Fréttir
161 162 163 164 165 166 167 168 169 … 334 ›
TF-Líf til aðstoðar Flugfélagi Íslands Twin Otter flugvél Flugfélags Íslands féll niður um þunnt íslag á yfirborði Grænlandsjökuls í gær þegar hún lenti þar til að sækja hóp ferðamanna á jökulinn. Þegar ekki náðist að rétta hana við var kallað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar sem fór með tvo flugvirkja á staðinn sem freistuðu þess að koma vélinni í loft á nýjan leik. Innlent 10.6.2007 10:00
Gekk grátandi úr dómssal Paris Hilton gekk grátandi úr dómssal í Los Angeles í gær eftir að dómari úrskurðaði að hún skyldi send aftur í fangelsi. Lögreglustjóri segir Hilton eiga við geðræn vandamál að stríða og því ekki rétt að senda hana aftur í steininn. Erlent 9.6.2007 18:41
Bush á ferð og flugi Mótmælendur létu hátt í sér heyra á götum Rómarborgar í dag. George Bush Bandaríkjaforseti sótti borgina heim og var allt annað en velkominn. Forsetinn er á ferð og flugi um Evrópu þessa dagana og ræðir eldflaugavarnarkerfi og Kósóvódeiluna. Erlent 9.6.2007 18:38
Hægt að hlusta á Vatnajökul Nú er hægt að fylgjast með hlýnunar jarðar í gegnum símann. Katie Paterson, skoskur listamaður, hefur komið hljóðnema fyrir í vatni við rætur Vatnajökuls. Hún segir loftslagsbreytingar hafa alvarleg áhrif á Vatnajökul en verkefnið vera mest um það hvernig mikilfengleiki jökulsins er að hverfa. Erlent 9.6.2007 12:19
Bush í Róm Bush, Bandaríkjaforseti, kom í Vatíkanið í Róm í morgun til fundar við Benedikt páfa sextánda. Bush mun einnig funda með Prodi, forsætisráðherra Ítalíu. Leynifangelsi og fangaflug verða ekki rædd við Prodi þó réttarhöld tengd séu hafin á Ítalíu. Erlent 9.6.2007 12:12
Viðskiptahallinn minnkaði í Bandaríkjunum Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum dróst óvænt saman á milli mánaða í apríl. Veiking bandaríkjadals á stóran þátt í samdrættinum. Niðurstaðan kom greinendum á óvart. Viðskipti erlent 8.6.2007 14:09
Jón Ásgeir hættur sem forstjóri Baugs Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, tilkynnti á aðalfundi Baugs Group í dag að hann hafi látið af störfum sem forstjóri fyrirtækisins. Við starfi hans tekur Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í Bretlandi. Jón mun í kjölfarið taka við sem starfandi stjórnarformaður Baugs Group. Umtalsverðar skipulagsbreytingar á stjórn Baugs voru kynntar á aðalfundi félagsins í dag. Viðskipti innlent 8.6.2007 13:19
Exorka fær 3 ný virkjanaleyfi í Þýskalandi Exorka, dótturfélag Geysis Green Energy, hefur gengið frá kaupum á þremur leyfum fyrir jarðvarmavirkjanir í Bæjaralandi í Þýskalandi. Fyrir átti Exorka þar eitt virkjanaleyfi. Í kjölfarið getur Exorka byggt orkuver í Bæjaralandi sem framleitt getur 15-25 megawatta raforku á ári. Heildarvirði fjárfestingarinnar nemur 20 milljörðum króna. Viðskipti innlent 8.6.2007 13:06
Úrvalsvísitalan undir 8.000 stigum Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,07 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur hún nú í 7.953 stigum. Vísitalan hefur ekki verið lægri síðan 15. maí síðastliðinn en þá rauf hún 8.000 stiga múrinn í fyrsta sinn. Viðskipti innlent 8.6.2007 12:45
Sensa hlýtur viðurkenningu frá Cisco Systems Á árlegri ráðstefnu sem haldin er fyrir samstarfsaðila Cisco Systems var Sensa veitt viðurkenning sem besti Cisco Silver Partner ársins á Norðurlöndum. Sensa er í eigu Símans. Viðskipti innlent 8.6.2007 12:31
