Reykspúandi flugsveit veltir sér yfir Akureyri Flugsýning á Akureyrarflugvelli milli klukkan 14 og 16 á morgun, laugardag, verður hápunktur flughátíðar sem haldin er í Eyjafirði um helgina. Þar verður meðal annars sýnt listflug af ýmsu tagi, þyrluflug, rafmagnsflug, svifflug og gírókoptaflug. 28.6.2024 19:19
Vestfirðingar segja ítrekuð svik í vegamálum óboðleg „Áætlunum kollvarpað og staðan óboðleg,” er fyrirsögn ályktunar stjórnar Vestfjarðastofu þar sem lýst er miklum vonbrigðum með þá stöðu sem enn og aftur sé komin upp í samgönguframkvæmdum í fjórðungnum. Segir að verið sé að svíkja ítrekuð loforð ráðherra og þingmanna um að þær nýframkvæmdir sem ættu núna að vera á lokastigi yrðu kláraðar eins fljótt og mögulegt væri. 28.6.2024 14:36
Öll stór verkútboð liggja í salti hjá Vegagerðinni Útboð stórra verka hafa verið stopp hjá Vegagerðinni frá því síðastliðið haust og stefnir í að engar nýjar stórframkvæmdir hefjist á þessu ári. Helsta skýringin er sögð sú að áform um einkafjármögnun vegagerðar yfir Hornafjörð gengu ekki eftir og því þurfi að fjármagna hana úr öðrum verkefnum. 26.6.2024 23:00
Goðsögn í fluginu lent eftir yfir hálfrar aldar flugrekstur Brautryðjandi í íslenskum flugsamgöngum, Hörður Guðmundsson, er hættur flugrekstri, 54 árum eftir að hann stofnaði Flugfélagið Erni á Ísafirði. Hörður segir covid-heimsfaraldurinn hafa orðið til þess að hann missti eignarhaldið á félaginu en telur árin fyrir vestan standa upp úr. 25.6.2024 21:10
Maður verður auðmjúkur við að fljúga svona sögulegri vél Ein merkasta flugvél seinni heimsstyrjaldar er í hópi þrista sem millilenda þessa dagana á Reykjavíkurflugvelli eftir að hafa tekið þátt í athöfnum í Evrópu þar sem minnst var D-dagsins, innrásarinnar í Normandí. 24.6.2024 21:21
Þriðji stríðsþristurinn á leiðinni til Reykjavíkur Tvær Douglas Dakota-flugvélar, sem tóku þátt í seinni heimsstyrjöld, hófu sig til flugs frá Reykjavíkurflugvelli í dag, önnur í morgun en hin í hádeginu, eftir nokkurra daga viðdvöl á Íslandi. Þeir flugáhugamenn sem misstu af vélunum þurfa þó ekki að örvænta. Þær verða sýndar í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30. 24.6.2024 17:11
Merkasti stríðsþristurinn á heimleið frá Normandí Ein merkasta vél flugsögunnar, flugvélin sem leiddi innrásina í Normandí, er núna stödd á Reykjavíkurflugvelli. Þetta er Douglas Dakota-flugvélin „That's All, Brother", sem á D-deginum þann 6. júní árið 1944 fór fyrir flugi yfir áttahundruð slíkra véla með samtals um þrettán þúsund fallhlífahermenn um borð. 23.6.2024 23:21
Hefja könnun á nýjum flugvelli fyrir Færeyjar Borgarstjórn Þórshafnar hefur samþykkt að verja andvirði tíu milljóna íslenskra króna í að rannsaka nýtt flugvallarstæði á Glyvursnesi. Kanna á hvernig 2.700 til 3.000 metra langri flugbraut af nægilegri breidd til að uppfylla staðla alþjóðaflugvallar verður best komið fyrir á nesinu, sem er aðeins þrjá kílómetra sunnan við höfuðstað Færeyja. 23.6.2024 10:52
Grænlendingar opna nýja alþjóðaflugstöð Stór áfangi næst í flugvallauppbyggingu Grænlands á mánudag þegar ný alþjóðaflugstöð verður opnuð í höfuðstaðnum Nuuk. Byggingin er um áttaþúsund fermetrar að stærð og er henni ætlað að rúma áttahundruð farþega samtímis, fjögurhundruð brottfararfarþega og fjögurhundruð komufarþega. 22.6.2024 12:48
Vísar á heilbrigðisráðherra að borga bílastæðagjöldin Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra vísar því til Willums Þór Þórssonar heilbrigðisráðherra að skoða hvort Sjúkratryggingar geti mætt þeim aukna kostnaði sem ný bílastæðagjöld á innanlandsflugvöllum valda landsbyggðarfólki á leið í læknisheimsóknir. Þetta kom fram í svari hennar við fyrirspurn Þorgríms Sigmundssonar, varaþingmanns Miðflokksins úr Norðausturkjördæmi, á Alþingi í gær. 21.6.2024 11:11
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent