Klíník og klíník í eina sæng Klíníkin Ármúla hefur gengið frá kaupum á Meltingarklíníkinni sem rekur sérhæfða heilbrigðisstarfsemi á sviði meltingarlækninga. Klíníkin Ármúla hyggst í kjölfarið bjóða upp á meltingarþjónustu. 25.5.2026 20:08
Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn eftir að sneiðmyndataka leiddi í ljós mikla blóðsöfnun á mjaðmasvæði hennar. Um er að ræða afleiðingu falls, að því er fram kemur í tilkynningu frá konungshirðinni. Þetta er í annað sinn í mánuðinum sem Margrét er lögð inn á sjúkrahús. 25.5.2026 19:36
Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Samfylking mynda meirihluta í Hafnarfirði Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Samfylkingin hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í Hafnarfirði. Til stendur að kynna meirihlutasáttmála flokkanna á félagsfundum þeirra á morgun. Í kjölfarið hyggjast oddvitar undirrita sáttmálann og kynna efni hans á blaðamannafundi í Hamranesi. 25.5.2026 18:17
Trump vill ekki flýta sér Bandarísk stjórnvöld eru nálægt því að ná samkomulagi við Íran sem myndi binda enda á stríðið, opna Hormússund á ný og fela í sér að Íranir losi sig við birgðir af auðguðu úrani. Þetta hefur AP-fréttaveitan eftir embættismönnum í Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa beint þeim tilmælum til erindreka sinna að flýta sér ekki að gera samning. 24.5.2026 23:57
„Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Gróðureldur logaði í klettunum milli Menntaskóla Borgarfjarðar og Bónuss í Borgarnesi á sjötta tímanum í dag. Grunað er að hann hafi kviknað af mannavöldum. Eldur logaði á um 400 fermetra svæði og tók innan við hálftíma að slökkva glæðurnar. 24.5.2026 22:25
Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Stjórnarmaður í Strandveiðifélagi Íslands hefur kvartað til Umboðsmanns Alþingis og Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna milliverðlagningar í fyrirtækjasamstæðum íslenskra útgerðarfélaga. Sakar félagið þau um kerfisbundna misnotkun. 24.5.2026 21:20
Fjörður og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður í leikstjórn Cristian Mungiu hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gær. Þá fékk Minotaur eftir Andreï Zviaguintsev Grand Prix-verðlaunin. Þetta er í 79. skipti sem hátíðin fer fram. 24.5.2026 18:25
Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Hversu vel fylgist þú með? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 24.5.2026 06:00
Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem leið? Spreyttu þig á Fréttatíunni til þess að komast að því. Í Fréttatíu vikunnar beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist hér heima og erlendis. 23.5.2026 06:01
Krakkatía vikunnar: Bragðlaukar, kosningar og gulrófur Hversu vel fylgist þú með? Spreyttu þig á Krakkatíunni! Í henni beinum við kastljósinu bæði að því sem gerðist síðustu daga og öðrum spurningum úr ýmsum áttum. 17.5.2026 06:01