fréttamaður

Telma Tómasson

Telma er fréttamaður og fréttaþulur á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Nýr for­seti ASÍ, um­deildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella

Georg Páll Skúlason, formaður Grafíu, var kjörinn nýr forseti Alþýðusambands Íslands á 47. þingi ASÍ fyrir rétt rúmri klukkustund. Georg bar sigur úr býtum með 162 atkvæðum á móti 127 atkvæðum, Arnaldar Grétarssonar, mannfræðings. Georg tekur því við af Finnbirni Hermannssyni sem forseti ASÍ næstu tvö árin. Bjarki Sigurðsson fréttamaður fylgdist með í beinni útsendingu frá þingi og kemur með nýjustu tíðindi af ASÍ þingi í hádegisfréttum Bylgjunnar, en mikil spenna er einnig fyrir kosningu varaformanna síðar í dag. 

Sigl­firðingar standa saman eftir á­fall gær­dagsins og spenna á ASÍ þingi

Íbúi á Siglufirði segir bæjarbúa standa saman í áfallinu eftir óveðrið í gær. Fjölskyldan hafi fengið skilaboð á skilaboð ofan um húsaskjól en þakið á húsi hennar fauk af í heilu lagi. Óljóst er hvenær þau geti gist í húsi sínu á ný. Rætt er við Karen Birgisdóttur í hádegisfréttum um veðurofsann í gær og afleiðingar hans. 

Biðlar til fólks að fara var­lega í vetrarfærðinni

Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra biðlar til vegfarenda að fara varlega en vetrarfærð er fyrir norðan með snjó og krapi á vegum. Hann segir landshlutann hafa sloppið betur en á horfðist í óveðri gærdagsins en lögregla hafi haft áhyggjur um tíma af mikilli sjávarhæð við höfnina á Skagaströnd.

Vilja nýjan vind­mæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“

Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð segir tímabært að koma upp vindmælingastöð í miðbænum á Siglufirði. Það sé verulegt tjón víða í bænum vegna óveðursins í gær. Hviðumælingar sýndu að sterkasta hviðan sem fór yfir í gær var um 56 metrar á sekúndu. Þök fuku af þremur húsum, palletta á bíl og aðrir lausamunir fuku.

Sköpuðust að­stæður fyrir „snældu­vit­laust veður“ á Siglu­firði

Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir vel hafa gengið hjá björgunarsveitarfólki um land allt í gær þrátt fyrir annríki. Óveður gekk yfir landið og voru björgunarsveitir kallaðar út víða um land, til dæmis vegna gróðurhúss sem fauk á Hellu. Mesta tjónið varð þó líklega á Siglufirði þar sem hviður náðu allt að 55 metrum á sekúndu. Þök fuku af þremur húsum en engin slys urðu á fólki.

Af­taka­veður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ó­færðar

Vegum var lokað á Suðurlandi, skólahaldi frestað í Eyjum og innanlandsflugi aflýst vegna veðurofsans í morgun. Búast má við vegalokunum á Vestfjörðum í kvöld vegna stórhríðar og veðurfræðingur segir að íbúar á Norðvesturlandi muni vakna við hvíta jörð. Farið verður yfir helstu tíðindi af óveðri sem gengur yfir landið í hádegisfréttum á Bylgjunni.

Lægðin hefur alla burði til að verða sögu­leg

Lægðin sem fer yfir landið á morgun hefur alla burði til þess að verða söguleg, að mati veðurfræðings. Icelandair hefur boðið farþegum í innanlandsflugi að breyta bókunum sínum. Líkur eru á rafmagnstruflunum á Vestfjörðum en áhrifin verða ekki mikil á höfuðborgarsvæðinu ef spá gengur eftir. Farið verður ítarlega yfir veðurhvellinn sem von er á, á morgun í hádegisfréttum Bylgjunnar.

„Maður undir­býr sig fyrir það versta“

„Maður býst ekki við neinu aftakaveðri fyrr en um hádegi á morgun. Ég býst nú við að menn hýsi í kvöld, þannig sofa menn betur og samviskan er betri. Maður undirbýr sig fyrir það versta.“ 

Rann­saka dauðs­fall í rússíbana í Six Flags

Einn maður er látinn og nokkrir slösuðust í rússíbanaslysi í skemmtigarðinum Six Flags Over Georgia í Georgíu í Bandaríkjunum í gær. Lögreglan í Cobb-sýslu rannsakar nú dauðsfallið og orsök slyssins. Í myndbandi má sjá að rússíbaninn var stöðvaður miðja vegu og aðstoða þurfti gesti úr honum.

Lög­reglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða

Lögreglan á Norðurlandi vestra varar við slæmu ferðaveðri sem fram undan er og biðlar til fólks um að flýta ferðum sínum eða bíða þar til veðrið hefur gengið yfir. Veðurfræðingur segir veðrið verða verst á Norðvesturhluta landsins. Það verði hvasst sunnan til í fyrramálið og lægðin færi sig svo norðar. 

Sjá meira