„Ég held að fólk sé greinilega ekki að hlusta á mig“ Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það sé greinilegt að fólk sé ekki að taka mark á varnaðarorðum hans þegar litið er til þeirrar mannmergðar sem blasir við víða nú í aðdraganda jólahátíðarinnar. Mikil bílaumferð sýni glögglega að fólk sé á ferð og flugi á Þorláksmessu. Þórólfur hefur biðlað til fólks að takmarka mjög hittinga, sinna persónulegum smitvörnum og almennt að draga úr hraðanum í lífinu. 23.12.2020 17:57
Bólusetning á Íslandi hefst öðru hvoru megin við áramót Ekki er útilokað að bólusetning gegn covid-19 hefjist hér á landi fyrir áramót að sögn heilbrigðisráðherra. Fyrstu skammtar bóluefnisins fari í umferð einhvern daginn í kringum áramótin. Hún segir að forgangsröðun verði ekki endilega með þeim hætti að fyrsti forgangshópurinn verði allur bólusettur fyrst og svo verði byrjað að bólusetja þann næsta. 13.12.2020 20:00
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Sóttvarnalæknir hefur áhyggjur af þróun faraldursins næstu vikuna vegna samkvæma og hópamyndana um helgina. Nú reyni á samtakamátt þjóðarinnar. Við fjöllum um partístand höfuðborgarbúa og stöðu kórónuveirufaraldursins í kvöldfréttum Stöðvar 2. 13.12.2020 18:11
Um 400 skólabarna saknað Nokkur hundruð skólabarna er saknað í Nígeríu eftir að vopnaðir árásarmenn réðust á skólann þeirra í Katsina-ríki í norðvesturhluta landsins á föstudagskvöldið. Lögreglan segir að alls sé um fjögur hundruð barna saknað. 13.12.2020 17:21
Kántrístjarnan Charley Pride lést úr Covid-19 Bandaríski kántrísönvarinn Charley Pride er látinn, 86 ára að aldri, af völdum covid-19. Pride lést í gær en söngvarinn gerði garðinn frægan með tónlist sinni vestanhafs á miklum umrótatímum á sjöunda áratugnum en greint er frá andlátinu á heimasíðu söngvarans. 13.12.2020 16:27
Snýst um miklu meira en bara áfengi í blóðinu Myndin fjallar ekki aðeins um að vera með nokkur prómíl í blóðinu heldur um eitthvað miklu meira. Þetta segir danski stórleikarinn Mads Mikkelsen um upplifun sína af því að fara með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Druk í leikstjórn Thomas Vinterberg sem frumsýnd var fyrr á árinu. Mikkelsen hlaut í gær Evrópsku kvikmyndaverðlaunin sem besti leikarinn í aðalhlutverki fyrir leik sinn í myndinni. 13.12.2020 15:49
„Alvarlegt hvernig farið er með Landspítalann“ Þingmaður Samfylkingarinnar segir alvarlegt að gerð sé aðhaldskrafa á heilbrigðisstofnanir nú á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru. Formaður fjárlaganefndar segir að krónutölur þurfi að skoða í stærra samhengi hvað varðar aðhaldskröfur á Landspítalann. Hann vill að því verði hætt að setja almennar aðhaldskröfur og vill að tekin verði upp ný aðferðafræði í staðinn. 13.12.2020 15:45
Vopnaðir piltar veittust að manni í undirgöngum og höfðu í hótunum Íbúi í Garðabæ slapp með skrekkinn síðastliðið föstudagskvöld þegar að honum veittust tveir ungir piltar í undirgöngum og hótuðu honum með hnífi og hnúajárni. Maðurinn varaði við piltunum á Facebook-síðu íbúa Garðabæjar. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfestir í samtali við fréttastofu að málið sé komið inn á borð lögreglu. 13.12.2020 13:51
Frumvarpið komi ekki alfarið í veg fyrir orkunýtingu á hálendinu Bæjarfulltrúi á Akureyri segir alvarlegt ef lög um miðhálendisþjóðgarð komi í veg fyrir orkunýtingu á hálendinu. Umhverfisráðherra segir ekki rétt að frumvarpið komi alfarið í veg fyrir orkunýtingu. 13.12.2020 13:31
Skólum og verslunum lokað í Þýskalandi Angela Merkel Þýskalandskanslari boðaði í dag verulega hertar aðgerðir í Þýskalandi vegna covid-19. Meðal annars stendur til að loka verslunum, skólum og barnadaggæslu. Nýjar reglur munu taka gildi frá og með næsta miðvikudegi að því er Deutsche Welle greinir frá. 13.12.2020 13:00