
Leikjadómar

Age of Empires 4: Ef það er ekki bilað, ekki breyta því
Framleiðendum Age of Empires IV tókst að gera svolítið sem hefur reynst mörgum erfitt í gegnum árin. Það er að gera nýjan leik í gamalli og gífurlega vinsælli leikjaseríu og takast það vel. Age of Empires IV er mögulega betri en AoE2.

Klassíkin: Freespace 2
Fyrir mörgum, mörgum árum, í sömu stjörnuþoku og við erum í núna, var ákveðin tegund tölvuleikja mjög vinsæl. Þeir tölvuleikir settu spilara í sæti geimflaugaorrustumanna, sem börðust með gleðipinna í einni hendi og hina á lyklaborði.

FIFA 22: Litlu breytingarnar skila keimlíkum en skemmtilegum leik
FIFA 22 er kominn út, mörgum knattspyrnutölvuleikjaáhugamönnum til mikillar gleði. Það er sama hvað hver segir um leikjaseríuna sívinsælu og ágæti hennar. Ef þú hefur áhuga á fótbolta og tölvuleikjum, þá ertu að fara að spila nýjasta FIFA-leikinn þegar hann kemur út, í það minnsta af og til.

Far Cry 6: Byltingar er þörf
Far Cry 6 gerist í ríki sem kallast Yara. Það ríki er samansett úr nokkrum eyjum í Karabíuhafinu og er því stýrt af grimmum einræðisherra. Eyríkið hefur verið undir ströngum viðskiptaþvingunum í áratugi og hefur það kennt íbúum að nýta það sem er fyrir hendi.

Deathloop: Sjaldan skemmtilegra að stráfella óvini
Deathloop er sérlega vel heppnaður, skemmtilegur og krefjandi skot/hasar/ævintýra-leikur. Hann býr yfir áhugaverðri sögu en hann getur þó orðið smá einsleitur og á köflum er erfitt að ná áttum á því sem er að gerast.

War of the Righteous: Hlutverkaleikir snúa aftur með krafti
Gamaldags hlutverkaleikir virðast vera að snúa aftur og það af miklum krafti. Undanfarin ár hafa þó nokkrir góðir hlutverkaleikir verið gefnir út en Patfinder: Wrath of the Righteous er þeirra á meðal.

Klassíkin: Grand Theft Auto - Vice City
Elstu menn muna þá daga á árum áður, þegar heimurinn og við sjálf vorum saklausari en í dag, þegar Grand Theft Auto leikir komu út með minna en tuttugu ára bili.

Klassíkin: Star Wars - Knights of the Old Republic
Þeir eru fáir Star Wars leikirnir, sem hafa notið jafn mikilla vinsælda og Star Wars: Knights of the Old Republic (KotOR) og það er ekki að ástæðulausu. Ég er persónulega ekki frá því að KotOR sé besti Star Wars leikurinn og inniheldur eitt besta tölvuleikjatvist sögunnar.

Klassíkin: Super Mario Bros
Super Mario Bros… Hvar á maður eiginlega að byrja?

Ratchet & Clank: Rift Apart - Skemmtilegt ævintýri sýnir hvað hægt er að gera með PS5
Félagarnir Ratchet og Clank þurfa enn eina ferðina að bjarga alheiminum og jafnvel nokkrum slíkum í þetta sinn. Ratchet & Clank: Rift Apart er þrusugóð viðbót við gamla seríu sem skín í Playstation 5 en leikurinn er eingöngu gefinn út á þá leikjatölvu.

Resident Evil Village: Fíflið Ethan Winters er mættur aftur
Ethan Winters, söguhetja Resident Evil 7, er mættur aftur. Líf hans tekur skyndilega miklum breytingum og hann þarf að berjast fyrir lífi sínu og annarra. Að þessu sinni þarf Ethan að etja kappi við stórt samansafn mismunandi skrímsla, lifa af við erfiðar og oft hræðilegar aðstæður og mögulega bjarga heiminum, aftur.

Evil Genius 2: Það er erfitt að vera illur en samt gaman
Ég get með sanni sagt að ég hafi beðið leiksins Evil Genius 2: World Domination lengi. Jafnvel löngu áður en framleiðsla leiksins var tilkynnt, var ég byrjaður að bíða. Það er því við hæfi að stór hluti leiksins fari í að bíða.

Valheim: Lítill sænskur leikur slær í gegn
Sænski leikurinn Valheim kom eins og þruma úr heiðskýru lofti og hefur á örskömmum tíma notið mikilla vinsælda, þrátt fyrir að vera ókláraður svokallaður „early access“ leikur. Á fyrstu vikunni eftir útgáfu leiksins seldust rúmlega milljón eintök.

