Trump sagði Mexíkó borga fyrir vegginn fyrir framan forseta Mexíkó Margir Mexíkóar eru reiðir út í forseta sinn sem sat hljóður hjá á meðan Donald Trump sagði blaðamönnum að hann ætlaðist enn til þess að Mexíkó greiddi fyrir landamæravegg sem hann lofaði í kosningabaráttunni vestanhafs. 7.7.2017 22:39
Tölvuþrjótar réðust á tugi kjarnorkuvera í Bandaríkjunum Almannahætta skapaðist ekki af völdum tölvuárása á tugi rekstraraðila tuga kjarnorkuvera í Bandaríkjunum en leyniþjónustan vestanhafs telur mögulegt að erlent ríki, hugsanlega Rússland, hafi staðið að baki þeim. 7.7.2017 21:49
Lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hækkar Fitch Ratings hækkaði lánshæfismat íslenska ríkisins í A- í dag. Nú er Ísland með þá einkunn hjá þremur stærstu matsfyrirtækjum heims. 7.7.2017 21:11
Merkel ranghvolfdi augunum yfir Pútín Hvort sem Vladimír Pútín var að "hrútskýra“ fyrir Angelu Merkel eða eitthvað annað þá hafa viðbrögð hennar farið sem eldur í sinu um netheima. 7.7.2017 20:06
Skoða ábendingar um meðferð fyrir dauðvona dreng Hópur lækna hefur sent sjúkrahúsinu sem annast Charlie Gard, tíu mánaða breskan dreng sem bíður dauðans af völdum sjaldgæfs sjúkdóms, ábendingar um mögulegan ávinning tilraunameðferðar. Sjúkrahúsið hefur óskað eftir að dómstóll taki mál hans fyrir aftur. 7.7.2017 19:41
Erlendur ferðamaður lést í Hljóðaklettum Erlendur ferðamaður féll til bana fram af hamrabrún í Hljóðaklettum í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að nánari tildrög slyssins liggi ekki fyrir. Maðurinn féll niður um fimmtán til tuttugu metra. 7.7.2017 19:30
Pútín neitaði að hafa hakkað kosningarnar í Bandaríkjunum Bandaríkjastjórn og Rússar einbeita sér að því að horfa fram á veginn eftir ásakanir um afskipti þeirra síðarnefndu af forsetakosningunum í Bandaríkjunum í fyrra. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Trump og Pútín hafi átt "kröftugar“ umræður um tölvuárásir Rússa á fundi þeirra í dag. 7.7.2017 18:48
Salvör Nordal skipuð umboðsmaður barna Forsætisráðherra hefur skipað Salvöru Nordal, heimspeking, í embætti umboðsmanns barna til fimm ára. Salvör hefur verið forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og lektor í heimspeki. 7.7.2017 17:25
G-20: Tugir lögreglumanna sárir eftir mótmælin í Hamborg Lögreglan í Hamborg segir að tæplega 75 lögreglumenn séu sárir eftir átök við mótmælendur í aðdraganda leiðtogafundar G-20-ríkjanna í borginni. 6.7.2017 23:37
Réttað aftur yfir Bill Cosby í nóvember Dómari í máli Bill Cosby tilkynnti í dag að réttað yrði aftur yfir honum í nóvember. Fyrri réttarhöld yfir gamanleikaranum voru ómerkt í síðasta mánuði. 6.7.2017 23:10