Hvað þarf að gerast í dag til að Ísland eigi enn von um að komast á HM í Katar? Óhætt er að segja að möguleikar Rúmeníu séu margfalt betri en Íslands á að komast á HM karla í fótbolta í Katar á næsta ári. Liðin mætast í Búkarest í kvöld í næstsíðustu umferðinni í J-riðli undankeppninnar. 11.11.2021 10:31
„Væri að ljúga ef ég segði að þetta ár hefði ekki tekið á“ „Þetta er alla vega búið að vera krefjandi ár en mjög lærdómsríkt,“ segir Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona í fótbolta. Covid-19 og ítrekuð meiðsli í læri hafa varpað skugga á fyrsta ár hennar í atvinnumennsku en hún er staðráðin í að sýna hvað hún getur á næsta ári. 11.11.2021 09:31
Emil segir lán í óláni að hjartað skyldi stoppa innan vallar: Var dáinn í fjórar mínútur Emil Pálsson ræddi í dag við fjölmiðla í fyrsta sinn eftir að hann fór í hjartastopp í fótboltaleik í Noregi í síðustu viku. Hann kveðst afar heppinn að vera á lífi. 10.11.2021 16:09
Iceland lofar að senda Daníel heim heilan heilsu í þetta sinn Breska matvöruverslanakeðjan Iceland var fljót að bregðast við óvenjulegum fyrirmælum varðandi íslenska landsliðsmanninn Daníel Leó Grétarsson. 10.11.2021 14:00
Vallarþulur setti svip á fullkominn endi hjá Sif: „Geturðu grjóthaldið kjafti?“ „Miðað við allt saman þá var þetta hinn fullkomni endir,“ segir Sif Atladóttir um dramatískan kveðjuleik sinn með Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Annað árið í röð endaði Íslendingaliðið í 3. sæti og tryggði sér sæti í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. 10.11.2021 12:31
Vorum ekki alveg nógu þroskaðir síðast Einn leikmaður gat ekki tekið þátt í æfingu íslenska karlalandsliðsins í Rúmeníu í dag en annars er staðan á hópnum góð. Ísland mætir Rúmeníu á fimmtudagskvöld, í undankeppni HM í fótbolta, og þarf að gera betur en í 2-0 tapinu á Laugardalsvelli í september. 9.11.2021 16:30
Álagsmeiðsli há Mikael: „Alls ekki erfiður í samskiptum“ Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari segist hafa átt góð samskipti við Mikael Anderson. Meiðsli valdi því að Mikael sé ekki í landsliðinu núna og það bitni ekki á honum að hafa afþakkað boð Arnars í U21-landsliðið fyrir ári síðan. 9.11.2021 14:33
„Auðvitað ekki eðlilegt að félagið eigi ekki heimavöll sem hægt er að spila á“ Langri bið KA-manna eftir nýjum heimavelli lýkur ekki á næsta ári og útlit er því fyrir að félagið þurfi að leita á náðir Dalvíkinga líkt og á síðustu fótboltaleiktíð. Bæjaryfirvöld á Akureyri hyggjast þó koma til móts við KA með því að flýta framkvæmdum. 9.11.2021 10:01
Fékk rautt spjald fyrir að skamma eigin leikmann Knattspyrnuþjálfari á Spáni missti stjórn á skapi sínu og húðskammaði einn af leikmönnum sínum svo illa að þjálfarinn fékk að líta rauða spjaldið. 8.11.2021 16:00
Fyrirliði Svía tekur undir gagnrýni Þorsteins Ísland og Svíþjóð spila á tveimur minnstu leikvöngunum á EM kvenna í fótbolta næsta sumar. Ekki eru allir á eitt sáttir við það að spilað sé á leikvöngum sem aðeins rúma nokkur þúsund manns. Karl-Erik Nilsson, varaforseti UEFA, segir hægt að skoða það að skipta um velli. 8.11.2021 13:01