Fréttamaður

Birgir Olgeirsson

Birgir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Snið­ganga geti verið túlkuð sem yfir­lýsing ríkis­stjórnarinnar

Ríkisfyrirtæki geta ekki rekið eigin utanríkisstefnu, segir Ingvar Smári Birgisson, einn þriggja stjórnarmanna RÚV sem leggjast gegn áframhaldandi sniðgöngu Eurovision. Hann telur varhugavert að stjórn félagsins taki ákvörðun sem geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar og Alþingis.

Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020

Hlutabréfavelta í Kauphöllinni var sú minnsta í sex ár í ágúst og nam 29 milljörðum króna. Í ágúst 2020, á fyrsta ári faraldursins, var hún 28,8 milljarðar. Magnús Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir háa vexti helstu skýringuna á lítilli veltu nú.

Verð­bólga í tveggja ára há­marki eftir að skatta­lækkun rann út

Verðbólga mældist 5,9 prósent í september og hefur ekki verið meiri í rúm tvö ár. Una Jónsdóttir, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir hækkað eldsneytisverð skýra nær alla aukninguna frá ágúst. Hún býst við að verðbólgan haldist yfir fimm prósentum næstu mánuði.

Ekki á­kveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endur­flutt

Engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort lagareldisfrumvarpið verði lagt fram að nýju. Frumvarpið er ekki á dagskrá yfirstandandi löggjafarþings, þótt í atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar hafi verið stefnt að lagasetningu um bæði sjókvíaeldi og landeldi vorið 2026.

Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri náms­árangur

OECD fann engin tengsl milli þess að símabann varð algengara frá 2022 til 2025 og breytinga á árangri nemenda í lestri eða náttúrufræði. Íslenskir nemendur nota jafnframt stafræn tæki minna til afþreyingar í skólanum en nemendur OECD að meðaltali og segja síður að tækin trufli kennslu.

Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir

Það væri undarleg taktík að boða 5,2 prósenta gjaldahækkanir til að fá sveitarfélög, atvinnurekendur og verkalýðsfélög að samningaborðinu um minni hækkanir, að mati Almars Guðmundssonar, formanns Sambands íslenskra sveitarfélaga. Hann vill að ríkið fylgi fordæmi sveitarfélaganna og takmarki hækkanirnar við 2,5 prósent.

Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta?

Í skilaboðum sem Guðmundur Ingi Kristinsson fékk fyrir afsögn sína var honum sagt að leiðtogar ríkisstjórnarinnar hefðu tekið ákvörðunina um brotthvarf hans. Sömu skilaboðum fylgdi tillaga að yfirlýsingu um að hann hefði sjálfur ákveðið að hætta.

Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur

Þrír af þeim sex sem voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald eftir aðgerðir lögreglu á þriðjudag verða áfram í haldi. Tveir verða þar til 2. október og sá þriðji til 28. september.

Sjá meira