Kauphöllin
30 31 32 33 34 35 36 37 38 … 78 ›
Bóksal selur í skráðum félögum til að minnka áhættu og skuldsetningu Fjárfestingafélagið Bóksal, sem er í eigu hjónanna Boga Þórs Siguroddssonar og Lindu Bjarkar Ólafsdóttur og hefur verið afar umsvifamikið á hlutabréfamarkaði undanfarin misseri, seldi í liðnum mánuði hluta bréfa sinna í Icelandair, Arion banka og Kviku banka þar sem það hefur um nokkurt skeið verið á meðal stærstu hluthafa. Innherji 31.3.2022 11:31
Verðmetur Alvotech á 540 milljarða skömmu fyrir skráningu á markað Heildarvirði íslenska líftæknifyrirtækisins Alvotech, sem undirbýr nú tvíhliða skráningu á hlutabréfamarkað í Bandaríkjunum og á Íslandi, er metið á um 90 prósent hærra gengi í nýju verðmati miðað við þann verðmiða sem var sett á félagið þegar það lauk um 60 milljarða króna fjármögnun undir lok síðasta ár. Innherji 30.3.2022 10:07
Íslandssjóðir keyptu fyrir um 1.400 milljónir í útboði Íslandsbanka Sjóðastýringarfyrirtækið Íslandssjóðir er á meðal tíu stærstu hluthafa Íslandsbanka eftir að sala ríkissjóðs á hlutum í bankanum kláraðist í síðustu viku og nemur hlutur þess nú 1,55 prósentum. Íslandssjóðir, sem er dótturfélag Íslandsbanka, átti undir eins prósenta hlut þegar útboðið hófst en í lok árs stóð hann í 0,94 prósentum. Innherji 29.3.2022 09:53
Hagnaður Stefnis tvöfaldast og var yfir 1.600 milljónir Sjóðastýringarfyrirtækið Stefnir skilaði hagnaði upp á 1.618 milljónir króna á árinu 2021, sem einkenndist af verðhækkunum í Kauphöllinni og aukinni ásókn almennings í hlutabréfafjárfestingar, og jókst hann um 93 prósent frá fyrra ári. Eignir í virkri stýringu Stefnis, sem er í eigu Arion banka, jukust um 58 milljarða og námu 288 milljörðum í árslok. Innherji 28.3.2022 17:00
Fjórir lífeyrissjóðir meðal sex stærstu hluthafa Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Capital Group er ekki lengur annar stærsti hluthafi Íslandsbanka heldur Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins með 5,23 prósenta hlut. Áætlað er að Bankasýsla ríkisins birti uppgjör á útboði ríkisins á hlut í Íslandsbanka í dag. Viðskipti innlent 28.3.2022 13:00
Fjárfestar minnka lítillega við sig í hlutabréfasjóðum í skugga stríðsátaka Innlausnir fjárfesta í innlendum hlutabréfasjóðum voru rúmlega 840 milljónum krónum meiri en sem nam fjárfestingum þeirra í slíkum sjóðum í febrúar. Þetta er í fyrsta sinn frá því þegar faraldurinn stóð hvað hæst á fyrri hluta ársins 2020 sem merkja má útflæði úr hlutabréfasjóðum en markaðir, bæði hér heima og erlendis, einkenndust af mikilli óvissu í liðnum mánuði vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Innherji 28.3.2022 11:21
Áhættan af sambandsrofi við kerfi Nasdaq innan „ásættanlegra marka“ Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir að áhættan af því að samband rofni við verðbréfauppgjörskerfi Nasdaq, sem geymir nær öll íslensk verðbréf og er hýst í gagnaverum í Svíþjóð, sé innan „ásættanlegra marka“ eins og staðan er í dag. Ef stríðið í Úkraínu breiðist út gæti Seðlabankinn hins vegar þurft að endurmeta stöðuna. Innherji 28.3.2022 08:51
Keldan setur nýja og uppfærða útgáfu í loftið Upplýsinga- og fréttaveitan Keldan setti nýja og uppfærða útgáfu í loftið í dag sem miðar að því að bæta notendaupplifun og virkni í farsímum og spjaldtölvum. Innherji 24.3.2022 12:17
Tilboð frá 430 fjárfestum og minni afsláttur en í samskonar útboðum Meginþorri verðbréfasjóða, fjársterkra einstaklinga og tryggingafélög, sem voru metnir langtímafjárfestar af hálfu Bankasýslunnar, fengu úthlutað bréfum í Íslandsbanka sem nam yfir 40 prósentum af þeirri upphæð sem þeir skráðu sig fyrir í lokuðu útboði til fagfjárfesta sem lauk í gærkvöldi þegar ríkið seldi 22,5 prósenta hlut fyrir 53 milljarða. Innherji 23.3.2022 20:15
