Erlent
259 260 261 262 263 264 265 266 267 … 334 ›
Fordæmdi þá sem teiknuðu skopmyndir Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, fordæmdi í dag þá flokksmeðlimi Danska þjóðarflokksins sem teiknuðu skopmyndir af Múhameð spámanni. Erlent 8.10.2006 20:16
Leitað að fórnarlömbum flugslys Brasilísk stjórnvöld sendu í dag áttatíu hermenn til viðbótar til að taka þátt í leit á Amazon svæðinu að fórnarlömbum flugslys. Slysið er versta fluglslys í sögu landsins en 154 létu lífið þegar flugvéli hrapaði á svæðinu 29. september síðastliðinn. Erlent 8.10.2006 19:39
Múslimar reiðir Dönum Ný Múhameðsmyndadeila gæti verið í uppsiglingu eftir að fréttir bárust af því að ungliðar í Danska þjóðarflokknum hefðu haft spámanninn að háði og spotti. Formaður flokksins segir að um saklaust grín hafi verið að ræða en múslimar í Arabaheiminum hóta aðgerðum. Erlent 8.10.2006 18:52
Fjórir létust í sprengingu í Bagdad Fjórir létust og tveir særðust þegar sprengja sprakk við vegkant nálægt Tíkrit í Írak í dag. Þeir slösuðu vrou fluttir á Tæknisjúkrahúsið í Tíkrit. Sprengjan sprakk um hundrað og þrjátíu kílómetra norður af Bagdad. Erlent 8.10.2006 18:39
Litháar vísa grunuðum njósnara úr landi Litháísk stjórnvöld eru sögð hafa rekið hátt settan starfsmann rússneska sendiráðsins úr landi í dag vegna gruns um njósnir. Erlent 8.10.2006 17:57
Íranar vanir hótunum Utanríkisráðherra Írana sagði í dag Írana vana hótunum um refsiaðgerðir og að þær hefðu engin áhrif á áform þeirra um að auðga Úran. Erlent 8.10.2006 17:43
Forstjóri Airbus hótar uppsögn Christian Streiff, forstjóri evrópska flugvélaframleiðandans Airbus, hefur hótað að segja upp gefi stjórn móðurfélagsins honum ekki heimild til að endurskipuleggja í rekstri fyrirtækisins. Viðskipti erlent 8.10.2006 14:36
Harðir bardagar í Diwaniya Bandarískar og íraskar hersveitir felldu tuttugu liðsmenn úr herflokki sjíaklerksins Muqtada al-Sadr í hörðum bardaga í borginni Diwaniya í nótt. Erlent 8.10.2006 10:44
Abe kominn til Kína Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, er staddur í Kína í fyrstu opinberu heimsókn japansks leiðtoga þangað í fimm ár. Frá Kína mun Abe svo halda til Suður-Kóreu. Erlent 8.10.2006 10:42
Í óformlegum viðræðum við ETA Fulltrúar aðskilnaðarsamtaka Baska, ETA, og spænsku ríkisstjórnarinnar hafa átt í leynilegum könnunarviðræðum að undanförnu í Noregi. Erlent 8.10.2006 10:41
Kalvitis lýsir yfir sigri Ríkisstjórnin í Lettlandi hélt velli í þingkosningum sem fram fóru í landinu í gær, þeim fyrstu frá því ríkið gekk í Evrópusambandið fyrir rúmum tveimur árum. Erlent 8.10.2006 10:05
Ár liðið frá Kasmír-skjálftanum Þess er minnst víða um heim að ár er liðið frá jarðskjálftanum mikla í Kasmír sem 75.000 létu lífið í. Erlent 8.10.2006 10:03
Hreinsunareldur endurskoðaður Hreinsunareldurinn, staður á milli himnaríkis og helvítis, gæti brátt verið afnuminn af kaþólsku kirkjunni. Öldum saman hafa rómversk-kaþólikkar trúað því að sálir barna sem deyja áður en þau eru skírð fari í hreinsunareldinn. Erlent 7.10.2006 21:57
Fræg blaðakona myrt í Rússlandi Rússnesk blaðakona, sem var þekkt fyrir harða gagnrýni sína á stjórn Pútíns Rússlandsforseta, fannst myrt í gær. Anna Politkovskaja, 48 ára og tveggja barna móðir, fannst skotin til bana í lyftu fjölbýlishúss í Moskvu með byssu og fjögur skothylki við hlið sér. Lögregla telur að morðið tengist vinnu hennar. Erlent 7.10.2006 21:57
Ríkisstjórn hélt líklegast velli Lettar gengu að kjörborði í gær, í fyrsta sinn síðan þjóðin gekk í Evrópusambandið fyrir um tveimur árum. Þrátt fyrir að stjórnarandstöðuflokkur hafi naumlega verið með flest atkvæði samkvæmt útgönguspám er búist við að ríkisstjórn landsins haldi velli í kosningunum, en hún er undir forystu þjóðarflokksins. Erlent 7.10.2006 21:57
