Lögreglan óskar þess að ná tali af manni vegna samskipta við barn Lögreglan á Suðurlandi óskar þess að ná tali af manni sem sagður er hafa gefið sig á tal við stúlkubarn á leið suður eftir göngustíg við Fosstún á Selfossi (milli Fosstúns og Þóristúns), til móts við hús nr. 8. upp úr kl. 17:00 í gær. 15.11.2022 15:19
Styrkja en tryggja ekki fólk með sykursýki: „Gerið betur, í alvöru talað“ Færsla sem tryggingarfélagið Vörður birti á samfélagsmiðlum í gær fór öfugt ofan í marga sem þjást af sykursýki. Alþjóðlegur dagur sykursýki var í gær og Vörður minnti af því tilefni á Dropann, styrktarfélag barna sem greinst hafa með sykursýki. „Við látum okkur þetta málefni varða og styrkjum Dropann með stolti“, segir í færslu Varðar. Félagið tryggir hins vegar hvorki börn né fullorðna með sykursýki. 15.11.2022 12:57
Innkalla sólblómafræ vegna skordýra Krónan hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarnes kallað inn sólblómafræ frá Grön Balance. Í tilkynningu frá Krónunni kemur fram að ástæða innköllunarinnar sé sú að skordýr hafi fundist í vörunni. 14.11.2022 12:46
Lögreglan lýsir eftir Friðfinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Friðfinni Frey Kristinssyni, 42 ára. 14.11.2022 11:04
Helga Dögg nýr rekstrarstjóri hjá Expectus Hugbúnaðarfyrirtækið Expectus hefur ráðið Helgu Dögg Björgvinsdóttur í stöðu rekstrarstjóra (COO). Hún hefur þegar tekið til starfa. Expectus sérhæfir sig í ráðgjöf til fyrirtækja varðandi nýtingu upplýsingatækni við ákvarðanatöku og áætlanagerð til að ná mælanlegum árangri í rekstrinum. 14.11.2022 10:59
Faðirinn alvarlega vanræktur á Sunnuhlíð og móðirin lést úr sorg Dóttir manns sem lést í kjölfar alvarlegrar vanrækslu og mistaka á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi fyrir fimm árum lýsir kaldranalegu viðmóti forstjóra heimilisins. Ekki hafi verið tekið mark á fjölskyldumeðlimum sem upplifðu manninn sárkvalinn og oflyfjaðan. Hún segir móður sína aldrei hafa jafnað sig á meðferðinni á eiginmanni sínum og hafi í raun látist úr sorg. 12.11.2022 07:00
Afsláttardagar alltaf að stækka: „Enginn dagur sem sker sig jafn mikið úr“ Einn stærsti dagur afsláttardagur ársins er í dag, svokallaður Singles day eða Dagur einhleypra. Sífellt fleiri landsmenn nýta sér alþjóðlega afsláttardaga í nóvember til að hefja og jafnvel klára jólainnkaup. Framkvæmdastjóri Samtaka verslunar og þjónustu segir mikilvægt að hafa umhverfisáhrif í huga þegar verslað sé af erlendum netverslunum. 11.11.2022 12:46
Ritstjóri Húsa og híbýla og Gestgjafans lætur af störfum: „Margt spennandi framundan“ Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir er hætt sem ritstjóri tímaritanna Hús og Híbýla og Gestgjafans. Útgáfufélagið Birtíngur gefur út tímaritin en Hanna hefur verið ritstjóri Gestgjafans síðan árið 2016. Hún tók einnig við ritstjórn Hús og híbýla árið 2019. 10.11.2022 16:33
Umsóknir um aðstoð vegna fjárhagsvanda ekki verið fleiri það sem af er ári Sífellt fleiri leita til umboðsmanns skuldara vegna fjárhagsvanda. Metfjöldi fólks sótti um aðstoð hjá embættinu í síðasta mánuði. Formaður Neytendasamtakanna segir aukin yfirdráttarlán mælikvarða á stöðu heimilanna. 10.11.2022 14:00
Óvissa varðandi leikskólann Hlíð: „Erum í raun á hrakhólum“ Loka þurfti stærstum hluta húsnæðis leikskólans Hlíðar í lok október vegna myglu. Börn, foreldrar og starfsfólk þurfa að ferðast langar leiðir daglega á leikskóla í önnur hverfi borgarinnar. Bugaðir foreldrar þrýsta á Reykjavíkurborg og vilja að mögulega verði slakað á kröfum tímabundið varðandi húsnæði. 9.11.2022 15:00