Sautján ára forystusauður og Guðrún tveimur höggum á undan Ólafíu Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir er með tveggja högga forskot á Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur eftir tvo hringi af þremur á ÍSAM-mótinu í golfi í Mosfellsbæ. Áhugakylfingurinn Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR er efstur í karlaflokki. 16.5.2020 18:59
Gladbach með í titilbaráttunni Borussia Mönchengladbach er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Bayern München eftir 3-1 sútisigur gegn Eintracht Frankfurt í þýsku 1. deildinni í fótbolta í dag. 16.5.2020 18:38
Valdís tekjulaus í marga mánuði: „Fell á milli alls staðar í kerfinu“ „Það er erfitt að vera tekjulaus í marga mánuði, og ég sé fram á 5-7 mánuði án tekna núna,“ segir Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur, sem vegna kórónuveirufaraldursins getur ekki leikið á móti erlendis eins og hún ætlaði sér. 16.5.2020 18:00
Grindavík fær góðan liðsstyrk úr Njarðvík Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson hefur skrifað undir samning við Grindavík um að spila í gula búningnum á næstu leiktíð í Domino's-deildinni í körfubolta. 16.5.2020 17:43
Selfoss fær mikinn liðsstyrk frá PSV Landsliðskonan Anna Björk Kristjánsdóttir hefur samið við knattspyrnudeild Selfoss og mun leika með liði félagsins í sumar. Hún kemur til félagsins frá PSV Eindhoven í Hollandi. 16.5.2020 17:31
McIlroy gagnrýnir Trump og vill ekki spila aftur við hann Norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy segist ekki hafa áhuga á því að spila aftur golf við Donald Trump, Bandaríkjaforseta, og efast reyndar um að hann fái aftur slíkt boð eftir að hafa sett út á það hvernig Trump hefur tekist á við kórónuveirufaraldurinn. 16.5.2020 07:00
Dagskráin í dag: Jón Arnór í Dallas, Auðunn heimsækir atvinnumenn og perlur úr enska bikarnum Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. 16.5.2020 06:00
Keflvíkingar grilluðu fyrir framlínufólk „Það er gaman að geta gert eitthvað svona fyrir framlínufólkið okkar,“ segir Kristján Helgi Jóhannsson, stjórnarmaður í körfuknattleiksdeild Keflavíkur, en deildin bauð heilbrigðisstarfsfólki upp á grillaða hamborgara til að sýna þakklæti fyrir störf þess á tímum kórónuveirufaraldursins. 15.5.2020 23:00
Rúnar fékk skýrsluna um Motherwell á kaffifilter Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, rifjaði upp Íslandsmeistaraárið 2014 með Gumma Ben í Sportinu í kvöld. Stjörnumenn náðu einnig afar langt í Evrópukeppni það ár. 15.5.2020 22:00
Valur, Reggie og Ágúst með Keflavík næsta vetur Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við Val Orra Valsson, Reggie Dupree og Ágúst Orrason um að spila áfram fyrir liðið á næstu leiktíð í Domino's-deildinni. 15.5.2020 21:42