Fréttir
313 314 315 316 317 318 319 320 321 … 334 ›
Flott án fíknar Flott án fíknar er nýtt og öðruvísi forvarnarverkefni sem kynnt var í Smáralindinni í dag. Verkefnið byggir á því að unglingar ganga í klúbba og samningsbinda sig til að vera reyk- og vímuefnalausir. Innlent 17.11.2006 18:09
Hydro ekki að reisa álver Norska fyrirtækið Hydro hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að það sé ekki að fara að reisa álver hér landi heldur muni eingöngu setja hér upp skrifstofu sem eigi að vinna að möguleikum hvað varðar þróun á orkulindum hér á landi. Innlent 17.11.2006 18:29
Gates í embætti fyrir áramót Leiðtogar repúblikana í bandaríska þinginu hittu í dag Robert Gates, væntanlegan eftirmann Donald Rumfeld, en búist er við því að George W. Bush reyni að koma tilnefningu hans í gegnum öldungadeildina áður en demókratar taka við í henni þann fyrsta janúar næstkomandi. Erlent 17.11.2006 18:18
Frítekjumarkið þýðir 6400 krónur í vasann Frítekjumark á atvinnutekjur eldri borgara upp á tuttugu og fimm þúsund krónur á mánuði, sem taka á gildi um áramótin, er hræódýrt fyrir ríkissjóð, segir Einar Árnason, hagfræðingur Landssambands eldri borgara. Stjórnarandstaðan vill þrefalda frítekjumarkið. Varaformaður Samfylkingarinnar telur ríkisstjórnarflokkana hafa þvingað eldri borgara til að samþykkja frítekjumarkið með hótunum. Innlent 17.11.2006 17:48
Umhverfisráðstefnu SÞ lýkur Umhverfisráðherrar á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Næróbí í Kenía ákváðu í dag, lokadegi ráðstefnunnar, að endurskoða Kyoto sáttmálann árið 2008. Vonir standa til að sáttmálinn verði þá gerður viðameiri og að fleiri lönd verði aðilar að honum. Erlent 17.11.2006 17:45
KB Banki svarar ásökunum Ekstra Bladet Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings Banka, kom fram á fréttamannafundi í höfuðstöðvum þeirra í Kaupmannahöfn í dag. Þar sagði hann að þeir hefðu sent Ekstra Bladet bréf þar sem rangfærslur blaðins eru leiðréttar en blaðið hefur undanfarið verið að birta greinar sem segja KB Banka vera tengdan við hina ýmsu glæpastarfsemi. Erlent 17.11.2006 17:24
Öllum fuglum fargað í Húsdýragarðinum Landbúnaðarráðherra hefur fyrirskipað að öllum fuglum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum skuli fargað, vegna hættu á fuglaflensu. Alls eru þetta sextíu og sex fuglar. Tveir fálkar og einn haförn fá þó að halda lífi, enda talið ólíklegt að í þeim finnist smit. Innlent 17.11.2006 16:53
Minna tap hjá Atlantic Petroleum Atlantic Petroleum tapaði 257,8 milljónum danskra króna eða um 3 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er talsvert betri afkoma en fyrir ári þegar félagið tapaði 2,5 milljörðum danskra króna eða 30 milljörðum króna. Viðskipti innlent 17.11.2006 16:47
Tom Cruise setur Ítalíu á annan endann Ítalir hafa ekki upplifað annað eins síðan bandamenn frelsuðu Róm úr höndum Þjóðverja, í síðari heimsstyrjöldinni. Tom Cruise ætlar að gifta sig á Ítalíu, á morgun, og það er allt orðið vitlaust. Erlent 17.11.2006 16:27
Þjófur barðist um á hæl og hnakka Þjófur sem starfsmenn gripu í Byko í Breiddinni, eftir hádegi, var svo ósáttur við að hafa verið fangaður að hann barðist um sem óður væri. Þurfti fjóra starfsmenn verslunarinnar til að hafa hemil á honum þartil lögreglan kom á vettvang. Innlent 17.11.2006 16:04
