Kauphöllin
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 78 ›
Markaðurinn tók dýfu eftir vonbrigði með uppgjör Marel og Festi Úrvalsvísitalan lækkaði í dag um 7,5 prósent, sem er þriðja mesta lækkun vísitölunnar frá fjármálahruni og endurspeglar vonbrigði markaðarins með uppgjör Marels og Festi. Fjárfestar óttast að uppgjörin, sem litast einkum af áhrifum hækkandi vaxta og verðbólgu, kunni að vera vísbending um það sem er í vændum hjá öðrum skráðum félögum. Innherji 4.5.2023 17:31
Hlutabréfamarkaðurinn vanmetinn um 20 prósent að meðaltali Úrvalsvísitalan ætti að ná fyrri hæðum – um 3.400 stig – við áramót ef þróun hlutabréfamarkaðarins verður með svipuðum hætti og í kringum síðustu aldamót. Miðað við reynsluna þá tók það vísitöluna tvö og hálft ár að ná fyrri hæðum eftir umtalsverðar lækkanir. Að meðaltali er markaðurinn vanmetinn um 20 prósent, miðað við hlutabréfagreiningar Jakobsson Capital. Innherji 4.5.2023 14:00
Bein útsending: Play kynnir ársfjórðungsuppgjör Fulltrúar flugfélagsins Play munu kynna uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung félagsins á fundi sem hefst klukkan 16:15. Viðskipti innlent 27.4.2023 15:45
Sjóðstjórar í ólgusjó þegar þeim var reitt þungt högg við verðhrun Alvotech Íslenskir hlutabréfasjóðir hafa orðið fyrir þungu höggi eftir að gengi Alvotech, sem þar til fyrir skemmstu var verðmætasta fyrirtækið á markaði, hefur fallið um 36 prósent á aðeins sjö viðskiptadögum. Sjóðir Akta, einkum vogunarsjóðir í stýringu félagsins, höfðu meðal annars byggt upp verulega stöðu á skömmum tíma sem nam vel yfir fimm milljörðum króna daginn áður en tilkynnt var um að FDA myndi ekki veita Alvotech markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sitt stærsta lyf að svo stöddu. Greining Innherja á umfangi innlendra fjárfesta og sjóða í hluthafahópi Alvotech leiðir meðal annars í ljós að skuldsetning að baki hlutabréfastöðum í félaginu virðist hafa verið fremur hófleg. Innherji 26.4.2023 12:06
1,4 milljarða hagnaður hjá Össuri á fyrsta ársfjórðungi Hagnaður fyrirtækisins Össur á fyrsta ársfjórðungi nam tíu milljónum dollara, 1,4 milljarði íslenskra króna. Er það átta prósent aukning frá síðasta ári. Sala á ársfjórðungnum nam 25,7 milljörðum króna. Viðskipti innlent 25.4.2023 08:18
Útlit fyrir bætta afkomu bankanna á grunni stóraukinna vaxtatekna Greinendur telja að rekstur Íslandsbanka muni batna verulega á milli ára á fyrsta ársfjórðunga og sama skapi er útlit fyrir að rekstur Arion banka muni ganga enn betur en fyrir ári. Vaxtatekjur Íslandsbanka hafa aukist mikið síðustu fjórðunga og spá greinendur að sá mikli vöxtur haldi áfram. Því er útlit fyrir að hagnaður stóru viðskiptabankanna tveggja sem skráðir eru í Kauphöll muni aukast á fyrsta ársfjórðungi og að arðsemi eiginfjár verði yfir markmiðum stjórnenda þeirra. Innherji 24.4.2023 16:56
Telur „æskilegt“ að fleiri lífeyrissjóðir taki upp sömu áherslur og Gildi Stjórnarformaður Gildis, sem hefur iðulega beitt sér gegn því sem sjóðurinn hefur talið vera „óhóflegar“ bónusgreiðslur eða kaupréttarsamningar hjá félögum í Kauphöllinni, kallar eftir því að aðrir lífeyrissjóðir fylgi í sömu fótspor og Gildi. Sjóðurinn taldi ástæðu til að framfylgja hluthafastefnu sinni af „meiri þunga en áður“ á nýafstöðnum aðalfundum skráðra félaga, að hans sögn. Innherji 22.4.2023 11:55
