Klæðningin á Grenfell-turninum var bönnuð á Bretlandi Fjármálaráðherra Bretlands segir að klæðningin sem var utan á Grenfell-turninum sem brann á miðvikudag sé ólögleg í Bretlandi, Evrópu og Bandaríkjunum. Að minnsta kosti 58 eru látnir eftir eldsvoðann. 18.6.2017 13:15
Fjögurra saknað eftir flóðbylgjuna á Grænlandi Lögreglan á Grænlandi segir að fjögurra sé saknað eftir flóðbylgjuna sem gekk á land í þorpum á Vestur-Grænlandi eftir jarðskjálfta sem reið yfir í gærkvöldi. 18.6.2017 12:08
Farþegar Vueling frá Barcelona skildir eftir í óvissu í Edinborg Hópur íslenskra farþega spænska flugfélagsins Vueling var skilinn eftir í reiðileysi á flugvellinum í Edinborg eftir að hætt var við lendingu í Keflavík í gærkvöldi. Hluti fólksins hefur keypt sér miða með öðru félagi heim og hefur engar upplýsingar fengið frá spænska félaginu. 18.6.2017 10:51
Jarðskjálfti og flóðbylgja á Vestur-Grænlandi Íbúum í þorpum á Vestur-Grænlandi var skipað að yfirgefa þau vegna flóðbylgna eftir jarðskjálfta af stærðinni fjórir í gær. Slíkir skjálftar eru ekki algengir á Grænlandi. 18.6.2017 09:21
Bandarísku sjóliðarnir fundust látnir Lík sjóliðanna sjö sem var saknað eftir árekstur bandarísks herskips og flutningaskips á föstudag eru komin í leitirnar. Japanskir fjölmiðlar segja að vatn hafi flætt inn í káetur þeirra á meðan þeir sváfu. 18.6.2017 08:53
Tvíburar Beyoncé og Jay-Z komnir í heiminn Kyn og fæðingardagur tvíbura stjörnuparsins Beyoncé og Jay-Z hefur ekki enn verið staðfest en bandarískir fjölmiðlar fullyrða að börnin séu komin í heiminn. 18.6.2017 08:38
Tugir farast í skógareldum í Portúgal Að minnsta kostir 43 hafa farist í miklum skógareldum nærri Coimbra í Portúgal, þar á meðal nokkur fjöldi fólks sem var að reyna að komast undan í bílum sínum. Um 1.700 slökkviliðsmenn berjast við skógarelda um allt landið. 18.6.2017 08:28
Fangageymslur lögreglu fullar eftir nóttina Átján manns gistu fangageymslur við Hverfisgötu og í Hafnarfirði í nótt. Töluvert var um fíkniefnabrot í Laugardalnum þar sem Secret Solstice fer fram. 18.6.2017 08:15
Tala látinna í brunanum í háhýsinu hækkar enn Löreglan segir að 58 manns séu nú taldir af i brunanum í Grenfell-turninum í London. BBC segir að talan gæti hækkað í sjötíu áður en yfir lýkur. 17.6.2017 15:11
Sjálfstæði Íslands fagnað í vætunni Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, lagði blómsveig við styttuna af Jóni Sigurðssyni í fyrsta skipti þegar þjóðhátíðardeginum var fagnað á Austurvelli fyrir hádegi. Fjallkonan að þessu sinni var Þóra Einarsdóttir, söngkona. 17.6.2017 14:19