Óánægja með að fagfjárfestar hafi fengið afslátt Mikil umfram eftirspurn var í fagfjárfesta útboði Bankasýslu ríkissins á tæplega fjórðungs á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Verð á hvern hlut til fagfjárfesta er um 10 prósent lægra en gengi dagsins í Kauphöll nú í morgun og um 4 prósent lægra en í gær. Óánægju gætir með afsláttinn og úthlutun á hlutum. Viðskipti innlent 23.3.2022 12:02
Ríkið felldi tillögu um að jafnræði sé tryggt við endurkaup á Íslandsbankabréfum Stór hópur hluthafa í Íslandsbanka, annarra en Bankasýslunnar sem heldur utan um 65 prósenta hlut ríkissjóðs, lagðist gegn því að stjórn bankans fengi heimild til kaupa á eigin hlutum sem opnar á að félagið geti gert einstökum hluthöfum, eins og til dæmis íslenska ríkinu, tilboð um kaup á bréfum þeirra án þess að aðrir hluthafar hafi möguleika á þátttöku í slíkum endurkaupum. Innherji 22.3.2022 16:00
Nýsköpunarfyrirtækið Curio metið á fjóra milljarða við kaup Marels í fyrra Marel greiddi 408 milljónir króna þegar félagið bætti við sig um 10,7 prósenta hlut í íslenska hátæknifyrirtækinu Curio, sem framleiðir fiskvinnsluvélar, í byrjun síðasta árs en eftir þau kaup fór Marel með helmingshlut. Miðað kaupverðið á þeim hlut var Curio því verðmetið á samtals rúmlega 3,8 milljarða króna í viðskiptunum. Innherji 21.3.2022 18:03
Marel borgaði yfir fimm milljarða fyrir hátæknifyrirtækið Völku Áætlað kaupverð Marels á íslenska hátæknifyrirtækinu Völku, sem framleiðir fiskvinnslulausnir fyrir alþjóðamarkað, er samtals vel á sjötta milljarð króna. Tilkynnt var um kaup Marels á fyrirtækinu um mitt síðasta ár en þau kláruðust undir lok nóvembermánaðar eftir að Samkeppniseftirlitið hafði gefið samþykki sitt fyrir samruna félaganna. Innherji 21.3.2022 11:54
Þörf fyrir skrifstofur hefur ekki minnkað eftir faraldurinn, segir forstjóri Regins Kórónuveirufaraldurinn hafði ekki marktæk áhrif á eftirspurn eftir skrifstofuhúsnæði eða að minnsta kosti ekki eftir húsnæði sem uppfyllir auknar kröfur fyrirtækja og starfsfólks um gæði. Þetta segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins. Innherji 20.3.2022 13:27
Almennir fjárfestar orðnir „ansi sjóaðir“ Örvar Snær Óskarsson, sjóðstjóri Eldgjár, blandaðs sjóðs á vegum Kviku eignastýringar, býst ekki við því að hræringar síðustu vikna á hlutabréfamarkaði muni fæla almenna fjárfesta frá markaðinum. Hann gerir ráð fyrir að áform um nýskráningar á þessu ári muni ganga eftir en þær hafa verið einn stærsti drifkrafturinn að baki aukinni þátttöku almennra fjárfesta. Innherji 19.3.2022 12:07
Hispurslaus kveðja Baldvins Nýjan tón mátti merkja í hispurslausu ávarpi Baldvins Þorsteinssonar, fráfarandi stjórnarformanns Eimskips, í ársskýrslu Eimskips sem kynnt var fyrir aðalfund félagsins í gær. Klinkið 18.3.2022 20:01
VÍS vill breikka tekjustoðir félagsins og „horfir til tækifæra á markaði“ VÍS hefur að „undanförnu haft til skoðunar möguleika til útvíkkunar á ýmiskonar fjármálatengdri starfsemi sem fellur vel“ að tryggingafélaginu. Innherji 18.3.2022 11:38
Bein útsending: Kynning á uppgjöri fjórða ársfjórðungs hjá Play Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Viðskipti innlent 17.3.2022 08:01
Verðbólguvæntingar fjárfesta ekki verið hærri frá hruni, bankinn þarf að „gefa skýr skilaboð“ Verðbólguhorfurnar hafa versnað til muna á skömmum tíma, rétt eins og í öðrum löndum í kringum okkur, og eru íslenskir fjárfestar á skuldabréfamarkaði að sjá fyrir sér að verðbólguskotið sem kunni að vera í vændum verði það mikið að ávöxtunarkrafan á styttri óverðtryggðum ríkisskuldabréfum „muni étast upp í verðbólgunni.“ Innherji 16.3.2022 06:00
