Menntastefnumót: „Látum draumana rætast“ Menntastefnumót er uppskeruhátíð þess þróunar- og nýsköpunarstarfs sem hefur sprottið upp í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar í tengslum við innleiðingu menntastefnunnar „Látum draumana rætast“ frá ársbyrjun 2019. 10.5.2021 09:02
Mótmælaskáld deyr eftir yfirheyrslur: Líkamsleifunum skilað án líffæra Eiginkona ljóðskáldsins Khet Thi segir hann hafa látist eftir að hafa verið handtekinn og færður til yfirheyrslu á laugardag. Líkamsleifum hans var skilað í kjölfarið en án innri líffæra. 10.5.2021 08:11
Miklar umferðartafir í Ártúnsbrekku: Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur tveggja strætisvagna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill vekja athygli á að miklar umferðartafir eru á Vesturlandsvegi í Ártúnsbrekku á leið vestur vegna umferðarslyss. 10.5.2021 07:59
Tölvuárás gerð á stærstu eldsneytisleiðslu Bandaríkjanna Bandarísk yfirvöld gáfu í gær út neyðarheimild eftir að stærsta eldsneytisleiðsla landsins varð fyrir netárás. Um það bil 2,5 milljónir tunna af eldsneyti flæða um Colonial-leiðsluna daglega en það jafngildir um 45 prósent eldsneytisnotkunar austurstrandarinnar. 10.5.2021 07:34
Einstaklingum undir 40 ára boðið annað bóluefni en frá AstraZeneca Breska lyfjaeftirlitsstofnunin hefur ákveðið að héðan í frá verði einstaklingum undir fertugu boðið annað bóluefni en það frá AstraZeneca vegna sjaldgæfra en alvarlegra blóðtappa sem hafa verið tilkynntir í kjölfar bólusetninga. 7.5.2021 12:23
Fáar tilkynningar um aukaverkanir vegna bóluefnis Janssen þrátt fyrir mikil veikindi Þrátt fyrir töluverð veikindi meðal þeirra sem fengu bóluefnið frá Janssen hafa aðeins sjö tilkynningar um aukaverkanir borist Lyfjastofnun. Engar þeirra hafa reynst alvarlegar. 7.5.2021 11:23
„Þetta er svo mikið bíó,“ segir Guðmundur um stóra berjarunnamálið „Þetta er svo mikið bíó,“ segir Guðmundur Heiðar Helgason um þá ákvörðun borgarráðs að hafna deiliskipulagsbreytingu í Vogabyggð. Ákvörðunin hefur það í för með sér að íbúum á fyrstu hæð er skylt að vera með örlítinn grasblett og berjarunna á lóð sinni. 7.5.2021 10:49
Títan díoxíð (E171) verður ekki lengur leyfilegt aukaefni í matvælum Títan díoxíð er ekki lengur talið öruggt aukaefni í matvælum, samkvæmt Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA). Ekki hefur verið sýnt fram á skaðsemi efnisins með óyggjandi hætti en ekki er hægt að útiloka skaðleg áhrif á erfðaefni út frá nýjum rannsóknum. 7.5.2021 08:37
Japanir sitja uppi með tugmilljónir bóluefnaskammta Útlit er fyrir að innan tíðar muni Japan sitja uppi með tugmilljónir ónotaðra bóluefnaskammta, þar sem verulegir hnökrar eru á framkvæmd bólusetninga í landinu. 7.5.2021 08:03
Tólf ára mætti með byssu í skólann og skaut tvo samnemendur og starfsmann Tólf ára gömul stúlka í Rigby Middle School í borginni Rigby í Idaho í Bandaríkjunum skaut á tvo samnemendur sína og starfsmann skólans í gær. Fórnarlömbin eru talin munu lifa. 7.5.2021 07:35