Bestu leikir ársins: Leikirnir sem hjálpuðu manni að komast í gegnum 2020
Við getum öll verið sammála um að árið 2020 hafi sökkað. Það gerði það. Það sökkaði mjög mikið og heimsfaraldur Covid-19 gerði framleiðendum tölvuleikja erfitt fyrir, eins og öllum öðrum. Þrátt fyrir þetta ömurlega ár litu þó nokkrir góðir leikis dagsins ljós og þeir hjálpuðu manni jafnvel við að hanga heima í leiðindunum.

Cyberpunk 2077: Átta ára bið lokið en fjölmargir gallar koma niður á annars geggjuðum leik
Þrátt fyrir vandræðaútgáfu og fjölmarga bögga er Cyberpunk 2077 líklega einn af skemmtilegustu leikjum sem ég hef spilað. Geggjað andrúmsloft, áhugaverðar persónur og góð sögusköpun gerir gífurlega mikið fyrir leikinn og það sama má segja um hratt, fjölbreytt og á köflum strembið bardagakerfi.

Black Ops Cold War: Hin skemmtilegasta rússíbanareið
Ég var ekki búinn að spila Call of Duty: Black Ops - Cold War lengi þegar ég áttaði mig á því hvað ég hafði saknað góðrar COD einspilunar

Assassin's Creed Valhalla: Með betri leikjum seríunnar og löðrandi í íslensku
Assassins's Creed Valhalla er meðal skemmtilegri AC-leikja sem ég hef spilað. Sagan er áhugaverðari en hún hefur verið lengi og leikurinn lítur mjög vel út, þó hann hefði haft gott af frekari fínpússun.

Spider-Man: Miles Morales - Hinn nýi Spider-Man er jafnvel flottari og skemmtilegri en sá fyrri á PS5
Spider-Man: Miles Morales er þrusugóður leikur, þó hann sé í raun eingöngu viðbót við hinn feykigóða leik Spider-Man.

Watch Dogs Legion: Áhugaverður og í senn ekki
Það er margt við Watch Dogs Legion sem mér þykir merkilegt og áhugavert. Þar má helst nefna að hægt sé að spila leikinn sem hvaða íbúi London sem er og hvað það er gaman að valda usla í borginni.

FIFA 21: Þetta er alltaf gaman þótt gott geti orðið betra
FIFA 21 er kominn. Hann var spilaður og svo var rýnt í spilunina.

Star Wars: Squadrons - Draumórar uppfylltir en skortur á fjölbreytni
Star Wars: Squadrons er ekki dýpsti leikur sem hefur verið gerður, langt því frá, en hann er þrususkemmtilegur.

Mafia: Definitive Edition - Góð endurgerð sem glímir við tímann
Mafia: Definitive Edition er að mörgu leyti góð endurgerð á ágætisleik frá 2002. Þrátt fyrir góða grafíska uppfærslu stenst MDE að vissu leyti ekki staðla nútímans.

Marvel's Avengers: Fjölspilun þvælist fyrir í annars skemmtilegum leik
Ég hef skemmt mér merkilega vel yfir Marvel's Avengers, fyrir utan netspilunina sem er þó stór hluti þessa leiks.

Horizon Zero Dawn: Aloy er enn hörkukvendi
Horizon Zero Dawn er í rauninni miklu betri leikur á PC heldur en PS4, þó upplifunin skemmist vegna hökts og hægagangs.

Ghost of Tsushima: Frábært bardagakerfi stendur upp úr í frábærum leik
Ghost of Tsushima er mjög skemmtilegur leikur frá Sucker Punch sem byggir á frábæru bardagakerfi og geggjuðu andrúmslofti.

Last of Us 2: Ótrúlega lifandi söguheimur
Það er mjög erfitt að skrifa mikið um Last of Us 2, án þess að gefa of mikið upp varðandi sögu leiksins en ég mun gera mitt besta.

Command and Conquer Remastered: Nostalgían lifir enn, eins og Kane
Það eru 25 ár frá því að leikurinn Command & Conquer: Tiberian Dawn kom út og gerbreytti heiminum að eilífu.

Resident Evil 3: Skringilega stuttur en skemmtilegur
Starfsmenn Capcom eru enn að endurgera gamla og vinsæla Resident Evil leiki og nú er komið að leik númer þrjú.

Call of Duty: Warzone - Byggir á velgengni annarra leikja
Call of Duty: Warzone fær margt lánað frá öðrum svokölluðum Battle Royale leikjum. Þrátt fyrir það er leikurinn nokkuð einstakur og meðal þeirra bestu. Hann einkennist helst af einfaldleika og miklum hraða.

Nioh 2: Krefst tíma og geðheilsu
Í stuttu máli sagt, ef þú fílar Souls leikina og aðra svipaða leiki sem hafa litið dagsins ljós, eins og Sekiro, þá munt þú að öllum líkindum hafa gaman af Nioh 2.