Hlutabréfagreinandi töluvert bjartsýnni á rekstur Brims nú en við áramót Jakobsson Capital er töluvert bjartari fyrir rekstur Brims í ár en greiningarfyrirtækið var fyrir áramót. Loðnuvertíð gekk vel og afli meiri en talið var. Horfur eru á að það háa verð sem býðst fyrir sjávarafurðir haldist hátt lengur en áður var reiknað með í ljósi mikillar hækkunar á öðru matvælaverði. Einnig hefur olíuverð lækkað sem hefur jákvæð áhrif. Innherji 21.4.2023 19:41
„Mikil óvissa“ um hvað Alvotech þarf að gera til að fá grænt ljós frá FDA Áform Alvotech um að fara inn á Bandaríkjamarkað um mitt þetta ár eru í hættu vegna óvissu um hvenær FDA mun veita félaginu markaðsleyfi, að sögn erlendra greinenda, en skiptar skoðanir eru hvaða áhrif það kann að hafa – DNB lækkar verðmat sitt á félaginu en mælir enn með kaupum á meðan Citi segir fjárfestum að selja – og sumir álíta að tafir um einhverja mánuði muni ekki hafa mikil áhrif á markaðshlutdeild fyrirtækisins á árunum 2024 og 2025. Á óformlegum upplýsingafundum með innlendum fjárfestum hafa lykilstjórnendur Alvotech aðspurðir tekið fyrir þann möguleika að þörf verði á því á næstunni að sækja aukið hlutafé út á markaðinn. Innherji 19.4.2023 17:05
Iceland Spring var metið á tæpa þrjá milljarða króna við kaup Ölgerðarinnar Hlutafé Iceland Spring var metið á 20 milljónir Bandaríkjadali, jafnvirði 2,7 milljarða króna, við hlutafjáraukningu Ölgerðarinnar. Íslenska samstæðan fer nú með 51 prósent hlut í vatnsfyrirtækinu. Ölgerðin hefur hækkað um sjö prósent það sem af er degi í kjölfar þess að hafa birt uppgjör eftir lokun markaða í gær. Innherji 19.4.2023 13:31
„Harla ólíklegt að við verðum ekki komin á markað í ár“ „Ég var aðallega hissa, meira en neitt annað,“ segir Róbert Wessmann, forstjóri Alvotech, um viðbrögð sín við ákvörðun Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA), um að veita líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við gigtarlyfið Humira ekki markaðsleyfi í Bandaríkjunum. Viðskipti innlent 18.4.2023 23:41
FDA staðfestir að það sé enn með svarbréf Alvotech „til skoðunar“ Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur staðfest við Alvotech að eftirlitið sé ekki enn búið að yfirfara að fullu ítarlegt svar sem íslenska líftæknifélagið sendi eftirlitinu í upphafi mánaðarins vegna ábendinga sem voru gerðar eftir endurúttekt á framleiðsluaðstöðu fyrirtækisins. Eftir að hafa hrunið í verði um þriðjung á tveimur viðskiptadögum hækkaði gengi bréfa Alvotech um liðlega átta prósent í fyrstu viðskiptum í Kauphöllinni í morgun. Innherji 18.4.2023 09:59
Jakobsson verðmetur Skel ríflega tuttugu prósent yfir markaðsverði Jakobsson Capital verðmetur Skel fjárfestingafélag 22 prósent yfir markaðsverði. Greiningarfyrirtækið verðmetur dótturfélög Skel lítilsháttar hærra en fjárfestingafélagið gerir sjálft en þykir hins vegar bókfært virði Orkunnar vera um 20 prósent of hátt. Innherji 17.4.2023 16:46
