Fyrirtæki tengdasonar Trump fengu stór lán eftir fundi í Hvíta húsinu Lán upp á rúmlega 500 milljónir dollara voru veitt fyrirtækjum Jareds Kushner, ekki löngu eftir fundi sem hann átti með forsvarsmönnum fjármálafyrirtækjanna. 1.3.2018 11:30
Örverur gætu þrifist í neðanjarðarhafi Enkeladusar Jarðhitastrýtur á hafsbotni gætu nært lífverur undir ísilögðu yfirborði tungls Satúrnusar. 1.3.2018 10:15
Forseti Filippseyja segist orðinn gamall og lúinn Gagnrýnendur Duterte telja að hann ætli sér að halda í völdin og taka sér alræðisvald. Sjálfur segist hann ætla að víkja úr embætti innan tveggja ára. 28.2.2018 16:30
Fyrrverandi kosningastjóri Trump neitar sök Réttarhöld yfir Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóra Donalds Trump, hefjast um miðjan september. 28.2.2018 15:44
Sakar uppreisnarmenn um að koma í veg fyrir neyðaraðstoð í Ghouta Utanríkisráðherra Rússlands skellir skuldinni á uppreisnarmenn í Sýrlandi. Það séu þeir sem stöðvi fólksflutninga og neyðaraðstoð á átakasvæðinu. 28.2.2018 15:23
Breska ríkisstjórnin hafnar tillögu ESB um Norður-Írland ESB lagði til að Norður-Írland yrði áfram hluti af innri markaði þess eftir Brexit ef engin önnur lausn finnst í viðræðum við Breta. 28.2.2018 14:55
Erlend ríki reyna að notfæra sér tengdason Trump Fáir starfsmenn Hvíta hússins hafa haft eins flókið net viðskiptahagsmuna og skulda og Jared Kushner, tengdasonur Trump Bandaríkjaforseta. Erlend ríki eru sögð reyna að notfæra sér reynsluleysi hans og viðskiptahagsmuni. 28.2.2018 13:15
Hvíta húsið vill ekki segja hvort öryggisheimildir hafi verið afturkallaðar Tengdasonur og dótir Trump forseta eru á meðal þeirra sem hafa aðeins haft tímabundna öryggisheimild um margra mánaða skeið. 27.2.2018 16:45
Röskun meginkerfis norðurhvelsins snýr veðurfari á haus Á sama tíma og hitinn á norðurskautinu hefur farið yfir frostmark flæðir kalt loft frá Síberíu yfir Evrópu. Kenningar eru um að hnattræn hlýnun geti gert frávik af þessu tagi tíðari. 27.2.2018 15:15
Þýskar borgir mega banna dísilbíla til að draga úr mengun Dómur þýsks dómstóls er talinn geta haft fordæmisgildi fyrir fleiri Evrópulönd. 27.2.2018 15:12
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent