Þrjátíu nú sagðir látnir í brunanum í háhýsinu í London Lögreglan í London hefur staðfest að þrjátíu hafi látist í það minnsta í brunanum í Grenfell-turninum í Norður-Kensington á aðfaranótt miðvikudags. Bretadrottning og Vilhjálmur prins heimsóttu neyðarskýli fyrir íbúa háhýsisins í morgun. 16.6.2017 11:34
Sakfelldir fyrir aldafjórðungsgamlar sprengjuárásir Sex menn voru dæmdir fyrir röð sprengjuárása í Mumbai á Indlandi árið 1993. Skipuleggjandi árásanna var tekinn af lífi fyrir tveimur árum. 16.6.2017 10:07
Blindur írakskur flóttamaður vinnur sigur vegna örorkubóta Tryggingastofnun taldi aðeins svonefnda kvótaflóttamenn eiga rétt á bótum strax og gæti úrskurðurinn haft fordæmisgildi í slíkum málum. 16.6.2017 09:30
Rússar kanna hvort þeir hafi fellt leiðtoga Ríkis íslams Leiðtogi hryðjuverkasamtakanna Ríkis íslams gæti hafa verið á meðal á fjórða hundrað liðsmanna samtakanna sem féllu í rússneskum loftárásum í Raqqa í lok maí, að sögn rússneskra stjórnvalda. 16.6.2017 08:52
Sagðist aka á eðlilegum evrópskum hraða Þegar erlendur ökumaður hópferðabifreiðar var stöðvaður á Suðurlandsvegi á hátt í sextíu kílómetra meiri hraða á klukkustund en leyfilegur hámarkshraði sagði hann lögreglu að það væri eðlilegur hraði í Evrópu. 16.6.2017 08:29
Viðskipti tengdasonar Trump til rannsóknar Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins rannsakar nú viðskipti og fjármál Jareds Kushner, tengdasonar og eins helsta ráðgjafa Donalds Trump. Það er liður í rannsókninni á íhlutun Rússa í forsetakosningunum og mögulegu samráði þeirra við framboð Trump. 16.6.2017 07:57
Trump grípur enn til gervifréttavarnarinnar Bandaríkjaforseti segir frétt Washington Post um að hann sé til rannsóknar vegna þess að hann kunni að hafa hindrað framgang réttvísinnar sé "gervifrétt“. Reuters hefur hins vegar fengið aðra staðfestingu á frétt blaðsins. 15.6.2017 14:31
Mældu gríðarlega bráðnun viðkvæmrar íshellu Svæði sem er tæplega átta sinnum stærra en Ísland að flatarmáli bráðnaði síðasta sumar á viðkvæmri hafíshellu við Suðurskautslandið. 15.6.2017 13:50
Kolaframleiðsla hefur aldrei dregist meira saman Eftirspurn eftir kolum dróst saman í heiminum á síðasta ári eftir vaxtartímabil undanfarinn áratug. Mengandi kol hafa orðið undir í samkeppni við hreinni orkugjafa. 15.6.2017 11:46
Ferðamaður frá Íslandi gripinn með uppstoppaðan lunda í Bandaríkjunum Tollayfirvöld á Baltimore-flugvelli gerðu uppstoppaðan lunda upptækan sem ferðamaður sem kom frá Íslandi flutti með sér. Bannað er að flytja inn farfugla til Bandaríkjanna. 15.6.2017 11:18