Anna Þorbjörg hættir hjá Fossum fjárfestingarbanka Anna Þorbjörg Jónsdóttir, sem hefur starfað hjá Fossum fjárfestingarbanka frá árinu 2016 og byggt upp eignastýringarsvið félagsins, er hætt störfum hjá bankanum, samkvæmt upplýsingum Innherja, en í liðnum mánuði hafði verið greint frá því að hún ætti að taka við stöðu framkvæmdastjóra nýs lánasviðs Fossa. Vænta má þess að draga muni til tíðinda á næstu dögum í viðræðum um fyrirhugaðan samruna Fossa og VÍS. Innherji 17.4.2023 12:04
FDA skaut fjárfestum í Alvotech niður á jörðina og óvissa um framhaldið Skilaboð Lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) til Alvotech, sem gerir enn athugasemdir við framleiðsluaðstöðu þess og setur áform um að hefja sölu á stærsta lyfi fyrirtækisins vestanhafs um mitt ár mögulega í uppnám, skutu fjárfestum skelk í bringu fyrir helgi og yfir hundrað milljarðar þurrkuðust út af markaðsvirði félagsins á einum viðskiptadegi – og felldi það um leið úr sessi sem hið verðmætasta í Kauphöllinni. Talsverð óvissa er um næstu skref en væntingar Alvotech, sem álíta athugasemdir FDA vera smávægilegar, eru að hægt verði að ljúka málinu fyrir tilsettan tíma í lok júní án þess að það kalli á þriðju úttektina af hálfu eftirlitsins á verksmiðju félagsins hér á landi. Innherji 17.4.2023 07:17
Hrun hjá bréfum Alvotech eftir tíðindi næturinnar Virði bréfa Alvotech hefur fallið um rúm tuttugu prósent eftir að í ljós kom að fyrirtækið fær ekki enn grænt ljós frá Matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna (FDA) fyrir líftæknilyfjahliðstæðu við gigtarlyfið Humira. Viðskipti innlent 14.4.2023 10:20
Upplýsingaskylda útgefenda skráðra skuldabréfa Fréttir síðustu daga um fjármál íslenskra sveitarfélaga hafa vakið upp spurningar um hvort og þá hvaða sérstöku reglur gilda um útgefendur skráðra skuldabréfa, þá sérstaklega að því er varðar upplýsingagjöf þeirra. Umræðan 14.4.2023 09:38
IFS mælir með sölu á Símanum og Sýn IFS greining mælir með því að fjárfestar selji í Símanum og Sýn. Markaðsvirði félaganna er lítillega hærra en virðismat IFS gefur til kynna. Innherji 6.4.2023 11:01
Kaupir fyrir rúmlega tvöhundruð milljónir í Regin Halldór Benjamín Þorbergsson, sem tekur við starfi forstjóra Regins í sumar, er búinn að kaupa hlutabréf í félaginu fyrir rúmlega tvöhundruð milljónir króna. Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að kaupin eru gerð í gegnum Optio ehf. en um er að ræða félag sem er alfarið í eigu Halldórs. Viðskipti innlent 3.4.2023 16:22
Sjóvá skilaði sínu þrátt fyrir að ytri aðstæður væru þær verstu í áratugi Sjóvá er kannski „ekkert sérlega töff“ en það skilaði sínu árið 2022, þrátt fyrir að ytri aðstæður á tryggingarmarkaði voru þær verstu í áratugi. Þjóðfélagið tók við sér að krafti, verðbólgan var á hvínandi siglingu, segir í hlutabréfagreiningu. Innherji 31.3.2023 15:31
Kurr meðal hluthafa Nova sem sýndu Hugh Short reisupassann Óánægju gætti með störf Hugh Short sem var stjórnarformaður Nova þar til að hluthafar kusu hann úr stjórn með afgerandi hætti í gær. Sagt er að hann hafi ekki rækt hlutverk sitt sem skyldi. Klinkið 30.3.2023 15:18
Stjórnarformaður og annar stærsti hluthafi Nova felldur í kjöri til stjórnar Hugh Short, stjórnarformaður Nova, hlaut ekki brautargengi í kosningu til stjórnar fjarskiptafélagsins á aðalfundi sem lauk fyrir skemmstu, samkvæmt heimildum Innherja, þrátt fyrir að hafa verið á meðal þeirra fimm einstaklinga sem tilnefningarnefnd hafði mælt með. Innherji 29.3.2023 19:00
