Þriðja hitabylgjan nálgast: Hiti gæti náð 45 gráðum á Spáni Spáð er að þriðja stóra hitabylgja sumarsins skelli á Spáni í næstu viku. Hiti byggist upp frá deginum í dag, hitabylgja verður ríkjandi frá þriðjudegi og mun hiti ná hámarki á fimmtudaginn, samkvæmt spám. 18.7.2026 19:19
Lögregla klippti á plöturnar Lögreglumenn á höfuðborgarsvæðinu stöðvuðu í dag ökumann sem ekki hafði staðið skil á vátryggingargreiðslu. Var skráningarmerki bifreiðarinnar, oft í daglegu tali kallað númeraplata, fjarlægt og bíllinn þannig tekinn úr umferð. 18.7.2026 18:22
Áhrifavaldur losar sig við steinefni Arnar Gauti Arnarson, markaðsstjóri Happy Hydrate, greinir frá því í tilkynningu að félagið hafi verið selt til hóps fjárfesta. Arnar Gauti, sem lesendur þekkja ef til vill betur sem Lil Curly, var áður í eigandahópi fyrirtækisins. 18.7.2026 00:10
„Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Katrín Oddsdóttir lögmaður, sem meðal annars hefur látið sig dýravelferð varða, gagnrýnir harðlega niðurstöðu Matvælastofnunar (MAST) um að ekki hafi verið brotið gegn lögum um velferð dýra þegar langreyður háði hálftíma langt dauðastríð. Katrín vill sjá harðari aðgerðir af hálfu MAST, líkt og beitingu stjórnvaldssekta. 17.7.2026 23:36
Segir erfitt að horfa upp á nágranna missa aleiguna Fjöldi íbúða og heimila sem tapast hafa í stórbruna í Drammen í Noregi er kominn yfir hundrað. Arnar Jakobsson, sem búsettur hefur verið í Noregi síðastliðin tuttugu og sex ár, segist hafa mætt lögreglu- og slökkviliðsbíl um klukkan 15:35 síðdegis að staðartíma. „Þá leit ég upp í brekku og sá alelda hús,“ segir Arnar. 17.7.2026 21:48
Kvöldfréttir Sýnar í beinni Forstjóri Icelandair segir það góðar fréttir að tímabundin sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Evrópusambandsins hafi verið framlengd. Varanleg lausn þurfi þó að koma til. Við hittum Boga Nils Bogason í kvöldfréttum. 17.7.2026 18:38
Rúmlega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen Rúmlega fimmtíu heimili og íbúðir eru brunnin til grunna í bænum Drammen, sem staðsettur er tæplega 50 kílómetra suðvestur af Ósló. Samkvæmt yfirlýsingu slökkviliðs hefur enn ekki verið náð stjórn á brunanum. 17.7.2026 18:29
Allt að fjörutíuföld mengun við skemmtiferðaskip Loftmengun í grennd við skemmtiferðaskip í höfn getur mælst 35 til 40 föld miðað við heilsuverndarmörk. Þörf er á uppsetningu innviða svo skipin geti tengst rafmagni þegar þau liggja við höfn og reglusetningu um notkun hreinni eldsneytisgjafa, samkvæmt sérfræðingi. 16.7.2026 17:03
Tengivagn valt á Vesturlandsvegi Lögregla var kölluð til á fjórða tímanum vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi þar sem flutningabíl með tengivagn í eftirdragi hafði misst tengivagninn út af svo hann valt. 15.7.2026 16:13
Vilja reisa 140 stúdentaíbúðir á Kársnesi FS, Félagsstofnun stúdenta, hefur sent skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar erindi um uppbyggingu 144 stúdentaíbúða á Kársnesi. Um er að ræða einstaklingsíbúðir sem að meðaltali verða tuttugu og níu fermetrar að stærð. Í samtali við Heiði Önnu Helgadóttur framkvæmdastjóra FS kemur fram að stöðug vöntun sé á stúdentaíbúðum. 15.7.2026 15:53