Vodafone þéttir net sitt Vodafone hefur lokið við uppfærslu á öllum símstöðvum í kerfi sínu, sem fyrirtækið segir að auki bæði þjónustu og öryggi. Innlent 17.11.2006 15:50
Fræðibókaútgáfa skiptir um hendur Bandaríska fræðibókaútgáfan John Wiley & Sons Inc greindi frá því í dag að félagið hefði keypt útgáfufyrirtækið Blackwell Publishing Holdings Ltd. Kaupverð nemur 572 milljónum bandaríkjadala eða rétt rúmum 40 milljörðum króna. John Wiley & Sons var stofnað árið 1807 og gaf meðal annars fyrst út bækur eftir þá Edgar Allan Poe og Herman Melville. Viðskipti erlent 17.11.2006 15:41
Íranar tilbúnir að ræða við Ítali um Miðausturlönd Talsmaður forseta Ítalíu hefur skýrt frá því að ráðherranum hafi borist bréf frá forseta Írans, þar sem hann segist vera fús til viðræðna við Ítali um ástandið í Miðausturlöndum. Erlent 17.11.2006 14:36
Kaupþing spáir 7,1 prósents verðbólgu Greiningardeild Kaupþings spáir því í endurskoðaðri verðbólguspá sinni í dag að vísitala neysluverð hækki um 0,2 prósent í desember. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga hér á landi 7,1 prósent. Verðbólga mælist nú 7,3 prósent. Viðskipti innlent 17.11.2006 14:36
Kóksvelgur fær bætur Rússnesk kona hefur fengið 8000 krónur í skaðabætur frá Coca Cola fyrirtækinu vegna brjóstsviða og svefnleysis, sem rakið var til þess að hún svolgraði í sig þrjá lítra á dag, af drykknum. Erlent 17.11.2006 14:20
Vilja rannsókn á dauða palestínumanna Ísraelsk mannréttindasamtök hafa krafist tafarlausrar rannsóknar á dauða tveggja Palestínumanna, sem voru skotnir í áhlaupi hersins á Vesturbakkanum, fyrr í þessum mánuði. Erlent 17.11.2006 13:56
Bretar banna auglýsingar á fitandi mat Bresk yfirvöld hafa bannað allar auglýsingar, á óhollum matvælum, í sjónvarpsþáttum sem höfða til barna upp að sextán ára aldri, hvort sem er að nóttu eða degi og á hvaða sjónvarpsrás sem er. Erlent 17.11.2006 13:45
Síminn fyrstur á Íslandi með WiMAX tækni Síminn býður viðskiptavinum sínum aðgang að samskiptaneti sem nýtir WiMAX tækni. Um er að ræða þráðlaust net sem hentar vel fyrir bandbreiðar Internetteningar. Nú þegar er þessi þjónustu í tilraunarekstri fyrir sumarhúsasvæði í Grímsnesi. Í tilkynningu segir að Síminn sé fyrst fyrirtækja á Íslandi til að bjóða upp á þessa tækni. Viðskipti innlent 17.11.2006 13:41
Thai Airways íhugar að hætta við kaup á risaþotu Wallop Bhukkanasut, einn af æðstu stjórnendum taílenska ríkisflugfélagsins Thai Airways, segir tafir á afhendingu A380 risaþotum flugfélagsins hafa orðið til þess að flugfélagið verði að endurskoða langtímaáætlanir sínar. Svo getur farið að flugfélagið falli frá kaupum á risaþotunum. Erlent 17.11.2006 13:27
Góð afkoma hjá Atorku Group Fjárfestingafélagið Atorka Group skilaði rúmlega 555 milljóna króna hagnaði á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 224 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Félagið skilar uppgjöri sínu í tvennu lagi: Uppgjöri móðurfélags og samtæðu Atorku Group. Viðskipti innlent 17.11.2006 12:39
