Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Katar er sagður hafa fest kaup á sveitasetri Silvio Berlusconi heitins á eyjunni Sardiníu. Setrið var eitt af nokkrum þar sem þáverandi forsætisráðherra Ítalíu hélt alræmdar „bunga bunga“-veislur sínar. 24.6.2026 13:46
Áfram viðvaranir vegna hitasvækju víða um Evrópu Áfram er varað við lífshættulegri hitabylgju í Evrópu, allt frá London í vestri til Mílanó í austri, í dag. Líkur eru á að nýtt hitamet fyrir júní verði sett á Englandi. 24.6.2026 11:01
Nýir bandamenn Miðflokksins sakaðir um rasisma gegn þingkonu Tveir norrænir þingmenn sem tilheyra ECR-þingflokknum á Evrópuþinginu eru sakaðir um rasisma í garð sænskrar Evrópuþingkonu. Hótanir um málaferli ganga á víxl. Miðflokkurinn fékk aðild að ECR á sama tíma og flokkar þingmannanna tveggja í vikunni. 24.6.2026 10:03
Fundu vefnaðarmiðstöð frá víkingaöld við Árósa Minjar eftir umfangsmikla vefnaðarframleiðslu frá víkingaöld hafa fundist í uppgreftri utan við Árósa í Danmörku. Fornleifafræðingur segir fundinn sýna að víkingar hafi verið meira en ósiðmenntaðir rustar sem fóru ruplandi og rænandi um Evrópu. 24.6.2026 08:59
Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Innviðaráðherra skrifaði undir reglugerð sem eykur aflaheimildir til strandveiða á þessu tímabili um 2.700 tonn. Strandveiðivertíðin er sögð verða sú allra stærsta frá upphafi með aukningunni. 19.6.2026 11:42
Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fundaði með fulltrúum kínverska samfélagsmiðilsins Tiktok um að hækka aldurstakmark á samfélagsmiðlum á Íslandi. Fulltrúar eru ekki sagðir hafa sett sig upp á móti slíkum hugmyndum. 19.6.2026 11:20
Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, segist ætla að freista þess að standa af sér mögulegt áhlaup frá Andy Burnham, nýrri vonarstjörnu flokksins. Burnham náði kjöri á þing í aukakosningum í gær. 19.6.2026 10:17
Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Settur landsréttardómari skilaði sératkvæði og vildi sýkna mann sem tveir meðdómendur hans dæmdu sekan um sérstaklega sársaukafulla og meiðandi nauðgun. Hann taldi framburð konunnar um atvik ekki studdan öðrum gögnum í málinu. 19.6.2026 09:31
Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Ekkert verður af fyrirhuguðum viðræðum Bandaríkjanna og Írans sem áttu að hefjast í Sviss í dag. Varaforseti Bandaríkjanna er sagður hafa hætt við á flugvellinum eftir að fréttist af árásum Ísraela á Líbanon í nótt. 19.6.2026 07:02
Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið Gjaldtaka af skipum sem sigla um Hormússund hefst eftir að tveggja mánaða viðræðum Írana og Bandaríkjamanna lýkur, að sögn íranskra stjórnvalda. Samkomulag sem skrifað var undir í vikunni kveður á um að sundið verði opnað og án gjaldheimtu. 19.6.2026 06:32