Segir árásargjarna hrúta sitja um heimilið sitt Lausaganga hrúta í Vogum á Vatnsleysuströnd hefur orðið tilefni talsverðrar óánægju meðal íbúa. Baldur Gunnarsson íbúi í bænum segir hrútavandann hafa verið viðvarandi síðustu ár og árásargjarnir hrútar hafi setið um heimili hans síðustu daga. 19.6.2024 11:45
Íslendingur sagður alvarlega særður í nautaatsslysi Íslenskur maður á fimmtugsaldri særðist á nautaatsviðburði í gær í bænum Jávea nálægt Alicante á Spáni. Við upphaf svokallaðs bous al carrer, þar sem nautum er sleppt á afmörkuðum götum bæja, varð hann fyrir árás eins nautsins og fékk stærðar horn í gegnum lærið. 19.6.2024 10:47
Eldisseiði hafi átt greiða leið úr stöðinni í Tálknafirði Matvælastofnun telur að ekki hafi verið til staðar nægjanlegur mannskapur til að sinna fyrsta viðbragði í kjölfar stroks eldislax úr fiskeldisstoð Arctic Smolt ehf. í Norður-Botni þann 24. maí 2024. Samkvæmt Matvælastofnun voru aðeins tveir starfsmenn á svæðinu umrætt kvöld. 19.6.2024 09:56
Hætta hraunkælingu og meta stöðuna í dag Slökkviliðsmenn í Grindavík hafa hætt að dæla vatni yfir hraunið sem teygði sig upp yfir varnargarðinn við Svartsengi. Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna segir fyrsta hraunkælingaraðgerð frá Heimaeyjargosinu hafa verið tilraun en að þegar hafi verið búið að stöðva framgang hraunsins. 19.6.2024 09:15
Styttir upp í kvöld Í morgunsárið er lægð rétt suður af landinu og því er norðaustlæg eða breytileg átt í dag. Vindur er á bilinu fimm til þrettán metra á sekúndu og er hvassast við suðausturströndina og á Vestfjarðakjálkanum. 19.6.2024 08:17
Hraunkælingin ekki gengið snurðulaust fyrir sig Slökkviliðsmenn á vegum Brunavarna Suðurnesja voru í nótt að dæla vatni á hraun við varnargarðinn við Svartsengi. Kælingin hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig þar sem upp komu vandræði með vatnsþrýstinginn. 19.6.2024 07:43
Hafnarsvæðinu lokað vegna ammóníaksleka á Tálknafirði Hafnarsvæðinu á Tálknafirði hefur verið lokað vegna ammóníaksleka í gömlu frystihúsi. Útkallið barstslökkviliðinu í Vesturbyggð um þrjú í nótt frá vegfarendum sem urðu varir við stækjuna. 19.6.2024 07:26
Hraunkælingin gengur vel og heldur áfram í alla nótt Slökkvilið Grindavíkur hóf fyrr í kvöld ásamt úrvalsliði viðbragðsaðila að dæla vatni yfir hraun sem hóf að teygja sig yfir varnargarðinn við Svartsengi. Um er að ræða fyrstu hraunkælingu af þessu tagi síðan í Heimaeyjargosinu. 18.6.2024 22:50
Rúmlega 500 látnir vegna hita í Mekka Að minnsta kosti 550 pílagrímar sem voru í hinni árlegu hajj-pílagrímsför til Mekka hafa látið lífið vegna hitans sem farið hefur upp fyrir fimmtíu gráður. 18.6.2024 21:58
Ísland eyði ekki krónu í markaðssetningu til ferðamanna Daði Guðjónsson, forsöðumaður markaðssamskiptasviðs Íslandsstofu, segir alvarlega stöðu blasa við í ferðamannaiðnaðinum. Áhugi erlendra ferðamanna á Íslandi sem og bókanir dvína og samdráttur á þeim markaði gæti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. 18.6.2024 21:01