Líkur á nýju tilboði í Dow Jones Philadelphia Media Holding, útgáfufélag dagblaðsins Philadelphia Inquirer, er sagt hafa hug á að bjóða í bandaríska útgáfufélagið Dow Jones á móti fjölmiðlajöfrinum Rupert Murdoch. Viðskipti erlent 8.6.2007 09:30
Velta í dagvöruverslun eykst um 8,8 prósent Velta í dagvöruverslun jókst um 8,8 prósent í maí á föstu verðlagi samanborið við sama tíma í fyrra. Á breytilegu verðlagi nam hækkunin hins vegar 13,2 prósentum, samkvæmt smásöluvísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst, sem bætir við að fátt bendi til að einkaneysla sé að dragast saman. Megi búast við að sölutölur eigi eftir að hækka á næstunni. Viðskipti innlent 8.6.2007 09:58
Lækkanir á helstu fjármálamörkuðum Gengi hlutabréfa lækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins á 14 af 17 fjármálamörkuðum í Evrópu í dag. Lækkanirnar koma í kjölfar lækkana í Bandaríkjunum í gær og í Japan. Þetta er fimmti lækkanadagurinn í röð í Evrópu. Viðskipti erlent 8.6.2007 09:04
Vill bara 3 milljarða Dómari í Bandaríkjunum hefur samþykkt að lækka skaðabótakröfu sína vegna buxna sem týndust í hreinsun. Bótakrafan hljóðar eftir lækkun hljóðar upp á jafnvirði rúmlega þriggja milljarða íslenskra króna. Erlent 7.6.2007 19:23
Samkomulag í loftslagsmálum Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims náðu samkomulagi í loftslagsmálum á fundi sínum í Þýskalandi í dag. Kaslari Þýskalands var sigurreif þó tillaga hennar um að útblástur yrði minnkaður um helming fyrir árið 2050, hafi ekki náð fram að ganga vegna andstöðu Bandaríkjamanna. Erlent 7.6.2007 19:13
Hjúkrunarfræðingar á starfsmannaleigum Dæmi eru um að hjúkrunarfræðingar segi upp störfum á Landspítalanum til að vinna þar í gegnum starfsmannaleigu. Þrjár íslenskar starfsmannaleigur eru með um sextíu hjúkrunarfræðinga á skrá hjá sér til að þjónusta spítala og stofnanir. Með því móti ná hjúkrunarfræðingarnir talsvert betri kjörum en ef þeir réðu sig beint á spítalann. Innlent 7.6.2007 19:09
Garðyrkjubændur ættu að fá sama og Norðurál Garðyrkjubændur ættu að taka upp viðræður við orkusala í kjölfar tíðinda af orkuverði til Norðuráls vegna tilvonandi álvers í Helguvík. Þetta segir garðyrkjuráðunautur Bændasamtaka Íslands. Forstjóri Orkuveitunnar staðfestir að verðið til Norðuráls sé nærri tveimur komma einni krónu á kílóvattstund. Innlent 7.6.2007 18:56
Afkoma ríkissjóðs umfram væntingar Afkoma ríkissjóðs var umfram áætlanir fjárlaga á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 36,7 milljarða króna á tímabilinu, sem er um 12,4 milljörðum meira en í fyrra. Hagstæða afkomu má rekja til aukinna tekna sem voru 149 ma.kr. samanborið við 120 milljarða samkvæmt fjárlögum. Viðskipti innlent 7.6.2007 16:50
Skuldatryggingarálag bankanna lækkar Skuldatryggingarálag bankanna hefur farið lækkandi frá því um miðjan mars. Greiningardeild Landsbankans segir lækkunina í raun ná lengra aftur en skuldatryggingarálagið náði hámarki fyrir rúmu ári þegar það var margfalt hærra en nú. Viðskipti innlent 7.6.2007 16:30
Fannst eftir tæpt ár Lögreglan í Connecticut í Bandaríkjunum fann í gær 15 ára unglingsstúlku sem hvarf fyrir tæpu ári. Stúlkan var enn á lífi en töluvert þjökuð. Henni hafði verið haldið í gíslingu í litlu herbergi undir stiga á heimili pars sem foreldrar stúlkunnar þekktu. Stúlkan hafði nokkrum sinnum reynt að strjúka að heiman áður en hún hvarf sporlaust í júní í fyrra. Erlent 7.6.2007 12:06
