Segir verkbann til marks um sturlun Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að ef Samtök atvinnulífsins komist að þeirri niðurstöðu að þau muni setja ótímabundið verkbann á tuttugu þúsund meðlimi Eflingar, vinnuafl höfuðborgarsvæðisins, sé það til marks um sturlun. Hún segir jafnframt að það ætti nú að vera öllum ljóst að Samtök atvinnulífsins vilji ekki og ætli ekki að gera kjarasamning við Eflingu. 22.2.2023 16:17
Efling ákvað að bíða með næstu verkfallsboðun Formaður Eflingar segir að ákveðið hafi verið að bíða með að tilkynna um næstu verkfallsaðgerðir þar til niðurstöður liggi fyrir hjá Samtökum atvinnulífsins um verkbann gagnvart félagsmönnum Eflingar. 22.2.2023 13:31
Telur tjónið nú þegar nema hundruð milljónum króna Ferðamálastjóri telur að útvega þurfi nokkur hundruð ferðamönnum nýja gistingu því hótel hafi eða séu að loka vegna verkfalla Eflingarfélaga. Ferðaþjónustan hafi þegar orðið af hundruðum milljóna króna. Neyðarnúmer hefur verið virkjað. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins væntir þess að félagsmenn SA munu samþykkja boðað verkbann en atkvæðagreiðslu um það lýkur í dag. 22.2.2023 11:51
Skýrt að taka þurfi vinnulöggjöfina til skoðunar Ríkisstjórnin ætlar ekki að beita sér með beinum hætti í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins eins og staðan er nú en ætlar að fylgjast vel með framvindunni. Ráðherrar telja vinnumarkaðslöggjöf í óvissu eftir feril miðlunartillögu ríkissáttasemjara. 21.2.2023 23:01
Telur að tillaga um verkbann sé þvingunaraðgerð Verkfallsboðanir Eflingarfélaga í öryggisgæslu, þrifum og á hótelum voru samþykktar í gær með nokkuð afgerandi meirihluta þeirra sem tóku þátt. Vinnumarkaðssérfræðingur hjá ASÍ segir afar sjaldgæft að atvinnurekendur nýti sér verkbannsvopnið í kjaradeilum til þvingunaraðgerða eins og nú sér gert 21.2.2023 14:30
Telur að félagsmenn samþykki verkbann Verði verkbann Samtaka atvinnulífsins að veruleika verður það umfangsmesta verkbann sögunnar hér á landi og mun taka til ríflega tuttugu þúsund manna. Framkvæmdastjóri samtakanna segir um varnaðaraðgerð að ræða og telur að það verði samþykkt. 20.2.2023 19:12
Inngrip stjórnvalda hljóti að koma til álita Framkvæmdastjóri SA segir að á einhverjum tímapunkti hljóti inngrip stjórnvalda í kjaradeilu samtakanna við Eflingu að koma til álita. Félagsmenn þar greiða nú atkvæði um verkbann á meðlimi Eflingar . Bílstjórar og hótelstarfsmenn í Eflingu hófu verkfallsaðgerðir að nýju á miðnætti. 20.2.2023 13:01
Verði áhugavert að sjá yfirmenn útskýra „þetta viðbjóðslega framferði“ fyrir starfsfólki Formaður Eflingar segir það vera hörmulegt að horfa upp á verkbannsboðun Samtaka atvinnulífsins (SA). Hún segir engan samningsvilja vera til staðar hjá samtökunum. Henni þykir það líklegt að verkfallsboðanir sem 1.650 starfsmenn Eflingar hafa verið að greiða atkvæði um verði samþykktar. 20.2.2023 12:09
Allar líkur á að MDMA verði gert löglegt í Bandaríkjunum Rick Doblin, stofnandi rannsóknar-og menntaseturs um hugvíkkandi efni í Bandaríkjunum, MAPS, telur lögleiðingu MDMA efnisins á næsta leyti þar í landi. Hann segir að önnur lönd muni fylgja eftir. 31.1.2023 13:50
Telur brottkastið enn umfangsmeira og fagnar auknu eftirliti Sviðsstjóri hjá Fiskistofu fagnar ákvörðun matvælaráðherra um að styrkja stofnunina til aukins eftirlits með brottkasti. Hún telur brottkast meira en fram hefur komið. Nánast annað hvert skip sem drónar Fskistofu hafi flogið yfir hafi verið staðið að brottkasti. 28.1.2023 14:02