Sænsk „sorpdrottning“ hlaut þungan fangelsisdóm fyrir umhverfisbrot Stjórnendur sænsks sorphirðufyrirtækis hlutu þunga fangelsisdóma fyrir að urða eitraðan úrgangs á nokkrum stöðum í Svíþjóð, þar á meðal fyrrverandi forstjóri sem kallaði sig „sorpdrottninguna“. Málinu hefur verið lýst sem mesta umhverfishneyksli í samtímasögu Svíþjóðar. 18.6.2025 09:10
Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Veik verkstjórn og eftirfylgni er með loftslagsaðgerðum stjórnvalda og ráðstöfun fjármuna er ómarkviss að mati ráðgjafarráðs ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Ráðið segir að þáttaskil í loftslagsaðgerðum sem það kallaði eftir fyrir kosningar í vetur hafi ekki orðið að veruleika. 16.6.2025 14:59
Þeim sem skaut þingmenn lýst sem kristilegum íhaldsmanni Karlmaður á sextugsaldri sem skaut ríkisþingkonu og eiginmann hennar til bana og særði tvennt til viðbótar í Minnesota í Bandaríkjunum er lýst sem sannkristnum og hægrisinnuðum íhaldsmanni. Hann er meðal annars sagður hafa sótt kosningafundi sitjandi Bandaríkjaforseta. 16.6.2025 13:52
Leita að einhverjum til að reka Kolaportið áfram á sama stað Reykjavíkurborg leitar nú að leigjanda og rekstraraðila fyrir Kolaportið sem verður um kyrrt við Tryggvagötu. Sá á meðal annars að velja söluaðila og veitingastaði til samstarfs og annast allan daglegan rekstur hússins við Tryggvagötu. 16.6.2025 10:52
Fyrsta konan sem stýrir MI6 Blaise Metreweli verður fyrsta konan sem stýrir bresku utanríkisleyniþjónustunni MI6 í 116 ára sögu stofnunarinnar síðar á þessu ári. Hún hefur aldarfjórðungs langa reynslu af störfum fyrir leyniþjónustunar og er tæknistjóri MI6 sem þekktur er sem „Q“. 16.6.2025 09:35
Forsætisráðherra Spánar biður þjóðina afsökunar á spillingarmáli Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, bað spænsku þjóðina afsökunar vegna náins ráðgjafa sem er grunaður um aðild að mútumáli. Nokkrir fyrrverandi ráðherrar í ríkisstjórn Sánchez eru taldir bendlaðir við spillingarmálið. 13.6.2025 16:02
Flugriti indversku þotunnar sagður fundinn á húsþaki Ráðherra flugmála á Indlandi segir að flugriti farþegaþotunnar sem fórst í Ahmedabad í gær sé fundinn. Enn liggur ekki fyrir hversu margir létust á jörðu niðri þegar þotan brotlenti á íbúðabyggð. 13.6.2025 15:06
Draga úr framkvæmdum um meira en fjórðung vegna rekstrarstöðvunar PCC Framkvæmdir og fjárfestingar í samstæðu Norðurþings verða skornar niður um meira en fjórðung til þess að mæta tekjutapi sveitarfélagsins vegna rekstrarstöðvunar PCC á Bakka. Þá verður hagrætt um 160 milljónir króna á fleiri sviðum hjá sveitarfélaginu. 13.6.2025 13:11
Engum verið neitað um Fulbright-styrk á Íslandi Allir umsækjendur sem Fulbright á Íslandi hefur mælt með hafa fengið brautargengi til þessa, að sögn framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Nær allir stjórnarmenn Fulbright-áætlunarinnar í Bandaríkjunum sögðu af sér vegna afskipta ríkisstjórnarinnar þar af styrkjunum. 12.6.2025 15:52
Hætt eftir tveggja mánaða störf fyrir borgarstjóra Aðstoðarmaður borgarstjóra hætti um miðjan maí eftir aðeins um tveggja mánaða störf. Hann segir brotthvarf sitt í góðu samstarfi við borgarstjóra. Rétt væri að pólitískari fulltrúi tæki við starfinu nú þegar aðeins ár er til borgarstjórnarkosninga. 12.6.2025 14:02