Varnar- og umhverfismál ber hæst Búist er við að forsetar Bandaríkjanna og Rússlands ræði umdeilt eldflaugavarnarkerfi í Austur-Evrópu einslega í dag. Leiðtogar átta helstu iðnríkja heims hefja tveggja daga stífa fundarlotu í Þýskalandi í dag þar sem varnar- og umhverfismál ber hæst. Erlent 7.6.2007 12:00
Orkuverð til álversins opinbert Samningur Orkuveitu Reykjavíkur við Norðurál vegna álvers í Helguvík er með hagstæðari samningum sem veitan hefur gert til álfyrirtækis, segir Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur. Forstjóri Orkuveitunnar staðfestir að verðið sé nærri tveimur komma einni krónu á kílóvattstund. Innlent 7.6.2007 12:08
Hlutabréf hækkuðu í Kína Gengi hlutabréfa hækkaði um þrjú prósent við lokun hlutabréfamarkaðarins í Sjanghæ í Kína í dag eftir að stjórnvöld vísuðu því á bug að þau ætli að hækka fjármagnstekjurskatt í því augnamiði að kæla kínverskan hlutabréfamarkað. Viðskipti erlent 7.6.2007 11:28
Englandsbanki heldur stýrivöxtum óbreyttum Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,5 prósentum. Þetta er í takt við spár greinenda, sem þó telja líkur á að bankinn hækki vextina síðar á árinu. Viðskipti erlent 7.6.2007 11:17
Ætlaði ekki að gera honum mein Maðurinn sem reyndi að stökkva upp í bíl Benedikts páfa á ferð á Péturstorginu í Róm í morgun hefur átt við geðræn vandamál að stríða og vildi með athæfinu vekja athygli á sjálfum sér. Hann mun ekki hafa ætlaði að gera páfa mein. Erlent 6.6.2007 18:24
70% af Öryrkjablokkinni með hitastillingu Á undanförnum árum hafa að minnsta kosti þrír látist vegna brunasára sem þeir hlutu hér á landi af of heitu vatni. Sextugur öryrki er í lífshættu eftir brennheita sturtu í blokk Öryrkjabandalagsins við Hátún. Búið er að setja hitastýrð blöndunartæki í sjötíu prósent af íbúðum blokkarinnar. Innlent 6.6.2007 17:16
Ætla ekki að skrifa undir loftslagssamninga Bandaríkjamenn ætla ekki að skrifa undir neina loftslagssamninga á leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims sem hófst í Þýskalandi í dag. Deilan um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu hangir einnig yfir fundinum eins og dökkt þrumuský. Erlent 6.6.2007 18:16
Eimskip kaupir Innovate Eimskip hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Innovate Holdings í Bretlandi. Fyrir átti Eimskip 55 prósenta hlut í félaginu. Innovate er eitt stærsta fyrirtæki Bretlands á sviði hitastýrðra flutninga og rekur 30 vörugeymslur á 11 stöðum á Bretlandseyjum. Kaupverð nemur 30,3 milljónum punda, jafnvirði fjögurra milljarða króna. Viðskipti innlent 6.6.2007 15:06
Komu hjálpargögnum í búðirnar Hjálparsamtökum tókst í gær að koma hjálpargögnum inn Nahr el-Bared flóttamannabúðirnar í Líbanon. Það er í fyrsta sinn frá því að sókn líbanska hersins gegn herskáum múslimum, sem halda þar til, hófst í síðasta mánuði. Um hundrað manns hafa fallið í átökunum aðallega almennir borgarar. Erlent 6.6.2007 12:17
Búist við deilum á G8 fundi Búast má við að deilur Rússa og Bandaríkjamanna um eldflaugavarnarkerfi Bandaríkjamanna í Austur-Evrópu setji svip sinn á fund leiðtoga átta helstu iðnríkja heims sem hefst í Þýskalandi í dag. Gríðarleg öryggisgæsla er viðhöfð vegna heimsóknar helstu þjóðarleiðtoga. Erlent 6.6.2007 12:02