Ísfélagið setur stefnuna á risaskráningu á markað undir lok ársins Sjávarútvegsrisinn Ísfélagið, nýlega sameinað fyrirtæki Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði, hefur gengið frá ráðningum á helstu fjármálaráðgjöfum vegna undirbúnings að skráningu og frumútboði félagsins í Kauphöllina. Gangi núverandi áætlanir Ísfélagsins eftir verður fyrirtækið eitt hið stærsta að markaðsvirði á íslenskum hlutabréfamarkaði áður en árið er liðið. 26.9.2023 17:04
Bandaríski risinn Capital Group stækkar enn stöðu sína í Íslandsbanka Sjóðastýringarfélagið Capital Group, stærsti erlendi fjárfestirinn í hlutahafahópi Íslandsbanka, jók nokkuð við eignarhlut sinn fyrr í þessum mánuði eftir að hlutabréfaverð bankans hafði fallið skarpt síðustu vikur. Erlendir fjárfestar hafa ekki átt stærri samanlagðan hlut í bankanum frá skráningu hans sumarið 2021. 26.9.2023 10:42
Met slegið í verðtryggðum íbúðalánum bankanna annan mánuðinn í röð Talsvert hefur hægt á útlánavexti bankanna til atvinnulífsins á undanförnum þremur mánuðum samhliða hækkandi fjármagnskostnaði en meðalvextir óverðtryggðra fyrirtækjalána voru farnir að nálgast tólf prósent fyrr í sumar. Á sama tíma er ekkert lát á tilfærslu heimila úr óverðtryggðum íbúðalánum yfir í verðtryggð en annan mánuðinn í röð var met slegið í nýjum verðtryggðum lánum bankanna með veði í íbúð. 25.9.2023 18:16
Þurfum „stóran“ forða og segir eðlilegt að ríkið gefi reglulega út bréf erlendis Það er mikilvægt fyrir Ísland að halda úti „stórum“ gjaldeyrisvaraforða en sem hlutfall af landsframleiðslu hefur hann minnkað talsvert á skömmum tíma og er nú aðeins lítillega yfir þeim viðmiðum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur sett. Hægt væri að styrkja forðann með lántöku ríkissjóðs í erlendri mynt en eðlilegt er að íslenska ríkið gefi reglulega út slík skuldabréf, að sögn seðlabankastjóra. 25.9.2023 10:33
Hagnaður Kviku eignastýringar minnkaði um nærri tvo þriðju milli ára Afkoma Kviku eignastýringar, sem er í eigu samnefnds banka, versnaði verulega á fyrstu sex mánuðum ársins frá fyrra ári samhliða erfiðum aðstæðum á fjármálamörkuðum. Samanlagður hagnaður fjögurra stærstu sjóðastýringarfélaga landsins minnkaði um liðlega tíu prósent á tímabilinu. 24.9.2023 17:48
Lífeyrissjóðir halda svipuðum takti í gjaldeyriskaupum og í fyrra Þrátt fyrir að lífeyrissjóðir hafi aukið nokkuð við fjárfestingar sínar í erlendum gjaldmiðlum yfir sumarmánuðina samhliða auknu innflæði gjaldeyris til landsins vegna mikils fjölda ferðamanna þá styrktist gengi krónunnar stöðugt á tímabilinu. Hrein gjaldeyriskaup lífeyrissjóðanna jukust um liðlega fimmtán prósent á fyrstu átta mánuðum ársins en flestir sjóðir eru hins vegar enn talsvert fjarri innri viðmiðum um hlutfall gjaldeyriseigna af heildareignum sínum. 23.9.2023 14:59
Sjóðurinn IS Haf fjárfestir í Thor Landeldi og eignast yfir helmingshlut Fjárfestingarsjóður sem einblínir á haftengda starfsemi hefur gengið frá samningum um fjárfestingu í Thor Landeldi sem mun tryggja honum yfir helmingshlut í eldisfyrirtækinu sem áformar uppbyggingu á tuttugu þúsund tonna laxeldi í Þorlákshöfn. Ásamt sjóðnum IS Haf munu reynslumiklir norskir fjárfestar úr laxeldi koma að fjárfestingunni. 21.9.2023 15:18
„Mun taka tíma“ að byggja upp heimamarkað fyrir ótryggðar útgáfur bankanna Fjármálakerfið hefur sýnt að það er sumpart í sterkari stöðu en margir bankar erlendis, með því að geta þolað tímabundið hátt vaxtastig og meira fjármálalegt aðhald, og vaxtaálagið á erlendar skuldabréfaútgáfur bankanna hefur lækkað skarpt að undanförnu. Seðlabankastjóri segir að horft fram á við megi hins vegar áfram búast við sveiflum í vaxtakjörum bankanna á erlendum mörkuðum en fjarvera íslenskra stofnanafjárfesta þegar kemur að kaupum á ótryggðum útgáfum stendur þeim fyrir þrifum. 21.9.2023 10:13
Seðlabankinn segir stöðu lántakenda „á heildina litið“ vera góða Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum samhliða erfiðari fjármálaskilyrðum, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, og með skuldabréfaútgáfum bankanna að undanförnu hefur dregið úr endurfjármögnunaráhættu þeirra í erlendri mynt. Þá virðist staða lántakenda á „heildina litið“ vera góð. 20.9.2023 09:00
Blackrock eignast yfir fimmtungshlut eftir niðurfellingu á milljarða skuldum Bandaríski sjóðastýringarrisinn BlackRock eignaðist meira en fimmtungshlut af útgefnu almennu hlutafé Icelandic Water Holdings, sem starfrækir vatnsverksmiðju í Ölfusi, gegn eftirgjöf skulda upp á nærri fjóra milljarða þegar endurskipulagning á fjárhag íslenska fyrirtækisins var kláruð í sumar. BlackRock er í hópi ráðandi hluthafa sem geta beitt neitunarvaldi ef til stendur meðal annars að selja fyrirtækið eða gefa út nýja hluti sem verðmetur það á undir jafnvirði 25 milljarða króna. 19.9.2023 17:44