Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Mál Steinu fer fyrir Hæsta­rétt

Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir mál Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðings, málið hafi verulega almenna þýðingu. Steina var í lok febrúar sakfelld í Landsrétti fyrir manndráp af gáleysi.

Sósíal­isti fékk boðs­ferð til Kína

Sæþór Benjamín Randalsson, formaður framkvæmdastjórnar Sósíalistaflokks Íslands, hefur fengið boð í átta daga ferð til Kína. Sæþór þakkar djúpan áhuga sinn á Kína því að hann hafi verið valinn sem fulltrúi Íslands á ráðstefnu fyrir unga evrópska leiðtoga. Sæþór hlakkar til að upplifa það öryggi sem ríkir í Kína og ferðast með háhraðlest.

No Borders hvetja til and­spyrnu gegn brottfararstöð

„Við hvetjum almenning til að hafna þessum lögum og beita öllum ráðum við að koma í veg fyrir að þau verði færð í framkvæmd,“ segja samtökin No Borders í yfirlýsingu í tengslum við lög sem samþykkt voru á Alþingi í dag sem heimila stjórnvöldum að setja á fót svokallaða brottfararstöð. Samtökin hafa meðal annars beitt sér fyrir réttindum flóttafólks.

Ótta­slegnir í­búar binda vonir við nýjan meiri­hluta

Fimm kærur hafa verið lagðar fram vegna fyrirhugaðs flutnings Kaffistofu Samhjálpar að Grensásvegi 46. Íbúar lýsa yfir áhyggjum af því að starfsemi verði hafin í húsinu áður en niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála liggur fyrir. Undirskriftasöfnun stendur yfir á island.is og hópur íbúa krafði framboðin um svör fyrir borgarstjórnarkosningar.

Að­stoðuðu ferða­menn að Fjalla­baki

Björgunarsveitir á Suðurlandi voru í nótt boðaðar út til aðstoðar ferðalöngum sem treystu sér ekki til að halda för áfram. Björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli ásamt Stjörnunni í Skaftártungu og Kyndli á Kirkjubæjarklaustri voru boðaðar út og héldu inn á Fjallabak úr sitthvorri áttinni.

Flug­menn og Icelandair funda á morgun

Fundað verður í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan 16 á morgun. Í samtali við fréttastofu segir Ástráður Haraldsson, ríkissáttasemjari, að ekki sé vitað hvort deiluaðilar færist nær hvor öðrum. Skýrari mynd fáist á það á fundinum.

Gæslan fylgist grannt með rúss­nesku skipi

Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov er undir eftirliti Landhelgisgæslu Íslands en skipið er þessa stundina á siglingu vestur af landinu. Það sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun en er með takmarkaðan vopnabúnað. Engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu.

Sjá meira