Lögregla fundar með fjölskyldu hinnar látnu í dag Lögreglan á Suðurlandi telur sig vera komna með nokkuð skýra mynd af atburðarrásinni sem leiddi til andláts konu á Selfossi í síðustu viku. Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir öðrum af tveimur mönnum sem handteknir voru í tengslum við andlátið en hinum hefur verið sleppt. Lögregla mun funda með aðstandendum hinnar látnu í dag. 5.5.2023 10:40
Selja íbúðina til að bjarga dóttur sinni af „snargölnum leigumarkaði“ Lára Ómarsdóttir, fyrrverandi fréttakona, segir leigumarkaðinn hér á landi vera kominn út fyrir öll velsæmismörk. Dóttir Láru var í íbúðarleit en eftir að hafa séð hversu dýrt leiguhúsnæði er orðið ákvað Lára að selja eigin íbúð til að geta hjálpað dóttur sinni. 3.5.2023 14:17
Til skoðunar að breyta nafni Hönnunarmars Stærsta hönnunarhátíð landsins, Hönnunarmars hefst í dag. Boðið verður upp á yfir hundrað sýningar víðsvegar um höfuðborgarsvæðið. Til greina kemur að breyta nafninu, enda hefur hátíðin ekki verið haldin í mars síðustu þrjú árin. 3.5.2023 11:50
Hafa ekki náð tali af ungmennunum í tengslum við brunann Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki náð tali af fjórum ungmennum í tengslum við bruna í Drafnarslippnum í Hafnarfirði á mánudagskvöld. Frumniðurstöðu úr rannsókn tæknideildar á tildrögum eldsins er að vænta síðar í dag. 3.5.2023 10:43
Kviknaði í húsi sama eiganda í höfninni fyrir fjórum árum Slökkvistörfum við Hafnarfjarðarhöfn lauk klukkan þrjú í nótt, eftir að eldur kom upp í húsnæði sem til stóð að rífa. Ekkert liggur fyrir um eldsupptök en tæknirannsókn lögreglu fer fram í dag. Annað húsnæði við höfnina í eigu sama aðila brann fyrir fjórum árum. 2.5.2023 14:32
„Súmmerar upp virðingarleysið sem okkur er sýnt“ Formaður VR gagnrýnir verslunareigendur harðlega fyrir að hafa verslanir sínar opnar á baráttudegi verkalýðsins þann 1. maí. Hann segir sérstök 1. maí tilboð súmmera upp virðingarleysið við starfsfólk verslana. 2.5.2023 11:42
Ekki ljóst hvort húsið hafi verið mannlaust Gunnlaugur Jónsson aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir slökkviliði ekki kunnugt um það hvort einhver hafi verið í húsinu sem brann í stórbruna við Hafnarfjarðarhöfn í kvöld. Slökkvistörfum mun ekki ljúka fyrr en í nótt og eru íbúar beðnir um að loka gluggum ef til þarf vegna reyksins. 1.5.2023 22:23
Hugmynd um flýtimeðferð ekki unnin í samráði við SÁÁ Heilbrigðisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær hugmynd um að veita 170 milljónir króna í aðgerðir til að sporna við skaða af völdum ópíóðafíknar. Meðal boðaðra aðgerða var stofnun flýtimóttöku þar sem einstaklingum í bráðum vanda er tryggt aðgengi að gagnreyndri heilbrigðisþjónustu á borð við fráhvarfsmeðferð, vímuefnameðferð eða viðhaldsmeðferð sem mætir þeirra þörfum. Forstjóri Vogs fagnar áformunum en segist ekki hafa heyrt af þeim fyrr en hún las um þau í fjölmiðlum í gær. 29.4.2023 17:49
Lögregla verst alla frétta af mannsláti á Selfossi: Misvísandi sögusagnir í umferð Lögreglan á Suðurlandi verst allra frétta af mannsláti á Selfossi síðdegis í gær. Ung kona sá sig knúna til að setja færslu á samfélagsmiðla og upplýsa um að hún væri ekki sú látna, þar sem sögur þess efnis gengu um bæjarfélagið. 28.4.2023 23:07
„Þegar um ofskömmtun er að ræða þá skiptir hver sekúnda máli“ Sérfræðingur í skaðaminnkun segir löggjöf sem er í gildi draga úr líkum á að fólk hringi eftir viðbragðsþjónustu. Heilbrigðisráðherra segir ekki samstöðu innan ríkistjórnarinnar varðandi afglæpavæðingu neysluskammta. 28.4.2023 19:18