Einvígi Rangers og Royal Antwerp í Evrópudeildinni setti met Rangers vann 5-2 sigur á Royal Antwerp í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld. Um er að ræða met í fjölda marka í einvígi í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar en fyrri leik liðanna lauk 4-3 Rangers í vil. 25.2.2021 22:45
Leicester City óvænt úr leik og AC Milan skreið áfram Öllum leikjum 32-liða úrslita Evrópudeildarinnar er nú lokið. Leicester City féll óvænt úr leik eftir 0-2 tap á heimavelli gegn Slavia Prag og þá fór AC Milan áfram þökk sé útivallarmörkum gegn Rauðu Stjörnunni. 25.2.2021 22:15
Lindelöf rændi Tuanzebe marki í markalausu jafntefli Man United og Real Sociedad Manchester United er komið áfram í 16-liða úrslit Evrópudeildarinnar eftir markalaust jafntefli gegn Real Sociedad á Old Trafford í kvöld. Man Utd vann fyrri leik liðanna 4-0 og fer því þægilega áfram. 25.2.2021 21:55
Íslendingarnir með stórleik í öruggum sigri Magdeburg Ómar Ingi Magnússon og Gísli Þorgeir Kristjánsson létu heldur betur til sín taka er Magdeburg vann sex marka sigur á Tusem Essen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 34-28. Alls skoruðu Ómar Ingi og Gísli Þorgeir sextán mörk í leiknum. 25.2.2021 20:45
Kjartan Henry skoraði er Esbjerg tapaði Íslendingaslagnum Alls komu þrír Íslendingar við sögu er Silkeborg lagði Esbjerg í stórleik dönsku B-deildarinnar í kvöld. Nú munar aðeins tveimur stigum á liðunum í öðru og þriðja sæti deildarinnar. 25.2.2021 20:16
Björn Bergmann í byrjunarliðinu er Molde komst áfram Landsliðsframherjinn Björn Bergmann Sigurðarson var í byrjunarliði Molde er liðið vann 2-0 útisigur á Hoffenheim í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld og tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum keppninnar. 25.2.2021 20:01
Aubameyang hetja Arsenal í endurkomusigri Arsenal vann 3-2 sigur á Benfica er liðin mættust í Grikklandi í síðari leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli og Arsenal því komið áfram í 16-liða úrslit keppninnar. 25.2.2021 19:45
Landsliðskonan Sara Rún til liðs við Hauka Sara Rún Hinriksdóttir hefur náð samkomulagi við Hauka um að leika með liðinu út tímabilið í Dominos-deild kvenna í körfubolta. Þar hittir hún fyrir systur sína, Bríeti Sif. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Hauka nú í kvöld. 25.2.2021 19:39
„Mjög áríðandi fyrir okkur að fá sem flesta inn í húsin, því fyrr því betra,“ Íþróttahreyfingin fagnaði þegar 200 áhorfendur voru leyfðir á kappleikjum hér á landi en þar með er ekki öll sagan sögð. Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ, fór yfir stöðuna í Sportpakka kvöldsins á Stöð 2. 25.2.2021 19:00
Valencia vann stórsigur í Rússlandi Martin Hermannsson og félagar í Valencia unnu frábæran 29 stiga sigur á Zenit St. Pétursborg í EuroLeague í körfubolta í kvöld, lokatölur 62-91. 25.2.2021 18:56