Einstakar ljósmyndir úr Sundhöll Reykjavíkur í gegnum tíðina Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg á sér langa sögu sem nær aftur til fjórða áratugs seinustu aldar. Um áratugaskeið var Sundhöllin helsta kennslu- og æfingalaug Reykjavíkur og í gegnum tíðina hefur laugin eignast óteljandi fastakúnna sem þangað koma til að fá sér sundsprett, rækta líkama og sál og ræða þjóðmálin til mergjar í heita pottinum. 24.3.2024 12:10
Ástríðufullur safnari í Reykjanesbæ Á heimili Ólafs Ólafssonar í Reykjanesbæ er líklega að finna eitt stærsta einkasafn landsins af merkjum og fatnaði sem tengjast starfsemi lögreglu, flugi, hersins og ýmissa annarra embættisaðila, bæði íslenskum og erlendum. Þar má meðal annars finna lögregluhúfu frá 1930, smellubindi frá Varnarmálastofnun Íslands, húfumerki yfirmanna Landhelgisgæslunnar frá tímum Þorskastríðsins því og svo mætti lengi telja. 24.3.2024 09:35
„Hæ, ég held að þú sért blóðfaðir minn“ Stærsti draumur Tori Lynn Gísladóttur rættist um síðustu jól. Þá voru hún og bandarískur blóðfaðir hennar sameinuð á ný, eftir fimmtán ára aðskilnað. Sagan þar á bak við er flókin og óvenjuleg – og á sama tíma hjartnæm og falleg. 23.3.2024 08:02
Nadine og Þórhildur snúa aftur í sjónvarpið Hlaðvarpsþættirnir Eftirmál, í umsjón Þórhildar Þorkelsdóttur og Nadine Guðrúnar Yaghi hófu göngu sína fyrir tveimur árum og síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Í þáttunum taka fyrrum fréttakonurnar fyrir eftirminnileg íslensk fréttamál og kryfja þau til mergjar og hafa þættirnir notið fádæma vinsælda hjá breiðum hópi fólks. 22.3.2024 08:01
Kúvending eftir grjótkastið við Stjórnarráðshúsið „Það er auðvitað ekkert sérstaklega góð tilfinning að hafa ekki fullkomna stjórn á aðstæðum. En það er hlutverk lögreglu að koma inn í aðstæður þar sem ekki er stjórn á hlutunum, og reyna með einhverjum tiltækum ráðum að ná þeirri stjórn. Og við litum á það sem verkefnið, í öllum þessum tilvikum, að ná þessari stjórn.“ 21.3.2024 06:25
Kann ekki að gefast upp Mollý Jökulsdóttir var tvítug þegar hún flutti ein út til Danmerkur, með tvær ferðatöskur og óljóst framtíðarplan. Í dag er hún í stjórnunarstöðu hjá einni stærstu verslunarkeðju í Evrópu og er á sama tíma á uppleið innan tónlistargeirans, en á dögunum undirritaði hún samning við Quattro Music sem er undirfyrirtæki Warner Brothers í Kaupmannahöfn. 18.3.2024 09:03
Óvenjulegur lífsstíll íslenskrar fjölskyldu vekur athygli Hjónin Guðný Matthíasdóttir og Róbert Halbergsson hafa undanfarið eitt og hálft ár búið í húsbíl ásamt börnunum sínum tveimur og heimsótt alls 26 lönd í Evrópu. Fjölskyldan deilir reglulega myndum og myndskeiðum á Instagram þar sem þau sýna frá daglegu lífi sínu á flakki á „Eurovagninum“ svokallaða, en lífstíll þeirra er mörgum framandi. 17.3.2024 08:03
Ætlar aldrei að gefast upp Líf Bjarnheiðar Hannesdóttur tók kollsteypu í desember árið 2012 þegar hún fékk skyndilegt hjartastopp sem varði í tuttugu mínútur. Henni var vart hugað líf en barðist ötullega og hafði loks betur. Hjartastoppið olli hins vegar gífurlegum heilaskaða og Bjarnheiður, eða Heiða eins og hún er alltaf kölluð, fór frá því að vera aktíf og fullfrísk þriggja barna móðir og fasteignasali yfir í að vera algjörlega ósjálfsbjarga. 16.3.2024 08:00
Einstakar ljósmyndir frá tíunda áratugnum Snemma á tíunda áratugnum bjó Bragi Þór Jósefsson ljósmyndari í Súðavogi og var þar einnig með ljósmyndastúdíó. Í næsta húsi var hljóðverið Grjótnáman þar sem margar af þekktustu plötum íslenskrar tónlistarsögu voru teknar upp. Þar tók Bragi meðfylgjandi ljósmyndir þar sem sjá marga af ástsælustu tónlistarmönnum þjóðarinnar. 10.3.2024 10:49
Heilaþveginn af því að peningar byggju til hamingjuna Eyvindur Ágúst Runólfsson hafði lokið námi í lögfræði við Háskóla Íslands en fann á sér að hann var ekki á réttri hillu í lífinu. Röð atvika leiddi til þess að hann hóf störf sem aðstoðarmaður á bráðamóttöku Landspítalans og þar með var ekki aftur snúið. Í kjölfarið breytti Eyvindur algjörlega um kúrs, sagði skilið við lögfræðina og stefnir á að hefja nám í hjúkrunarfræði næsta haust. 9.3.2024 08:00
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent