Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Sé gríðar­lega nei­kvætt fyrir sam­fé­lagið í heild sinni

Í nýjasta þætti af Ísland í dag var ferðinni heitið á Austurland. Þar virðist sem samgöngumál, þá sérstaklega áform um Fjarðarheiðargöng, brenni á íbúum. Annars var algengt að fólk nefndi skipulagsmál, þjónustu við aldraða og skólamál aðspurt hvað væri aðkallandi. Í kjölfar breytinga á tilhögun leikskólavistar í Fjarðabyggð hafa konur tekið á sig að minnka starfshlutföll sín.

Euro­vision fer fram í vikunni en hlustunartölur hríðfalla

Eurovison, söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, fer fram 70. skiptið í ár en keppnin verður haldin í höfuðborg Austurríkis, Vín, og hefst á þriðjudaginn, þann 12. maí.  Tölurnar sýna greinilega að lög þess árs ná ekki til áhorfenda á sama stigi og undanfarin ár en spilunartölur Eurovision á Spotify hafa nánast helmingast.

Læsi, ESB-leyni­makk, Land­eyja­höfn og hús­næðis­mál

Sprengisandur er á sínum stað á Bylgjunni í dag en þar fær Kristján Kristjánsson þáttastjórnandi til sín góða gesti og ræðir við þá samfélagsmálin sem brenna á þjóðinni. Í dag ræðir hann þróun læsis á Íslandi, tímasetningar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna, úrbætur í húsnæðismálum og starfsemi Landeyjahafnar.

Fyrstu far­þegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife

Skemmtiferðaskipið MV Hondius lagðist við höfn á Tenerife klukkan hálf sex í morgun og hafa fyrstu farþegar farið frá borði. Það hafði verið ágreiningur meðal yfirvalda allt fram á síðustu stundu um hvernig þetta ferli ætti að fara fram en höfnin var valin vegna þess hversu afskekkt hún er þrátt fyrir að vera nálægt flugvelli. Allir um borð skipsins hafa verið skimaðir og reyndust allir einkennalausir.

Hand­tekinn á skemmti­stað með þrjú ung­menni

Ýmislegt gekk á í nótt og hafði lögreglan afskipti af fjölda ungmenna af mismunandi ástæðum. Fullorðinn maður var handtekinn á skemmtistað en með honum voru þrjú ungmenni undir aldri og var haft samband við foreldra þeirra. Maður var ofurölvi og hafði sofnað á tröppum veitingastaðar í Reykjavík en hann var vakinn og hélt í kjölfarið sína leið.

Skýjað með köflum en styttir svo upp

Í dag heldur áfram að rigna og er spáð suðlægri átt víðs vegar um landið en það ætti að hanga þurrt á austanverðu landinu fram á kvöld. Á morgun bætir svo í vindinn en síðdegis beinist til landsins þurrara loft og einhverjar glufur fara að sjást í skýjahuluna eftir hádegi. 

Labbaði 57 kíló­metra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“

Halldór Áskell Stefánsson gerði sér lítið fyrir og labbaði heim úr vinnunni í gær. Það væri líklega ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Halldór vinnur í Reykjavík en býr á Selfossi. Ferðalagið tók rúmar þrettán klukkustundir, reyndist mikil áskorun og á tímabili þurfti hann að minna sig á að setja annan fótinn fram fyrir hinn.

Maðurinn hand­tekinn og fluttur til Reykja­víkur í nótt

Lögreglan í Vestmannaeyjum naut í gær aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við handtöku manns sem var vopnaður eggvopni. Hann var fluttur með þyrlu á meginlandið um klukkan eitt í nótt en staðarmiðlar í Eyjum herma að hann glími við andleg veikindi.

Far­þegi Nor­rænu greindist með annað af­brigði hantaveiru

Dani sem var á leið til Færeyja með Norrænu var fluttur með sjúkraflugi þar sem heilsu hans hrakaði fljótt eftir að hann steig um borð í ferjuna. Á háskólasjúkrahúsinu í Óðinsvéum var staðfest að um hantaveiru væri að ræða.

Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk

Óskað var eftir aðstoð lögreglu í nótt á skemmtistað í Reykjavík en þar voru dyraverðir búnir að taka til hliðar einstakling sem hafði verið í slagsmálum inni á staðnum. Lögregla sinnti einnig útkalli vegna líkamsárásar jafnframt því sem hún aðstoðaði starfsfólk bráðamóttökunnar vegna ölvaðs manns sem neitaði að fara.

Sjá meira