Krafa ríkisbréfa rýkur upp fyrir fimm prósent, ekki verið hærri í þrjú ár Lánskjör ríkissjóðs við að fjármagna sig á innlendum skuldabréfamarkaði hafa farið hratt versnandi á undanförnum vikum samhliða því að fjárfestar óttast að verðbólgan muni reynast mun meiri en áður var spáð. Þar ræður mestu hækkandi hrávöruverð á alþjóðamörkuðum vegna stríðsátakanna í Úkraínu. Innherji 15.3.2022 09:41
Tímaspursmál hvenær kaupaukar tengdir sjálfbærni spretta upp í Kauphöllinni Það er aðeins „tímaspursmál“ hvenær sjálfbærnitengdir kaupaukar verða innleiddir hjá fleiri skráðum félögum í Kauphöllinni. Kaupaukar af þessu tagi hafa rutt sér til rúms á erlendum hlutabréfamörkuðum og viðmælendur Innherja benda á að nýjungar á sviði sjálfbærni berist iðulega til Íslands með nokkurra ára töf. Innherji 13.3.2022 10:00
Skortstöðum fækkaði í takt við hækkanir í Kauphöllinni Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands bárust 44 tilkynningar um skortstöður í fyrra en til samanburðar bárust 163 slíkar tilkynningar árið 2020. Þetta kemur fram í ritinu Fjármálaeftirlit 2022 sem Seðlabankinn birti í morgun. Innherji 10.3.2022 12:03
Fjárfestar eiga von á 60 milljörðum í arð, gæti virkað sem vítamínsprauta fyrir markaðinn Hlutabréfafjárfestar eiga von á því að fá samanlagt nærri 60 milljarða króna í sinn hlut í arð og aðrar greiðslur í tengslum við lækkun hlutafjár á komandi vikum frá þrettán félögum í Kauphöllinni. Það er um þrefalt hærri upphæð en skráð fyrirtæki greiddu út í arð til fjárfesta á öllu árinu 2021. Innherji 10.3.2022 06:00
Vægi hlutabréfa „fullmikið“ í efnahagsreikningi Kviku Þrátt fyrir að lánastarfsemi Kviku banka hafi skilað góðri afkomu í fyrra þá er hún „afskaplega smá í sniðum“ og stendur undir rúmlega 29 prósentum af heildareignum félagsins. Hlutfall efnahagsreiknings Kviku sem fellur undir útlánastarfsemi er þannig vel undir helmingur þess sem gerist hjá viðskiptabönkunum. Innherji 9.3.2022 20:01
Kvika eignastýring skortselur tryggingafélagið VÍS Sjóðir í rekstri Kviku eignastýringar hafa verið að skortselja VÍS en í byrjun þessarar viku voru þeir með hreina skortstöðu sem nam 0,53 prósentum af útgefnu hlutafé tryggingafélagsins. Innherji 9.3.2022 14:46
Seðlabankinn í þröngri stöðu, gæti þurft að hækka vexti ofan í kreppuverðbólgu „Allir tapa á þessu ömurlega stríði Pútíns,“ segir Valdimar Ármann, forstöðumaður eignastýringar Arctica Finance, en efnahagshorfur beggja vegna Atlantshafsins eru orðnar mun dekkri en áður eftir að stríðsátökin í Úkraínu hófust fyrir tólf dögum síðan. Innherji 8.3.2022 17:09
Stríðsátökin „varpa skugga á allt annað,“ fjárfestar búast áfram við miklum sveiflum Þróun stríðsátakanna í Úkraínu og skilaboð bandaríska seðlabankans í næstu viku eru þeir þættir sem munu ráða mestu um stefnu markaða næstu daga og vikur. „Það er líklegt að sveiflur verði áfram miklar enda er ekki að sjá neina lausn í sjónmáli,“ segir Davíð Stefánsson, sjóðsstjóri hjá Akta. Innherji 8.3.2022 12:04
„Mér þykir Íslendingar full fljótir að fara í kjarnorkubyrgin“ Rauður dagur var í kauphöllinni í dag. Hagfræðingur segir sérstakt að hækkandi olíuverð hafi meiri áhrif hér á landi en í löndum sem eru háð olíu Rússa og telur Íslendinga full fljóta í kjarnorkubyrgin. Viðskipti innlent 7.3.2022 20:00
Ein mesta gjaldeyrissala í meira en áratug til að sporna gegn veikingu krónunnar Seðlabanki Íslands beitti ítrekuðum inngripum á gjaldeyrismarkaði í dag til að vega á móti miklum þrýstingi til lækkunar á gengi krónunnar en hún féll engu að síður í verði um liðlega 1,5 til 1,9 prósent gagnvart evrunni og Bandaríkjadal. Innherji 7.3.2022 17:57
Flugfélögin leiða lækkanir á eldrauðum markaði Það hefur verið rautt að litast um í kauphöllinni í morgun. Flugfélögin tvö, Icelandair og Play hafa lækkað mest. Viðskipti innlent 7.3.2022 10:21