregst við Íslandsbankaskýrslunni: Framkvæmd sölunnar hafi verið í fullu samræmi við lög Bankasýsla ríkisins gerir viðamiklar athugasemdir við skýrslu Ríkisendurskoðunar um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka, sem birt verður á morgun. Bankasýslan segir meðal annars að fyrirkomulag sölunnar hafi verið í fullu samræmi við lög og reglur og að starfsfólk stofnunarinnar búi yfir haldgóðri menntun og mikilli reynslu af umsýslu og sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum. 13.11.2022 20:53
Eldur kom upp í strætisvagni Eldur kom upp í strætisvagni á Grensásvegi um klukkan 17:30 í dag. 13.11.2022 18:17
Fjöldi umsókna vegna lýtaaðgerða hefur tæplega þrefaldast Umsvif Sjúkratrygginga Íslands hafa aukist mikið frá árinu 2018. Til að mynda gerðu þær í fyrra tæplega þrefalt fleiri nýja samninga en árið 2018. Þá hefur umsóknum vegna lýtaaðgerða fjölgað um 184 prósent og umsóknum vegna aðgerða erlendis fjölgað um 269 prósent. 13.11.2022 17:59
Sýningarflugvélar skullu saman í lofti Talið er að sex manns hafi verið um borð í tveimur gömlum herflugvélum sem skullu saman í lofti á hersýningu í Dallas í Bandaríkjunum í dag. 12.11.2022 23:06