Íþróttir
197 198 199 200 201 202 203 204 205 … 334 ›
Eiður við það að ganga í raðir Barcelona? Breska Sky-sjónvarpsstöðin greinir frá því nú fyrir skömmu að Barcelona sé nú aðeins hársbreidd frá því að landa Eiði Smára Guðjohnsen frá Chelsea. Því er haldið fram að Eiður sé búinn að samþykkja þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu. Kaupverðið er þó enn óljóst en sagt hlaupa á 7-10 milljónum punda. Sport 10.6.2006 15:25
Justin Henin-Hardenne sigraði Belgíska tenniskonan Justin Henin-Hardenne sigraði Svetlönu Kuznetsovu 6-4 og 6-4 í úrslitaleik opna franska meistaramótsins í tennis í dag og vann þar með sinn þriðja sigur á mótinu á síðustu fjórum árum. Leikurinn stóð yfir í eina klukkustund og 36 mínútur. Þetta var fimmti stóri titill Hardenne á ferlinum. Sport 10.6.2006 15:14
Eriksson rólegur Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, viðurkenndi að spilamennska liðsins hefði ekki verið sérlega glæsileg í dag, en sagði aðalatriðið hafa verið að sækja öll stigin. Sport 10.6.2006 15:00
Englendingar lögðu Paragvæ í bragðdaufum leik Englendingar hirtu öll stigin í opnunarleik sínum í B-riðli HM í dag þegar þeir lögðu Paragvæ 1-0. Markið kom strax á þriðju mínútu leiksins og var sjálfsmark. Enska liðið var ekki sérlega sannfærandi í leiknum, en náði takmarki sínu og hafði sigur. Sport 10.6.2006 14:52
Landsliðsþjálfarinn hættur Þjóðverjinn Otto Pfister er hættur sem landsliðsþjálfari Afríkuliðs Tógó og við starfi hans tekur fyrrum aðstoðarþjálfarinn Kodjovi Mawuena. Pfister, sem var elsti þjálfarinn á HM, 68 ára, lenti í miklum deilum við knattspyrnusambandið í Tógó út af bónusgreiðslum til leikmanna og sagði af sér í kjölfarið. Fyrsti leikur Tógó á HM fer fram 13. júní og er gegn Suður-Kóreu. Sport 10.6.2006 14:08
Fleiri spænsk lið inni í myndinni Breska blaðið Guardian greinir frá því í dag að babb sé komið í bátinn í samningaviðræðum Chelsea og Barcelona varðandi hugsanleg kaup á fyrirliða íslenska landsliðsins og fullyrðir að Valencia og annað ónefnt lið sé komið inn í myndina. Sport 10.6.2006 13:59
Englendingar yfir í hálfleik Englendingar hafa enn yfir 1-0 gegn Paragvæ þegar flautað hefur verið til leikhlés. Mark enska liðsins var sjálfsmark frá Carlos Gamarra, sem skallaði knöttinn í eigið net strax á þriðju mínútu leiksins eftir aukaspyrnu frá David Beckham. Englendingar hafa verið með undirtökin í leiknum, en lið Paragvæ var eilítið að vakna til lífsins undir lok hálfleiksins. Sport 10.6.2006 13:45
Englendingar komnir yfir Það tók Englendinga aðeins tæpar þrjár mínútur að opna markareikning sinn á HM. Enskir hafa náð 1-0 forystu gegn Paragvæ og var markið sjálfsmark. Varnarmaður Paragvæ varð fyrir því óláni að skalla aukaspyrnu David Beckham í eigið net og liðið varð fyrir öðru áfalli skömmu síðar þegar markvörður liðsins þurfti að fara meiddur af velli. Sport 10.6.2006 13:07
Alonso á ráspól á Silverstone Heimsmeistarinn Fernando Alonso á Renault verður á ráspól í breska kappakstrinum á Silverstone-brautinni á morgun. Alonso skaust naumlega fram úr Michael Schumacher og Kimi Raikkönen á lokasprettinum, en félagi Schumacher, Felipe Massa, náði fjórða besta tímanum. Sport 10.6.2006 13:01