Festi skoðar sölu á 60 prósenta hlut sínum í Olíudreifingu Festi, sem meðal annars er móðurfélag N1, skoðar nú hvort selja eigi 60 prósenta hlut sinn í Olíudreifingu. Að sögn stjórnenda Festi er um að ræða „frumskoðun á framtíðareignarhaldi“ félagsins, sem er undir ströngum skilyrðum af hálfu Samkeppniseftirlitsins, en eftirstandandi hlutur er í eigu Olís. Innherji 29.3.2023 15:05
Verðbólguálagið togast niður og um leið væntingar um topp vaxtahækkana Snörp gengisstyrking krónunnar síðustu daga, meðal annars drifin áfram af fjármagnsinnflæði, og væntingar um að verðbólgan sé búin að toppa hefur togað verulega niður verðbólguálag á skuldabréfamarkaði og um leið aukið trúverðugleika Seðlabankans í aðgerðum sínum. Þótt óvissan um framhaldið sé enn mikil, að sögn sérfræðings á skuldabréfamarkaði, þá gera fjárfestar nú ráð fyrir að vaxtahækkunarferli bankans ljúki fyrr en áður var talið. Innherji 29.3.2023 09:48
Origo segir skilið við Kauphöllina í lok næsta mánaðar Nasdaq Iceland hefur orðið við beiðni Origo um afskráningu í Kauphöll. Síðasti dagur viðskipta með bréf í félaginu verður 25. apríl. Viðskipti innlent 29.3.2023 07:52
„Feigðarflan“ að toga tilnefningarnefndir fjær hluthöfum Það er feigðarflan að toga tilnefningarnefndir fjær hluthöfum, sagði reyndur stjórnarmaður. Ráðgjafi á sviði stjórnarhátta velti því upp hvort það væri óvinnandi fyrir tilnefningarnefndir að stilla upp góðri stjórn. Yfirlögfræðingur lífeyrissjóðs hugnast ekki að stjórnarmenn sitji í tilnefningarnefndum. Innherji 28.3.2023 14:21
Flýta vinnslu á Grænlandi eftir sjö milljarða lánsfjármögnun Auðlindafélagið Amaroq Minerals, sem heldur á víðtækum rannsóknar- og vinnsluheimildum á Grænlandi, hefur gengið frá sjö milljarða króna lánsfjármögnun. Fjármagnið verður nýtt til að hefja gullvinnslu í Nalunaq námunni fyrr en ella. Þá kannar félagið nú skráningu á aðalmarkaði Nasdaq á Íslandi. Viðskipti innlent 28.3.2023 07:46
Forstjóri Brims gagnrýnir „lýðskrum“ í umræðu um sjávarútveg Forstjóri og aðaleigandi Brims, eins stærsta útgerðarfyrirtækis landsins, segir „málsmetandi aðila kynda undir öfund og óánægju í garð sjávarútvegs á fölskum forsendum“ en gagnrýnin er sett fram á sama tíma og stjórnvöld vinna nú að breytingum á lögum um stjórn fiskveiða. Hann rifjar upp að bætt afkoma Brims megi rekja til umdeildra ákvarðana sem voru teknar fyrir fáeinum árum, sem varð til þess að Gildi seldi allan hlut sinn, og lærdómurinn af því sé að „ekki er allaf rétt að forðast ágreining.“ Innherji 27.3.2023 10:16
Landsbankinn greiðir 8.500 milljónir í arð Landsbankinn hefur samþykkt að greiða hluthöfum 8.504 milljónir í arð. Heildararðgreiðslur bankans síðustu tíu ár nema 175,1 milljarði króna. Viðskipti innlent 23.3.2023 20:11
Verðmetur Sýn 39 prósentum yfir markaðsvirði Jakobsson Capital verðmetur Sýn, sem meðal annars á Vodafone og Stöð 2, um 39 prósentum yfir markaðsvirði þegar þetta er ritað. Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtæki hafa háan fastan kostnað en lágan breytilegan kostnað. Hagnaðarhlutfallið er mjög hátt af hverri auka krónu. Sókn í sölumálum og söludrifin áhersla á nýju skipulagi kemur því ekki á óvart, segir hlutabréfagreinandi. Innherji 23.3.2023 17:01