Fréttamaður

Smári Jökull Jónsson

Smári Jökull er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

„Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segist ekki skilja að orð Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, séu túlkuð á neikvæðan hátt og gefur lítið fyrir grein framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar um lygar í aðdraganda ESB-atkvæðagreiðslunnar. Í orðum Rubio hafi falist tækifæri til aukinna viðskipta á milli Íslands og Bandaríkjanna.

Bein út­sending: Sam­tal um fram­tíðina

Verkefnið Samtal fer fram um helgina en markmiðið er að skapa vettvang þar sem fólk á öllum aldri getur komið saman, hlustað á hvert annað og rætt hvernig samfélag það vilji skapan saman. Verkefnið varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur forseta Íslands sem jafnframt er verndari þess.

„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“

Rekstrarstaða framhaldsskólanna hefur sjaldan verið jafn slæm og hún er í dag segir formaður Félags Framhaldsskólakennara. Í vikunni hélt Kennarasamband Íslands blaðamannafund þar sem stefnumótun félagsins var kynnt sem og áherslur næstu ára.

Af­skipti for­manns Eflingar séu með ó­líkindum

Formaður VR segir skrýtið að standa í metingi við leiðtoga verkalýðsfélaga um niðurstöður kjarasamninga og að það sé rangt að ekkert hafi breyst frá því breiðfylkingin samdi á þriðjudag og þar til VR skrifaði undir samning í gær. Hún segir afskipti formanns Eflingar af innra starfi VR vera með ólíkindum.

„Við erum að gefa boltann upp“

Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið hafi saknað þess að taka heildarumræðu um skólamál þar sem farið er dýpra í hlutina. Hann segir sambandið vera að gefa boltann upp og kalli nú eftir samfélagslegu samtali um menntamál.

„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“

Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf.

Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi

Formaður Varðbergs segir Marco Rubio hafa staðfest varnarskuldbindingar Bandaríkjanna gagnvart Íslandi í heimsókn sinni til landsins, á sama tíma og mörg Evrópuríki dragi traust Bandaríkjamanna á varnarsamningum í efa. Hann telur að breytingar á NATO ættu ekki að hafa áhrif á Ísland.

Kennarar boða tíðindi

Kennarasamband Íslands boðaði í dag til blaðamannafundar þar sem sambandið kynnti sína sýn og áherslur til bætingar menntakerfis Íslands. Fundurinn var í beinni útsendingu á Vísi.

Engar leyni­skyttur gættu Ru­bio

Um hundrað lögreglumenn komu að öryggisgæslu í tengslum við komu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hingað til lands að sögn yfirlögregluþjóns öryggis- og greiningardeildar ríkislögreglustjóra. Hann segir ákvörðun um vopnaborð liggja hjá íslenskum yfirvöldum og byggi á áhættumati hverju sinni.

Sjá meira