Næsta þætti af Game of Thrones stolið í tölvuinnbroti hjá HBO HBO segist hafa orðið fyrir tölvuinnbroti og þjófarnir hafi stolið efni. Entertainment Weekly segir að næsti þáttur Game of Thrones sé á meðal þýfisins. 31.7.2017 18:35
Pence ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Eystrasaltslöndin Varaforseti Bandaríkjanna kallaði Rússa stærstu öryggisógnina sem steðjar að Eystrasaltslöndunum í opinberri heimsókn þar í dag. Tók hann af öll tvímæli um að Bandaríkjamenn kæmu löndunum til varnar gegn yfirgangi nágrannanna í austri. 31.7.2017 18:04
Fjársvikamál Shkreli lagt í dóm Hataðasti maður internetsins, Martin Shkreli, bíður nú dóms í fjársvikamáli. Hann gæti átt yfir höfði sér fangelsisvist verði hann fundinn sekur. 31.7.2017 17:36
Norður-kóresk eldflaug sögð hafa lent í landhelgi Japans Neyðarfundur hefur verið boðaður í þjóðaröryggisráði Japans eftir að Norður-Kóreumenn skutu eldflaug á loft sem hafnaði innan landhelgi Japans. 28.7.2017 15:57
Vísbendingar um fyrsta fjartunglið í fjarlægu sólkerfi Fjartungl sem vísindamenn hafa séð vísbendingar um gæti verið á stærð við Neptúnus, margfalt stærri en nokkurt tungl í sólkerfinu okkar. Tungl eru talin mikilvæg fyrir lífvænleika reikistjarna en ekkert slíkt hefur fundist utan sólkerfis okkar enn sem komið er. 28.7.2017 15:37
Einn látinn í árás í matvöruverslun í Hamborg Einn maður er sagður látinn og nokkrir aðrir sárir eftir að árásarmaður réðist á fólkið í matvöruverslun í þýsku borginni Hamborg. Dagblaðið Bild segir að hann hafi ráðist að viðskiptavinum verslunarinnar með hnífi að handahófi. 28.7.2017 15:00
Pólska stjórnarandstaðan mælist stærri en stjórnarflokkarnir Fjarað hefur undan stuðningi við pólsku ríkisstjórninni eftir að forseti landsins beitti neitunarvaldi gegn umdeildum breytingum á dómstólum. Ný könnun sýnir stjórnarandstöðuna með meiri stuðning en ríkisstjórnina. 28.7.2017 14:30
Tæpur helmingur repúblikana vill að stjórnvöld geti lokað fjölmiðlum Verulegur stuðningur virðist vera við að ríkisvaldið eigi að geta lokað fjölmiðlum í Bandaríkjunum. Stuðningurinn er áberandi mestur á meðal repúblikana, mögulega vegna sleitulausra árása Donalds Trump forseta á fjölmiðla. 28.7.2017 13:44
Drap eiginkonuna því hún hló að honum Vitni segir að maður sem er ákærður fyrir morð á eiginkonu sinni hafi sagt að hún hafi ekki viljað hætta að hlæja að honum. 28.7.2017 12:00
NASA deilir mynd íslensks tölvunarfræðings af Júpíter Þúsundir manna hafa deilt og líkað við mynd sem Björn Jónsson, tölvunarfræðingur, vann af Stóra rauða bletti Júpíters eftir að NASA deildi henni á vefsíðu sinni og samfélagsmiðlum. 28.7.2017 10:54
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlist