Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Kona var á sundi skammt frá landi á einni vinsælustu strönd Sydney í Ástralíu þegar gríðarstór hákarl réðst á hana en hún er nú í lífshættu. Íslendingur sem var á ströndinni þegar atvikið átti sér stað segist enn þá vera að meðtaka það, enda „eins og að vera stödd í einhverri kvikmynd“. Hún segir mikla umræðu hafa skapast meðal íbúa svæðisins en ótrúlegt þyki að hákarlinn hafi komist svona nálægt landi án þess að til hans sæist. 14.6.2026 10:56
Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa á Ermarsundi snemma í morgun, að sögn Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands en aðgerðin stóð yfir í um sex klukkustundir. Hann segir þetta vera í fyrsta sinn sem breski herinn fer um borð í rússneskt olíuskip á Ermasundi. 14.6.2026 08:52
Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Margt var um manninn og mikið um dýrðir í veislum gærkvöldsins en um það bil tvö þúsund og sjö hundruð háskólanemar voru brautskráðir frá Háskóla Íslands. Lögreglan fékk ítrekaðar tilkynningar um tónlistarhávaða í Reykjavík en meðal annarra mála voru innbrot í hverfi 101 og líkamsárás þar sem þrír voru handteknir. Á Austurlandi voru ökumenn hins vegar til fyrirmyndar að sögn lögreglu. 14.6.2026 08:21
250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Jarðskjálftahrinu sem hófst í gærkvöldi upp úr klukkan 22:00 í kjölfar skjálfta, sem mældist um 4,8 að stærð, fylgir enginn gosórói að svo stöddu. Ríflega tvö hundruð og fimmtíu skjálftar voru mældir frá klukkan 22:00 og til klukkan 02:00 en þar af voru ellefu skjálftar yfir þremur að stærð. 14.6.2026 07:40
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Nýútskrifaður stúdent úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Abdallah Rúnar Awal, var ansi hissa þegar hringt var í hann frá skólanum nokkrum dögum eftir útskrift. Þá var honum greint frá því að vegna prentmistaka hafi viðurkenning fyrir stærðfræði sem hann átti að fá við ekki verið afhent við athöfnina. 14.6.2026 07:30
Áfram rólegheitaveður en líkur á síðdegisskúrum Hiti gæti farið í tuttugu gráður á Suðvesturlandi í dag og líkur á síðdegisskúrum en aðeins svalara verður í þokulofti við norður- og austurströndina. Hæg breytileg átt eða hafgola og almennt mjög rólegt veður í dag. Hiti fer lægst niður í um sex gráður á norðausturhorninu. 14.6.2026 07:22
„Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Íbúar hjólhýsabyggðar á Sævarhöfða eru margir hverjir mjög ósáttir eftir að borgarráð samþykkti á fundi sínum í vikunni að segja upp samningi við Samtök hjólabúa um afnot af landi í Gufunesi. Aðeins tveir mánuðir eru síðan samningurinn var undirritaður en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Sanna Magdalena, borgarfulltrúi Vinstrisins, sem sagði uppsögnina ömurlega í færslu á Facebook. 13.6.2026 14:50
Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Höskuldur Elefsen hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra afþreyingar- og ævintýrasviðs Icelandia. Höskuldur hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra dive.is síðastliðin tíu ár og gekk til liðs við Icelandia þegar fyrirtækin sameinuðust árið 2021. 13.6.2026 13:45
Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Enn eina ferðina hefur því að Herjólfur verði kominn í fullan rekstur á ný seinkað. Í þetta skiptið veldur framleiðsla á koparvír sem verður fluttur frá Tyrklandi til Hollands, þangað sem mótorinn er, því að viðgerð tefst. Áætlað var að viðgerðinni lyki í júní en nú er útlit fyrir að það verði um miðjan júlímánuð og er útlit fyrir að hrakföllum Herjólfs fari að linna. 13.6.2026 12:12
Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna. 13.6.2026 08:55