Þúsundir nýrra íbúða og óvissu eytt: „Verið að einfalda og hagræða“ Ríkisstjórnin ætlar að fjölga íbúðum í Úlfarsárdal um fjögur þúsund, hlutdeildarlán verða aukin, regluverk einfaldað og fólki gert kleift að ráðstafa séreignarsparnaði inn á húsnæðislán í tíu ár. Forsætisráðherra segir aðgerðirnar stuðla að lækkun húsnæðisverðs og byggingakostnaðar. 29.10.2025 19:45
Hlýni á föstudag og snjórinn geti horfið í næstu viku Versta mögulega veðurspá fyrir suðvesturhornið rættist í dag. Viðbragðsaðilar sinntu metfjölda útkalla og um hádegisbil var óskað eftir því að fólk færi heim sem fyrst þar sem appelsínugul viðvörun var í kortunum. Sú viðvörun gilti þó stutt og stytti upp síðdegis. 28.10.2025 23:34
Eldur í blokk við Ljósheima Eldur var laus í íbúð við Ljósheima í Reykjavík. Slökkvilið var kallað út 19 mínútur yfir 12 í dag og er enn vinna á vettvangi. Samkvæmt uplýsingum frá vakthafandi varðstjóra, Steinþóri Darra Þorsteinssyni, er ekki vitað til þess að neinn hafi slasast. 28.10.2025 12:39
Hætt við að vextir hækki Framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríksins telur hættu á að vextir fasteignalána muni hækka eftir niðurstöðu í vaxtamálinu svokallaða. Mikil óvissa ríki nú sem sé slæm fyrir neytendur og fjármálafyrirtæki. Hæstiréttur þurfi að setja næstu vaxtamálin í flýtimeðferð. 27.10.2025 19:13
„Ég tel ekki tilefni til að íhuga stöðu mína“ Ríkisendurskoðandi segir að engin formleg tilkynning hafi borist til embættisins frá starfsfólki um einelti, kynbundið eða kynferðislegt áreiti eða ofbeldi. Hann myndi taka á slíkum málum. Hann harmar að innri mál embættisins séu til umfjöllunar í fjölmiðlum og hefur ekki íhugað stöðu sína. 27.10.2025 19:00
Ljóst að kaupverð á íbúðum í Vesturbugt verði í hærri kantinum Gert er ráð fyrir að fyrstu fjölbýlishúsin rísi við gömlu höfnina í Reykjavík árið 2028 eða ellefu árum eftir að borgin tilkynnti um uppbygginaráform á reitnum. Framkvæmdastjóri segir að ríflega þriðjungur íbúðav verði leigu-, stúdenta eða félagsíbúðir. Ljóst sé að kaupverð á almennum markaði verði í hærri kantinum. 23.10.2025 22:01
Verktakar hafi greinilega nóg því þeir kjósi frekar að bíða en lækka Það hefur sjaldan verið eins erfitt að komast inn á fasteignamarkaðinn að mati HMS. Á sama tíma er ekki búið varanlega í allt að sextán þúsund íbúðum. Hagfræðingur telur að verktakar kjósi frekar að bíða með sölu en lækka verð. Það bendi til þess að byggingageirinn hafi nóg milli handanna. 23.10.2025 12:44
Næstum öllum sagt upp hjá dótturfélagi Play Öllu starfsfólki Play Europe hefur verið sagt upp nema nokkrum á Möltu sem þurfa að vera á staðnum vegna flugrekstrarleyfis í landinu. Enn er vonast til þess að leiguflug geti hafist þar á ný. Skiptastjóri þrotabús Play segir í skoðun hvort búið muni gera kröfu í dótturfélagið. 22.10.2025 20:00
Fleiri hundruð kröfur og líklegt að óeðlilegum greiðslum verði rift Hundruðum krafna hefur verið lýst í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í lok september. Launakröfur starfsfólks liggja enn ekki fyrir. Skiptastjóri telur líklegt að þrotabúið sæki með riftun óeðlilegar greiðslur félagsins skömmu fyrir gjaldþrot. 22.10.2025 11:22
Rödd Íslendinga í hinsegin baráttu hafi aldrei verið mikilvægari Fyrrverandi sendifulltrúi Bandaríkjanna í málefnum hinsegin fólks segir að mikið bakslag hafi orðið í málaflokknum um allan heim eftir að Bandaríkjaforseti dró úr stuðningi. Hætta sé á að fleiri hinsegin einstaklingar muni láta lífið en áður vegna vaxandi ofsókna. Mikilvægt sé að rödd Íslands heyrist í baráttunni. 19.10.2025 20:30