Jóladagatal Vísis: Klassísk íslensk rómantík undir ljúfum tónum Nylon stúlkna Í stressinu og hraðanum í desember er nauðsynlegt að gefa sér tíma inn á milli til að setjast niður, kveikja á kertum, láta ljúfa tóna á fóninn og slaka á. Lag dagsins í dag, 6. desember er einmitt hugsað fyrir slíka stemningu. 6.12.2022 07:00
Jóladagatal Vísis: Tískumyndband varð að tónlistarmyndbandi með vinsælustu hljómsveit landsins 5. desember er runninn upp og við fögnum því með fersku lagi úr Jóladagatali Vísis. Lag dagsins er sannarlega ekki af verri endanum. Að okkar mati er um að ræða fullkomið mánudagslag til að koma okkur í rétta gírinn og hrista af okkur mögulegt slen eftir helgina. 5.12.2022 07:01
Helmingur barnanna á íslenska SOS-foreldra Helmingur barna á barnaheimili í Lilongve, höfuðborg Malaví, á íslenska SOS-foreldra. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti barnaþorpið í dag. 4.12.2022 23:28
Hefja leit að nýju við birtingu Leitinni að skipverja sem féll útbyrðis síðdegis í gær var frestað á tíunda tímanum í kvöld, en leit hefur ekki borið neinn árangur. Varðskipið Þór verður á svæðinu í nótt og mun áhöfn þess hefja leit aftur í birtingu. 4.12.2022 22:44
Fyrsti bráðalæknir landsins útskrifaður Rosemary Lea Jones er sú fyrsta hér á landi sem lýkur námi í bráðalækningum. Hún útskrifaðist formlega úr sérnámi á Landspítalanum 2. desember. 4.12.2022 21:36
Uppþvottavél brann yfir í húsnæði FÍH Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var með talsverðan viðbúnað við húsnæði FÍH í Rauðagerði seinni partinn í dag þegar eldur kviknaði út frá uppþvottavél og mikinn reyk lagði um húsnæðið. Að sögn formanns félagsins fór betur en á horfðist og góð viðvörunarkerfi hafi sannað gildi sitt. 4.12.2022 21:11
Segir stöðuna þunga og viðurkennir sundrung innan ASÍ Forseti ASÍ segir stöðuna í kjaramálum mjög þunga. Tíminn þurfi að leiða í ljós hvort beita þurfi átökum til að knýja fram samninga fyrir hans hóp. 4.12.2022 20:47
Mikill viðbúnaður slökkviliðs í Rauðagerði Lögregla og slökkvilið eru með mikinn viðbúnað við Rauðagerði í Reykjavík þessa stundina. Aðgerðirnar standa yfir við bakhús húss Félags íslenskra hljómlistarmanna, FÍH. Búið er að ráða niðurlögum elds sem kviknaði inni í húsinu en reykræsting stendur enn yfir. 4.12.2022 19:27
Þyrlur hættar leit en skip halda áfram fram eftir kvöldi Leit stendur enn yfir að skipverjanum sem féll útbyrðis af fiskiskipi á utanverðum Faxaflóa síðdegis í gær, þrátt fyrir að komið sé fram í myrkur. 4.12.2022 18:28
Sakar aðila innan Eflingar um að hafa lekið upplýsingum til fjölmiðla Vilhjálmur Birgisson er harðorður í garð Sólveigar Önnu, formanns Eflingar í nýjum pistli sem hann birti fyrir stundu á Facebook síðu sinni. Þar ýjar hann að því að aðili innan Eflingar hafi lekið upplýsingum til fjölmiðla á meðan kjaraviðræður voru á viðkvæmu stigi með það að markmiði að skemma þá vinnu sem unnið var að og afvegaleiða það sem var verið að semja um. Hann segist sorgmæddur og dapur að sjá fólk sem hann taldi góða vini sína stinga sig í bakið. 4.12.2022 18:16