LeBron með 38 stig á gamla heimavellinum og segist aldrei hafa notið þess meira að spila Þrátt fyrir að Los Angeles Lakers geti lítið er LeBron James að spila vel og segist aldrei hafa notið þess jafn mikið að spila körfubolta. 22.3.2022 08:00
Dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða NBA-leikmann Maður frá Tennesse var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir að myrða Lorenzen Wright, fyrrverandi leikmann í NBA-deildinni í körfubolta, fyrir tólf árum. 22.3.2022 07:31
Viðræður Juventus og Dybalas runnu út í sandinn og hann fer í sumar Argentínski framherjinn Paulo Dybala fer frá Juventus í sumar þegar samningur hans við félagið rennur út. 21.3.2022 16:01
Stal treyjunni af hetju Ajax eftir leik Brasilíumaðurinn Antony skoraði sigurmark Ajax í dramatískum sigri á erkifjendunum í Feyenoord, 3-2, í hollensku úrvalsdeildinni í gær. Einn stuðningsmaður Ajax nældi sér í treyju hetjunnar eftir leik. 21.3.2022 14:01
Rooney skellti sér á bardagakvöldið hans Gunnars og fagnaði með sínu fólki frá Liverpool Wayne Rooney, knattspyrnustjóri Derby County, fór á UFC bardagakvöld í O2 höllinni í London á laugardagskvöldið til að styðja við bakið á bardagafólki frá Liverpool. 21.3.2022 13:31
Elías handleggsbrotinn og frá út tímabilið Elías Rafn Ólafsson leikur ekki meira með Midtjylland á tímabilinu eftir að hafa handleggsbrotnað í leik gegn Silkeborg í gær. 21.3.2022 11:31
Klísturslausi boltinn hans Hassans notaður í fyrsta sinn á HM U-18 ára Eitt af helstu baráttumálum hins umdeilda forseta Alþjóða handknattleikssambandsins, Hassans Moustafa, er að hætt verði að nota harpix. Á HM U-18 ára kvenna í sumar verður í fyrsta sinn keppt með klísturslausan bolta. 21.3.2022 10:01
PUMA fagnar endurkomu Söru: „Ég er komin aftur“ Sara Björk Gunnarsdóttir lék sinn fyrsta leik í 372 daga þegar Lyon vann 3-0 sigur á Dijon í frönsku úrvalsdeildinni á föstudaginn. 21.3.2022 08:32
Jókerinn með skeifu eftir að hafa lent í Boston-vörninni Gott gengi Boston Celtics í NBA-deildinni hélt áfram í nótt þegar liðið vann Denver Nuggets á útivelli, 104-124. 21.3.2022 08:01
Gerrard segir Saka að hætta að væla: „Þetta er ekki íþrótt án snertinga“ Steven Gerrard, knattspyrnustjóri Aston Villa, gaf lítið fyrir umkvartanir Bukayos Saka, leikmanns Arsenal, um að Villa-menn hefðu verið grófir í leik liðanna á laugardaginn. 21.3.2022 07:32