Brynjólfur til Noregs eftir EM: Leikmaður sem stuðningsmenn gætu dýrkað Knattspyrnumaðurinn Brynjólfur Andersen Willumsson er orðinn leikmaður Kristiansund en norska félagið er sagt kaupa Brynjólf fyrir metfé. 9.3.2021 15:23
Erlendir áhorfendur bannaðir á ÓL í Tókýó Japönsk stjórnvöld hafa ákveðið að erlendir áhorfendur fái ekki að mæta á Ólympíuleikana eða ólympíumót fatlaðra í Tókýó í sumar, vegna kórónuveirufaraldursins. 9.3.2021 13:35
Með tvo „ótrúlega skemmtilega“ kosti en vinnuveitendur Alfonsar á báðum áttum Síðar í þessum mánuði fer Alfons Sampsted annað hvort í sjálfa lokakeppni EM með U21-landsliðinu í fótbolta, eða í fyrstu leiki A-landsliðsins í undankeppni HM í Katar. Það er að segja ef vinnuveitendur hans í Noregi gefa grænt ljós en ef svo verður ekki ætlar Alfons að eiga langan fund með þeim. 9.3.2021 10:01
Strákarnir okkar ekki til Ísraels að sinni Það verður einhver bið á því að íslenska karlalandsliðið í handbolta tryggi sér endanlega farseðilinn á næsta Evrópumót en leik liðsins við Ísrael í undankeppninni hefur verið frestað. 8.3.2021 16:31
Slæm byrjun Ragnars í Úkraínu Landsliðsmiðvörðurinn Ragnar Sigurðsson lék aðeins fyrri hálfleik og gerði ein slæm mistök í fyrsta leik sínum fyrir úkraínska knattspyrnufélagið Rukh Lviv í dag. 8.3.2021 14:31
Heimsmeistarinn þakklátur Sunnu fyrir að róa taugarnar Norski skíðakappinn Jarl Magnus Riiber fór heim með tvenn gullverðlaun og tvenn silfurverðlaun í norrænni tvíkeppni af heimsmeistaramótinu í norrænum greinum í Þýskalandi. Hann segir akureyska kærustu sína, Sunnu Margrétu Tryggvadóttur, og dótturina Ronju eiga sinn þátt í uppskerunni. 8.3.2021 12:31
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 90-79 | Frábær seinni hálfleikur heimamanna Stjörnumenn eru aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Keflavíkur eftir að hafa snúið leiknum við Val sér í vil í seinni hálfleik í kvöld. Valsmenn voru ellefu stigum yfir í hálfleik en Stjarnan vann með ellefu stigum, 90-79. 5.3.2021 23:20
Vantar meiri þekkingu á milli manna og ekki hægt að bíða mikið lengur „Blóðþrýstingurinn er alltaf hár í þessu sporti, sérstaklega eins og deildin er núna og hvernig allt tímabilið er búið að vera,“ segir Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sem er með liðið utan úrslitakeppni og í afar erfiðri leikjatörn. Valur tapaði fyrir Stjörnunni í kvöld eftir að hafa verið ellefu stigum yfir í hálfleik. 5.3.2021 22:52
Brynjólfur sagður stinga sér til Kristiansunds fyrir metfé Norska úrvalsdeildarfélagið Kristiansund hefur náð samkomulagi við Breiðablik um kaup á knattspyrnumanninum unga Brynjólfi Andersen Willumssyni. 5.3.2021 16:30
Strangari reglur fyrir suðvesturhornið í tillögu um erlenda leikmenn Fjögur körfuknattleiksfélög hafa lagt fram tillögu um breytingar á reglum um erlenda leikmenn í mótum á Íslandi. Tillagan verður tekin fyrir á ársþingi KKÍ eftir rúma viku. 5.3.2021 14:31