Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Vikan lengdist og aug­lýsinga­hlé urðu tíðari

RÚV ákvað að hafa auglýsingahlé reglulega í Vikunni með Gísla Marteini þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera. Útvarpsstjóri segir fleiri tónlistaratriði og áhorfendur í sal meðal ástæðna lengingarinnar. Heimilt er að rjúfa eigin framleiðslu RÚV með auglýsingum þegar þátturinn sjálfur nær klukkutíma.

Vilja borga fyrir eftir­lit með au pair

Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023.

Sýn sakar Rúv um að mata ráðu­neytið á röngum tölum

Sýn telur að starfsmenn RÚV hafi matað menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið á sérvöldum og röngum tölfræðigögnum við undirbúning frumvarps um tekjuöflun Ríkisútvarpsins. Félagið segir ráðuneytið ekki hafa haft undir höndum skýrsluna sem það telur samanburð í frumvarpsdrögunum byggja á. RÚV hafi neitað að afhenda hana.

Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum

Peningar sem fólk fær við sölu á eigin íbúð gætu notið mun meiri tryggingarverndar ef bankinn sem geymir þá verður ófær um að endurgreiða þá. Lagt er til að allt að ein milljón evra, eða um 137 milljónir króna, verði varin með þessum hætti í sex mánuði frá innborgun.

Synjað um heimilis­upp­bót vegna sam­eigin­legrar þvotta­vélar og snyrtingar

Konu sem bjó ein í hjólhýsi á Sævarhöfða var synjað um heimilisuppbót vegna ókeypis aðgangs að sameiginlegri þvottavél og snyrtingu. Eigið salerni og eldunaraðstaða í hjólhýsinu breyttu ekki niðurstöðunni. Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun á kvörtun hennar án athugasemda við synjunina.

Engin ó­birt lof­orð eða leyni­legt sam­komu­lag

Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag fylgdu niðurstöðunni við VR og fagfélögin, að sögn Bjarna Benediktssonar, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir enga innistæðu fyrir tortryggni Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, og segist treysta sér til áframhaldandi samstarfs við verkalýðshreyfinguna þótt hún telji traustið til hans horfið.

Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing

Rætt hefur verið við Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, um að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambands Íslands. Hún staðfestir að hún ætli ekki fram. Nýr forseti verður kjörinn á þingi sambandsins í næstu viku.

Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína er­lendis

Maður sem missti dóttur sína á sjúkrahúsi erlendis vildi að Sjúkratryggingar Íslands tækju að sér samskipti við erlend stjórnvöld vegna andlátsins. Hann taldi aðstoðina ófullnægjandi og kvartaði til umboðsmanns Alþingis eftir að heilbrigðisráðuneytið hafnaði athugasemdum hans.

Segir sáttina kosta ríkis­sjóð 1,6 milljarða til við­bótar

Viðbótarkostnaður ríkissjóðs vegna aðgerðanna sem kynntar voru í gær til að tryggja sátt á vinnumarkaði nemur 1,6 milljörðum króna, að sögn Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hún segir fyrri aðgerðapakka hafa numið tugum milljarða en áherslan nú hafi verið á breytingar á úrræðum og nýtingu fjár sem þegar hafði verið tekið frá.

Sjá meira