Vilja að KKÍ og íþróttahreyfingin yfir höfuð taki tillit til allra kynja Tillaga þess efnis að stráka- og stelpnalið fái að keppa í sama flokki á Íslandsmótinu í körfubolta til 14 ára aldurs var felld á ársþingi KKÍ í dag. Það virðist þó sem sambandið sé tilbúið að skoða kynjablöndun í yngri flokkum á komandi misserum. 13.3.2021 20:31
Dortmund nálgast Meistaradeildarsæti Borussia Dortmund vann torsóttan 2-0 sigur á Herthu Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 13.3.2021 19:46
Hörmulegt gengi Everton á heimavelli heldur áfram Jóhann Berg Guðmundsson var í byrjunarliði Burnley er liðið sótti sigur á Goodison Park í Liverpool-borg í kvöld, lokatölur 2-1 Burnley í vil. Gylfi Þór Sigurðsson var á varamannabekk Everton en kom ekki við sögu í dag. 13.3.2021 19:25
Mikilvægur sigur hjá Fraport í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni Jón Axel Guðmundsson og félagar hans í Fraport Skyliners unnu nauman en mikilvægan sigur á Giessen í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag. 13.3.2021 18:50
Erlendum leikmönnum verður ekki fækkað: Tillagan felld Tillaga um takmarkamir á erlendum leikmönnum í körfuboltaliðum landsins var fellt á ársþingi Körfuknattleikssambands Íslands sem fram fór í dag. 13.3.2021 18:32
Selfoss með óvæntan sigur á Stjörnunni, létt hjá Val ásamt öðrum úrslitum Þremur leikjum til viðbótar í Lengjubikar karla er nú lokið. Selfoss vann Stjörnuna 2-1, Valur vann HK 3-0, ÍBV vann Fjölni í Grafarvoginum. Í kvennaflokki gerðu Þróttur Reykjavík og ÍBV 2-2 jafntefli. 13.3.2021 18:15
Fyrirliði Fylkis sá rautt fyrir að klípa í pung Olivers Ragnar Bragi Sveinsson, fyrirliði Fylkis, fékk rautt spjald í 2-1 tapi liðsins gegn Breiðabliki i Lengjubikar karla fyrr í dag. Spjaldið fékk hann fyrir að klípa í pung Olivers Sigurjónssonar, leikmanns Breiðabliks. 13.3.2021 17:50
Benzema steig upp á ögurstundu og hélt titilvonum Real á lífi Real Madrid vann dramatískan 2-1 sigur gegn Elche í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Enn og aftur var það Karim Benzema sem kom heimamönnum í Real til bjargar. Segja má að hann sé að halda titilvonum liðsins á lífi. 13.3.2021 17:15
Jón Daði kom inn af bekknum í sigri á lærisveinum Waynes Rooney Jón Daði Böðvarsson lék síðustu sex mínúturnar er Millwall lagði Derby County á útivelli 1-0 í ensku B-deildinni í knattspyrnunni. 13.3.2021 17:05
Duglegasti leikmaður Everton, enginn betri í að klára færi og enn notaður sem fyrirmynd hjá Reading Íþróttavefurinn The Athletic fór nýverið yfir mikilvægi Gylfa Þórs Sigurðssonar í Everton-liði sem hefur komið verulega á óvart það sem af er leiktíð. Er talið að reynsla og yfirvegun íslenska miðjumannsins sé eitthvað sem Carlo Ancelotti – stjóri Everton – hrífst af. 13.3.2021 09:01