England - Paragvæ að hefjast Nú er leikur Englendinga og Paragvæ að hefjast í beinni útsendingu á S'yn. Byrjunarliðin eru klár og fjölmargir stuðningsmenn enska liðsins á Íslandi eflaust búnir að koma sér vel fyrir við sjónvarpstækin. Sport 10.6.2006 12:55
Sanngjarn sigur Ekvador á Pólverjum Ekvador vann í kvöld sanngjarnan 2-0 sigur á Pólverjum í A-riðli HM. Carlos Tenorio skoraði fyrra mark Suður-Ameríkuliðsins á 24. mínútu og Agustin Delgado innsiglaði sigurinn á 80. mínútu. Tapið er pólska liðinu eflaust mikil vonbrigði, en liðið átti þó lítið meira skilið en það uppskar í leiknum í kvöld. Sport 9.6.2006 20:56
Tottenham hafnar 10 milljón punda tilboði í Carrick Heimildamaður BBC greindi frá því rétt í þessu að úrvalsdeildarliðið Tottenham hefði í dag hafnað 10 milljón punda kauptilboði Manchester United í enska landsliðsmanninn Michael Carrick. Svar Tottenham á að hafa verið á þá leið að United þyrfti að tvöfalda tilboð sitt svo mark væri takandi á því. Sport 9.6.2006 19:59
Ósáttur við varnarmistök sinna manna Alexandre Guimaraes var ekki sáttur við varnarvinnu sinna manna í dag eftir ósigur gegn heimamönnum Þjóðverjum. "Við náðum að jafna leikinn, en svo gerum við klaufamistök og það er alltaf erfitt að fara inn í hálfleikinn marki undir. Við vissum að Þjóðverjarnir yrðu erfiðir, en svo þegar þeir skora þriðja markið eftir skyndisókn, var vitað mál að róðurinn yrði þungur," sagði Guimaraes. Sport 9.6.2006 19:50
Ekvador yfir í hálfleik Ekvador hefur yfir 1-0 gegn Pólverjum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari leiknum í A-riðli HM. Það var Carlos Tenorio sem skoraði mark Ekvador á 24. mínútu með skalla. Sport 9.6.2006 19:48
Mjög ánægður með baráttuna Jurgen Klinsmann hrósaði leikmönnum sínum fyrir góðan baráttuanda í dag eftir að lið hans lagði Kosta Ríka 4-2 í opnunarleiknum. Hann hrósaði ekki síst markaskorurunum Philip Lahm og Miroslav Klose. Sport 9.6.2006 19:27
Ekvador komið yfir Ekvador er nokkuð óvænt komið í 1-0 gegn Pólverjum í leik liðanna í A-riðlinum á HM. Það var Carlos Tenorio sem skoraði markið með laglegum skalla á 24. mínútu. Sport 9.6.2006 19:25
Drogba hugsar málið eftir HM Nokkur orðrómur hefur verið á kreiki á Englandi undanfarna daga um að framherjinn Didier Drogba gæti verið á förum frá meisturum Chelsea. Drogba segist ekki vera að hugsa um að fara frá félaginu, en ætlar þó að nota tímann á HM til að hugsa málið. Sport 9.6.2006 18:45
Byrjunarlið Póllands og Ekvador klár Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin fyrir leik Pólverja og Ekvadora í A-riðli sem hefst klukkan 19:00 og er í beinni á Sýn. Leikurinn fer fram á hinum glæsilega Schalke Arena velli í Gelsenkirchen Sport 9.6.2006 18:32
Klose sá fimmti sem skorar á afmælisdaginn sinn Þjóðverjinn Miroslav Klose fagnaði 28 ára afmælisdegi sínum með því að skora tvö mörk í opnunarleik heimsmeistarakeppninnar gegn Kosta Ríka. Klose varð þar með fimmti leikmaðurinn í sögu HM til þess að skora á afmælisdaginn sinn og sá annar í röðinni sem skorar tvö mörk á fæðingardegi sínum. Sport 9.6.2006 17:49
Stórskotahríð Þjóðverja Þjóðverjar lögðu Kosta Ríka 4-2 í frábærum opnunarleik á HM í dag. Afmælisbarnið Miroslav Klose skoraði tvö mörk fyrir þýska liðið og þeir Philip Lahm og Torsten Frings skoruðu stórkostleg mörk með langskotum. Gamla brýnið Paulo Wanchope skoraði bæði mörk Kosta Ríka og ekki er hægt að segja annað en að mótið fari frábærlega af stað. Sport 9.6.2006 17:46
