Fréttamaður

Áróra L Davíðsdóttir

Áróra er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Allt að á­tján stigum og létt­skýjað vestan­lands

Í dag má búast við norðlægri eða breytilegri átt á bilinu þrír til tíu metrar á sekúndu. Víða verður léttskýjað um landið vestanvert en súld og dálítil rigning norðaustan- og austanlands en styttir upp um og eftir hádegi. Hiti verður á bilinu sjö til átján stig, hlýjast á Suður- og Vesturlandi.

Madison Beer trú­lofast NFL-kappa

Bandaríska söngkonan Madison Beer og NFL-fótboltakappinn Justin Herbert eru trúlofuð. Fyrst sást til parsins saman fyrir tæpu ári síðan. 

„Það er bara ekkert sniðugt við þetta“

Íbúi í Mosfellsdal og nágranni Dalsbús, varð var við nokkra minka á kreiki í garðinum heima hjá sér fyrr í dag. Ástandið í dalnum sé nokkuð súrrealískt enda ómi byssuskot um dalinn og lögreglan fljúgi drónum til aðstoðar við leit að minkunum. 

Nýr for­seti hét því að beita hernum gegn glæpum

Keiko Fujimori tók við í gær sem níundi forseti Perú á einum áratug. Mikil ólga hefur einkennt stjórnmál landsins síðasta áratuginn en enginn forseti hefur lokið heilu fimm ára kjörtímabili síðan Ollana Humala gegndi embættinu á árunum 2011- 2016. 

Carly Simons lærir að lifa með Parkinson

Söngkonan og söngvaskáldið Carly Simon hefur verið greind með Parkinson-sjúkdóminn. Hún segist vera að reyna að læra að lifa með sjúkdómnum en að hann sé afar óútreiknanlegur. 

„Fólk er ekki heimskt“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir nú góðan tíma fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en það njóti góðs af stöðu heimsmála. Hún segist hafa áhyggjur af gangi mála í Evrópu og að ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland sé mikið áhyggjuefni. Markmiðið sé að fá já þann 29. ágúst en sjálf sé hún gagnrýnin á Evrópusambandið.

Hlýjast sunnan heiða og hiti allt að á­tján stigum

Í dag má búast við norðlægri eða breytilegri átt, fimm til þrettán metrum á sekúndu. Bjart verður með köflum og yfirleitt þurrt en lítilsháttar væta norðaustan- og austantil fram eftir morgni og aftur í kvöld. Hiti verður á bilinu níu til átján stig, hlýjast sunnan heiða. 

Sjá meira