Tugir létu lífið í hörðum árásum Tugir féllu í átökum Tamíl-tígra og stjórnarhersins á Srí Lanka í gær. Herþotur skutu sprengjum á uppreisnarmenn í norður- og suðurhluta landsins. Uppreisnarmenn höfðu þá nýverið sent fulltrúa norskra stjórnvalda, Jon Hanssen-Bauer, bréf, en ekki er vitað hvað það inniheldur. Erlent 7.10.2006 21:57
Nýtur trausts þingmeirihluta Þjóðþingið í Ungverjalandi hefur samþykkt traustsyfirlýsingu á ríkisstjórn Ferencs Gyurscany forsætisráðherra, sem jafnframt bað þingið afsökunar á að hafa ekki tekist af fullri alvöru á við efnahagserfiðleika landsins fyrir þingkosningarnar í apríl síðastliðnum. Erlent 7.10.2006 21:57
Seinni meðgöngur erfiðari Konur sem þyngjast um of á meðgöngu og eiga erfitt með að tapa aukakílóunum aftur, geta átt von á fjölmörgum fylgikvillum og vandamálum í síðari meðgöngum, segir í nýrri sænskri rannsókn sem birt var í læknatímaritinu Lancet sem fréttavefur BBC fjallar um. Erlent 7.10.2006 21:57
Kyssti nítján baneitraðar gleraugnaslöngur Taílendingurinn Khum Chaibuddee freistaði þess í dag að komast í Heimsmetabók Guinness fyrir óvenjulegt en lífshættulegt uppátæki (LUM). Hann gerði sér lítið fyrir og kyssti nítján baneitraðar gleraugnaslöngur í beinni útsendingu frá Pattaya-ströndinni í Taílandi. Erlent 7.10.2006 17:52
Politkovskaya ráðin af dögum Rússneska blaðakonan Anna Politkovskaya var skotin til bana fyrir utan heimili sitt fyrr í dag. Erlent 7.10.2006 14:34
25 sjómanna saknað í Japan Sextán skipverja á japönskum fiskibát er saknað eftir að hann sökk í ofviðri norðaustur af landinu. Erlent 7.10.2006 12:28
Blaðamenn drepnir í Afganistan Tveir þýskir blaðamenn létu lífið í skotárás í norðurhluta Afganistan fyrr í dag. Erlent 7.10.2006 13:17
Mannfall á Srí Lanka Á sjötta tug Tamíl-tígra hafa fallið í bardögum við stjórnarherinn á norðan- og austanverðri Srí Lanka undanfarinn sólarhring. Erlent 7.10.2006 12:25
Tóku saklausan borgara af lífi Bandarískur herlæknir vitnaði fyrir herdómstól í gær hvernig landgönguliðar í herdeild hans tóku íraskan borgara af lífi. Erlent 7.10.2006 12:22
Spennan magnast á Kóreuskaga Suðurkóreski herinn skaut viðvörunarskotum að hermönnum frá Norður-Kóreu sem fóru yfir landamærin á milli ríkjanna í morgun. Búist er við að Norður-Kóreumenn sprengi kjarnorkusprengju í tilraunaskyni á næstu dögum. Erlent 7.10.2006 12:18
Karlar sofa betur einir Karlar sem sofa einir í rúmi eru hressari á morgnanna og heilastarfsemi þeirra er öflugri en þeirra sem deila rúmi með maka. Erlent 7.10.2006 10:49
Sjálfsmorðsárás í Tal Afar Átta létust og sex særðust í bílsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í morgun. Árásin var gerð á eftirlitsstöð lögreglu en engu að síður voru fjórir óbreyttir borgarar í hópi þeirra sem dóu. Erlent 7.10.2006 10:47
Líkir aðgerðum við þjóðernishreinsanir Gela Bezhuasvhili, utanríkisráðherra Georgíu, segir að framganga Rússa undanfarna daga gegn Georgíu jaðri við þjóðernishreinsanir. Erlent 7.10.2006 10:42
Repúblikanar missa fylgi vegna hneykslis Demókratar notfæra sér óspart hneykslismál Marks Foley, sem sagði af sér þingmennsku fyrir viku. Bush forseti lýsir stuðningi sínum við Hastert, forseta fulltrúadeildar þingsins, sem demókratar vilja að segi af sér. Erlent 6.10.2006 21:31
Látnir menn fá ekki að fljúga Á löngum nafnalista, sem notaður er á flugvöllum í Bandaríkjunum til þess að stöðva grunaða hryðjuverkamenn, er að finna nöfn fjórtán af flugræningjunum nítján sem létu lífið í árásunum 11. september 2001. Þar er einnig að finna nöfnin Saddam Hussein og Osama bin Laden. Erlent 6.10.2006 21:31