Wanchope minnkar muninn Paulo Wanchope er búinn að minnka muninn í 3-2 fyrir Kosta Ríka gegn Þjóðverjum í opnunarleiknum á HM, sem er búinn að vera hin besta skemmtun. Markið kom á 73. mínútu og greinilegt að Kosta Ríka-menn eru ekki búnir að segja sitt síðasta í leiknum. Sport 9.6.2006 17:34
Klose búinn að skora aftur Miroslav Klose var rétt í þessu að skora sitt annað mark fyrir Þjóðverja gegn Kosta Ríka og því er staðan orðin 3-1 fyrir heimamenn Þjóðverja. Markið kom á 61. mínútu og þess má til gamans geta að Klose á einmitt afmæli í dag. Sport 9.6.2006 17:21
Nadal og Federer mætast í úrslitum Spænski táningurinn Rafael Nadal vann í dag nokkuð auðveldan sigur á Ivan Ljubicic í undanúrslitum opna franska meistaramótsin, 6-4, 6-2 og 7-6 (9-7) og mætir því Roger Federer í úrslitaleik mótsins á sunnudag. Federer lagði David Nalbandian fyrr í dag og þeir félagar mætast því í úrslitaleik í annað sinn á stuttum tíma. Sport 9.6.2006 17:10
Þjóðverjar yfir í hálfleik Þjóðverjar hafa yfir 2-1 yfir í hálfleik gegn Kosta Ríka í opnunarleik heimsmeistaramótsins í knattspyrnu, sem hefur verið frábær skemmtun til þessa. Philip Lahm kom heimamönnum yfir með stórkostlegu marki eftir 6 mínútur, Paulo Wanchope jafnaði skömmu síðar og það var svo Miroslav Klose sem kom þýska liðinu yfir aftur eftir 18 mínútur. Leikurinn er sýndur í opinni dagskrá á Sýn. Sport 9.6.2006 16:43
Klose kemur Þjóðverjum yfir á ný Það er allt að verða vitlaust á Allianz Arena í Munchen, en eftir aðeins 18 mínútur er staðan orðin 2-1 fyrir Þjóðverja. Það var framherjinn Miroslav Klose sem kom Þjóðverjum yfir á ný eftir laglega sókn. Sport 9.6.2006 16:18
Stórkostlegt opnunarmark hjá Lahm Bakvörðurinn Philip Lahm hjá Þýskalandi skoraði opnunarmark HM með stórkostlegum hætti stax á 6. mínútu leiksins gegn Kosta Ríka nú áðan. Hann fékk boltan fyrir utan vítateig og þrumaði honum í stöng og inn. Það tók Paulo Wanchope hinsvegar aðeins 6 mínútur að jafna leikinn og því má segja að keppnin byrji með látum. Sport 9.6.2006 16:11
Heimsmeistarakeppnin er hafin Opnunarleikurinn á HM er nú hafinn. Það eru Þjóðverjar og Kosta Ríka sem leiða saman hesta sína og leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn, en þess ber að geta að opnunarleikurinn er sýndur í opinni dagskrá. Sport 9.6.2006 16:00
Eriksson er að gera mistök Framherjinn Jermain Defoe er nú kominn aftur heim til Lundúna eftir að hann ákvað að vera ekki áfram með enska landsliðinu í Þýskalandi þrátt fyrir boð þess efnis. Defoe þurfti að sætta sig við að vera settur út úr hópnum í stað Wayne Rooney og Martin Jol, sjóri Tottenham, segir Sven-Göran Eriksson sé að gera mistök með vali sínu á landsliðinu. Sport 9.6.2006 14:57
Ballack ekki í liði Þjóðverja Nú er búið að tilkynna byrjunarliðin fyrir opnunarleikinn á HM milli gestgjafanna Þjóðverja og Kosta Ríka. Michael Ballack er ekki í liði Þjóðverja vegna meiðsla. Sport 9.6.2006 15:28
Tottenham samþykkir tilboð í Kelly Úrvalsdeildarfélagið Tottenham hefur samþykkt kauptilboð Birmingham í írska bakvörðinn Stephen Kelly, en hann hefur alla tíð spilað með Lundúnaliðinu. Hann spilaði sinn fyrsta leik í efstu deild árið 2003 og 22 ára gamall. Kelly á þó enn eftir að semja um kaup og kjör við forráðamenn Birmingham. Sport 9.6.2006 14:52