Brutust inn til Alli og ógnuðu honum með hníf Þjófar brutust inn á heimili Dele Alli, leikmanns Tottenham, síðustu nótt. Þeir ógnuðu honum með hníf og kýldu knattspyrnumanninn í andlitið áður en þeir höfðu með sér skartgripi og úr á brott. 13.5.2020 21:00
Segir félög vanáætla eða ljúga um launakostnað: „Þá værum við bara í mansali“ Hluti körfuknattleiksfélaga á Íslandi vanáætlar stórlega launakostnað vegna leikmanna, svindlar á þeim eða vill halda kostnaðinum leyndum. 13.5.2020 20:00
Sterkasta golfmót allra tíma hér landi? Skærustu stjörnur golfíþróttarinnar hér á landi verða á ferðinni í Mosfellsbæ á laugardag og sunnudag þegar ÍSAM-mótið fer fram. Þar gæti verið um að ræða fyrsta mótið sem telur inn á heimslista áhugakylfinga frá því að kórónuveirufaraldurinn setti allt íþróttalífið úr skorðum. 13.5.2020 19:30
Lyon verið í sambandi við Söru í tvö ár Besta knattspyrnulið Evrópu síðustu ár, Lyon, hefur verið í sambandi við landsliðsfyrirliðann Söru Björk Gunnarsdóttur síðustu tvö ár. Sara yfirgefur Wolfsburg í sumar og hefur verið sterklega orðuð við Lyon. 13.5.2020 19:00
Kanóna til Vals frá KR Valskonur hafa fengið mikinn liðsstyrk fyrir næstu körfuboltaleiktíð því Hildur Björg Kjartansdóttir hefur skrifað undir samning við Hlíðarendafélagið. 13.5.2020 18:04
Leikmönnum sagt að líta undan eftir tæklingar Ef að keppni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á að geta hafist að nýju á næstunni þurfa leikmenn að vera tilbúnir að gera ákveðnar breytingar á sínum leik, til að mynda að líta undan eftir tæklingar í stað þess að snúa andlitum saman, til að minnka smithættu. 13.5.2020 07:00
Dagskráin í dag: Alþingismaður mætir til Rikka og velur sitt úrvalslið Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. 13.5.2020 06:00
Guðjón sótti próflausan Fúsa á æfingar: „Vitað hvað þú myndir ná langt“ „Rússajeppinn“ Sigfús Sigurðsson sendi félaga sínum Guðjóni Val Sigurðssyni skemmtilega kveðju eftir að Guðjón ákvað að leggja handboltaskóna á hilluna. 12.5.2020 23:00
Þórsarar fá Stojanovic en missa Baldur Þór Akureyri hefur fengið til sín serbneska framherjann Srdjan Stojanovic sem lék með Fjölni síðustu tvö tímabil. Baldur Örn Jóhannesson er hins vegar farinn frá Þór til Njarðvíkur. 12.5.2020 22:33
Ekki hægt að æfa frjálsar utanhúss í Reykjavík: „Afleiðing ákvarðanaleysis“ Ekki er hægt að stunda frjálsar íþróttir utanhúss í Reykjavík í dag svo að vel sé. Eina hlaupabrautin í borginni, á Laugardalsvelli, er ónýt eftir veturinn og tafir hafa orðið á því að nýr völlur í Mjódd verði tilbúinn. 12.5.2020 22:00