Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Íslenskur nemandi við Brown-háskóla hefði mætt í kennslustund í kvöld í sömu skólastofu og mannskæð skotárás var framin í gær, en hún sækir flesta sína tíma í umræddri stofu. Öll kennsla og lokapróf hafa nú verið felld niður vegna árásarinnar. Hún segir samfélagið í Providence í áfalli og lýsir flótta vinar síns af háskólasvæðinu eftir að hafa heyrt skothvelli frá stofunni. 14.12.2025 16:26
Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Einn er í haldi lögreglu í tengslum við rannsókn á skotárás í Brown-háskóla á Rhode eyju í Bandaríkjunum í gær. Tveir eru látnir og níu særðir eftir árásina. 14.12.2025 13:51
Segir Kristrúnu verja „lögbrot“ samráðherra síns Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknar, sakar Ingu Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, um lögbrot með því að hafa í nokkrum tilvikum farið út fyrir framkvæmdaheimildir sínar. Hún segir umhugsunarvert að forsætisráðherra verji aðgerðir samráðherra sinna þegar þeir fari út fyrir heimildir sínar. 14.12.2025 12:18
Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Lögreglan í Bæjaralandi í Þýskalandi hefur handtekið fimm menn sem grunaðir eru um að leggja á ráðin um að fremja hryðjuverk á jólamarkaði. 14.12.2025 09:59
Ein áhrifamesta grínleikkona Hollywood á lausu Bandaríska grínleikkonan Amy Schumer hefur bæst í hóp einhleypra kvenna í Hollywood. Hún tilkynnti á samfélagsmiðlum í gær að leiðir hennar og framleiðandans Chris Fischer hafi skilið. 13.12.2025 16:43
Bæjarskrifstofur fluttar: „Þetta húsnæði er barn síns tíma“ Bæjarskrifstofur Seltjarnarnesbæjar hafa verið fluttar um set í húsnæði Fangelsismálastofnunar eftir að mygla fannst í húsnæðinu í sumar. Bæjarstjóri er ánægður með nýtt húsnæði og sér ný tækifæri í því gamla. 13.12.2025 15:11
Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Átök brutust út milli taílenskra og kambódískra hersveita á landamærum landanna tveggja snemma í morgun, nokkrum klukkustundum eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði vopnahléssamkomulag ríkjanna í höfn. 13.12.2025 13:24
Dick van Dyke á hundrað ára afmæli Bandaríski leikarinn og grínistinn Dick van Dyke fagnar hundrað ára afmæli í dag. Hann er þekktastur fyrir hlutverk sín í söngleikjunum Mary Poppins og Chitty Chitty Bang Bang auk grínþáttanna The Dick van Dyke Show. 13.12.2025 11:44
Fjárlög, skattar og skipti á dánarbúum á laugardagsþingi Þingheimur fundar í dag, laugardag, en þingfundadögum í desember var fjölgað í upphafi mánaðar sökum anna. 13.12.2025 10:51
Pulp Fiction leikarinn Peter Greene látinn Bandaríski leikarinn Peter Greene, sem var þekktastur fyrir hlutverk sitt sem illi öryggisvörðurinn Zed í kvikmyndinni Pulp Fiction, er látinn. Greene varð sextugur í október. 13.12.2025 09:43