„Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Charlotta Ýr Davíðsdóttir segir reynslu sína af íslenska heilbrigðiskerfinu hafa einkennst af skorti á heildarsýn, hlustun og eftirfylgni. Hún gekk í gegnum sáran fósturmissi á sama tíma og hún glímdi við langvinna sjúkdóma og segir að sérstaklega hafi verið erfitt að upplifa að POTS-greining hennar væri ekki tekin jafn alvarlega og aðrir sjúkdómar. 9.3.2026 08:02
„Þegar konur ákveða að eignast börn þá eru þær strax búnar að fórna líkamanum sínum“ „Af því maður sjálfur er ekki foreldri, þá er maður minna virði í samfélaginu. Ef einhver þarf einhvern tímann að fórna, þá er það alltaf barnlausa fólkið,“ segir ung íslensk kona sem tekið hefur meðvitaða ákvörðun um barnleysi. 8.3.2026 10:00
Þriggja daga leikhús fáránleikans Stemningin á Austurvelli dagana 4.–6. apríl 2016, í kjölfar uppljóstrana úr Panama-skjölunum um tengsl forsætisráðherra við aflandsfélag einkenndist af mikilli reiði, samstöðu og pólitískri spennu. Slagorð á borð við „Sigmundur, segðu af þér“ og „Burt með ríkisstjórnina“ heyrðust úr mannfjöldanum. Á örfáum dögum breyttist miðborg Reykjavíkur í vettvang einna stærstu mótmæla í íslenskri stjórnmálasögu. 8.3.2026 08:01
„Eru þær í alvöru tvíburar?“ Athena Mist og Anita Rós eru þriggja ára tvíburasystur úr Njarðvík sem vekja athygli hvar sem þær koma, og það er af góðri ástæðu. Þær eru nefnilega með sitthvorn húðlitinn. Anita erfði ljósa húðlitinn frá pabba sínum, Jóel Smára Halldórssyni og Athena erfði dökka húðlitinn frá mömmu sinni, Maríu Ashley Marteinsdóttur. 7.3.2026 08:30
Fór alla leið inn í hausinn á konu sem treystir ekki eigin skynjun „Þegar maður er að leika manneskju sem er að díla við andleg veikindi, þá vill maður auðvitað gera því góð skil. Ég vildi nálgast hlutverkið af virðingu og skilningi,“ segir Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikkona sem tekst á við stærsta kvikmyndahlutverk sitt til þessa, í Röskun og segir það hafa verið sannkallað draumaverkefni. 2.3.2026 08:02
„Ég hef kostað ríkið rúmar sex hundruð milljónir“ Átján ára gamall hefur hann farið fimmtán sinnum í innlögn á BUGL, legið yfir hundrað nætur á barna- og unglingageðdeild, verið í neyðarvistun á Stuðlum, búið í sérhæfðu úrræði, fallið sjálfkrafa út úr barnaverndarkerfinu og tvisvar sinnum legið milli lífs og dauða á gjörgæslu. Hann segir íslenska kerfið hafa brugðist ungmennum með fjölþættan vanda, og vill róttækar breytingar. 1.3.2026 20:02
„Hvernig er hægt að deyja áður en maður fæðist?“ Hvernig útskýrir maður fyrir barni að systkini sem það beið eftir komi aldrei heim? Það var spurning sem Kolbrún Tómasdóttir og Sigrún K. Valsdóttir stóðu frammi fyrir eftir að þær misstu báðar börn árið 2021. Út frá sameiginlegri reynslu hafa þær nú skrifað bókina Systir mín sem enginn sér; barnabók sem byggir á reynslu þeirra eigin fjölskyldna og er ætlað að styðja við foreldra sem standa frammi fyrir því að ræða dauða við ung börn. 1.3.2026 09:00
Var rænd af barnahópi á Filippseyjum Sambandsslit í byrjun árs 2023 urðu vendipunktur í lífi Láru Borgar Lárusdóttur. Hún ákvað að hætta að bíða eftir „réttum“ tíma og hélt ein af stað út í heim. Á meðan á ferðinni stóð sagði hún upp starfi sínu og ákvað að líta á óvissuna sem tækifæri. Balí varð fyrsta af þremur stórum „sóló“ ferðalögum sem síðar leiddu hana um Suður-Ameríku og Asíu. Í dag deilir hún reynslu sinni reglulega á samfélagsmiðlum þar sem hún veitir innsýn í bæði frelsið og áskoranirnar sem fylgja því að ferðast ein. 1.3.2026 08:02
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla „Það er náttúrulega út í hött að foreldrar geti ekki hlúð að börnum sínum þegar þau eru veik vegna þess að kerfið býður ekki upp á það. Það að þetta virki svona bitnar á öllum, og ekki bara á langveikum börnum,“ segir María Mist Þórs Sigursteinsdóttir. 22.2.2026 14:32
Við erum tengdari en nokkru sinni en höfum aldrei verið jafn einmana Nína Björg Arnarsdóttir, sálfræðingur hefur vakið athygli á samfélagsmiðlum fyrir fræðsluefni um kvíða, einmanaleika og samskiptavanda. Í myndböndum sínum á TikTok fjallar hún um allt frá ágengum hugsunum í fæðingarorlofi til samskiptavillna sem flestir kannast við. Hún segir mikilvægt að normalisera umræðuna um geðheilbrigði – en varar jafnframt við einföldunum og sjálfsgreiningum á netinu. 22.2.2026 09:03