Íbúðaverð lækkar á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,2% á milli september og október. Þetta kemur fram í tölum sem Fasteignamat ríkisins birti í gær. Greiningardeild Glitnis segir í Morgunkorni sínu í dag að íbúðaverð hafi verið sveiflukennt að undanförnu, bæði hækkað og lækkað á víxl á milli mánaða. Viðskipti innlent 17.11.2006 12:01
Fötluð börn fá lengda viðveru Eftir áramót eiga öll fötluð börn á aldrinum tíu til sextán ára kost á lengdri viðveru í grunnskólum eftir að kennslu lýkur. Félagsmálaráðherra kynnti samkomulag um skiptingu kostnaðar milli ríkis og sveitarfélaga á ríkisstjórnarfundi í morgun, en deilur um kostnaðarskiptinguna hafa komið í veg fyrir að fatlaðir njóti þessarar þjónustu. Innlent 17.11.2006 12:11
House of Fraser óskar eftir afslætti frá birgjum Framkvæmdastjórn bresku verslanakeðjunnar House of Fraser (HoF) mun í næstu viku senda birgjum bréf þar sem þess er óskað að versluninni verði veittur afsláttur á vörum auk þess sem greiðslufrestur verði lengdur. Kaupum Baugs og fleiri fjárfesta á HoF lauk í síðustu viku en heildarfjármögnun nemur 77 milljörðum króna. Viðskipti erlent 17.11.2006 11:33
Stefnt að skráningu Teymis í Kauphöllina Stofnfundur fjarskipta- og upplýsingatæknifélagsins Teymis hf. var haldinn í morgun. Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Stjórnarformaður félagsins er Þórdís J. Sigurðardóttir en forstjóri Teymis er Árni Pétur Jónsson. Viðskipti innlent 17.11.2006 11:25
Samdráttur hjá Starbucks Bandaríska kaffihúsakeðjan Starbucks, sem er ein sú stærsta í heimi, skilaði 117,3 milljónum bandaríkjadala í hagnað á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til rúmlega 8,2 milljarða íslenskra króna, sem jafnframt er 5 prósentum minni hagnaður en keðjan skilaði fyrir ári. Viðskipti erlent 17.11.2006 09:44
Framkvæmdastjóraskipti hjá Iceland Express Matthías Imsland hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Express. Matthías mun sinna starfinu tímabundið ásamt öðrum störfum fyrir eignarhaldsfélagið Fons ehf. Matthías er stjórnarformaður sænska ferðarisans Ticket og breska flugfélagsins Astreaus og situr hann einnig í ýmsum stjórnum stórfyrirtækja fyrir Fons ehf. Viðskipti innlent 17.11.2006 10:52
Drepa 50 milljónir fugla Talið er að um fimmtíu milljónir fugla drepist árlega við að fljúga á fjarskiptamöstur í Bandaríkjunum. Fjarskiptastofnun landsins hefur af því miklar áhyggjur og leitar leiða til þess draga úr þessum felli. Erlent 17.11.2006 10:42
Birta myndir og nöfn barnaníðinga Barnaverndarsamtök í Bretlandi hafa sett nöfn og myndir "týndra" barnaníðinga á vefsíðu sína, og biðja þá sem bera kennsl á þá að láta lögregluna vita þegar í stað. Þetta eru menn sem hafa afplánað refsingu sína og farið í felur. Erlent 17.11.2006 10:25
Má bjóða yður eigið ál ? Norskur maður hefur verið dæmdur í eins árs fangelsi og háar fjársektir fyrir að stela fimmtíu og fimm tonnum af áli frá einu af álverum Norsk Hydro. Erlent 17.11.2006 09:58
Jón Ásgeir nýr stjórnarformaður 365 Ákveðið var á hluthafafundi Dagsbrúnar í dag að félaginu verði skipt upp í tvö félög: fjölmiðlahluta 365 og Teymi, sem snýr að upplýsingatækni- og fjarskiptahluta félagsins. Stjórnin hefur kosið formenn og verður Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður fjölmiðlahlutans. Viðskipti innlent 17.11.2006 09:52
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent