Lög og regla

Fréttamynd

Vörubíll valt á hliðina í Ölfusi

Bílstjóri meiddist þegar vörubíll valt á hliðina við Nátthaga í Ölfusi í morgun. Verið var að sturta mold af bílnum þegar pallurinn seig á hliðina og bíllinni með. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum í hálsi og baki og eftir skoðun á heilsugæslustöðinni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til nánari rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Gill sleppt á laugardag

Hæstiréttur fjallar ekki um kæru Pauls Gills vegna gæsluvarðhalds sem hann var úrskurðaður í því að honum var sleppt á laugardag.

Innlent
Fréttamynd

Fimm bíla árekstur

Fimm bíla árekstur varð um hálffjögurleytið í gær skammt sunnan við Smáralind, norðan við gatnamót Arnarnesvegar og Reykjanesbrautar

Innlent
Fréttamynd

Skemmdir eftir árekstur á brú

Tveir bílar eru mikið skemmdir eftir að hafa rekist saman síðdegis á sunnudag á einbreiðri brú yfir Hoffellsá. Ökumenn og farþegar sluppu hins vegar við meiðsli, að sögn lögreglu á Höfn í Hornafirði. Í öðrum bílnum voru hjón með tvö börn á ferðalagi, en í hinum var ein kona.

Innlent
Fréttamynd

Sektaður fyrir sterasmygl

32 ára gamall maður var síðasta fimmtudag dæmdur til greiðslu 300.000 króna sektar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til að smygla hingað til lands ólöglegum sterum frá Danmörku árið 2003. Þá var manninum gert að greiða sakarkostnað upp á rúmar 800.000 krónur.

Innlent
Fréttamynd

Gill segist ekki atvinnumótmælandi

Paul Gill, mótmælandinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald eftir að hafa slett skyri á Nordica-hóteli, neitar því að hann sé atvinnumótmælandi. Hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi á laugardaginn og er í farbanni til 1. júlí.

Innlent
Fréttamynd

Stálu bíl og kveiktu í honum

Þrjú ungmenni, tveir 17 ára gamlir piltar og 15 ára gömul stúlka, voru hlaupin uppi af lögreglu í Heiðmörk í gærmorgun. Þau voru grunuð um að hafa skemmt fjóra til fimm bíla í Seláshverfi í Reykjavík um nóttina, ásamt því að hafa stolið einum bíl sem þau óku upp í Heiðmörk þar sem þau kveiktu í honum.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn á Baugi í fullum gangi

Rannsókn Ríkislögreglustjóra á Baugi er í fullum gangi þessa dagana. Jón Gerald Sullenberger, sem kærði Baug á sínum tíma, var yfirheyrður vegna málsins í dag.

Innlent
Fréttamynd

Þrettán látnir í ár

Banaslys varð þegar reykvískur karlmaður á fimmtugsaldri keyrði á steinstólpa brúar þar sem Reykjanesbraut liggur undir Miklubraut í gærmorgun. Var hann að keyra suður eftir Reykjanesbrautinni.

Innlent
Fréttamynd

35 teknir fyrir hraðakstur

Þrjátíu og fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi og nótt. Þar af voru þrjátíu og þrír teknir innanbæjar.

Innlent
Fréttamynd

Ók á steinstólpa við Elliðaárbrú

Karlmaður um fertugt slasaðist alvarlega þegar bíll hans lenti á steinstólpa við Elliðaárbrúna í Reykjavík í morgun. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Bíll hans skemmdist mikið og þurfti að klippa manninn úr bílnum.

Innlent
Fréttamynd

Slagsmál eftir dansleik á Súðavík

Lögreglan á Ísafirði þurfti tvívegis að stöðva slagsmál eftir dansleik sem haldinn var á Súðavík í gærkvöld. Mikill fjöldi tók þátt í slagsmálum sem brutust fyrst út klukkutíma eftir dansleikinn og þegar lögreglan hélt að hún hefði róað lýðinn, hlupu menn aftur saman og héldu fjörinu áfram.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í Hafnarfirði

Eldur kviknaði í bátaskýli við Ásbraut í Hafnarfirði laust fyrir klukkan hálf átta í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Maðurinn látinn

Ökumaður bílsins sem lenti á steinstólpa við Reykjanesbraut í morgun er látinn. Bifreiðin lenti á stólpa þar sem Reykjanesbraut liggur undir brú á Miklubraut. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Hann var rúmlega fertugur að aldri, búsettur í Reykjavík. Tildrög slyssins eru óljós.

Innlent
Fréttamynd

Róleg nótt í borginni

Rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og segjast menn þar á bæ vera stoltir af því að aðeins 92 bókanir hafi verið gerðar. Nóttin gekk þó ekki alveg stórslysalaust fyrir sig en fjórar minniháttar líkamsárásir voru gerðar í miðbænum og voru fjórir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. Öllu meira var að gera hjá lögreglunni á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Róleg þjóðhátíð

17. júní var tiltölulega rólegur fyrir lögregluna í Reykjavík. Óvenjulítið var um skemmtanahald og þurfti lögreglan ekki að hafa nein afskipti af ölvun unglinga.

Innlent
Fréttamynd

Ólæti á Akureyri

Fangageymslur voru fullar á Akureyri aðfaranótt laugardags. Mikill hasar var í bænum, töluvert um hópamyndanir og slagsmál. Nóttin var viðburðarík hjá lögreglunni, ölvun var veruleg en þó voru engin stórmál á ferð.

Innlent
Fréttamynd

Vopnað rán í Lyf og heilsu

Vopnað ráð var framið í lyfjaversluninni Lyf og heilsa við Háaleitisbraut í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld. Tveir menn á tvítugsaldri ógnuðu starfsfólki með sprautunálum og komust á brott með tíu pakka af rítalíni og öðrum morfínskyldum efnum.

Innlent
Fréttamynd

Lyfjum stolið í Austurveri

Vopnað rán var framið í Lyfjum og heilsu í Austurveri í fyrrakvöld. Tveir menn gengu inn í apótekið og otuðu sprautunálum að starfsfólki.

Innlent
Fréttamynd

Hraðakstur vandamál

Áberandi mikið var um hraðakstur á þjóðvegum landsins í gær og fyrradag og höfðu flest lögregluembætti við þjóðveginn nóg að gera við eftirlit.

Innlent
Fréttamynd

Ökklabrotnaði í Rauðuskörðum

Björgunarsveitir frá Ólafsvík og Dalvík voru kallaðar út í dag til aðstoðar vegna göngufólks sem hafði lent í vandræðum í Rauðuskörðum Ytri Árdal. Kona í hópnum datt og öklabrotnað. Tólf björgunarsveitarmenn héldu fótgangandi á staðinn á sjötta tímanum í kvöld og var reiknað með að þeir kæmu á tíunda tímanum í kvöld með konuna í sjúkrakörfu, niður að sjúkrabíl sem flytur hana til Akureyrar.

Innlent
Fréttamynd

Tuttugu teknir fyrir hraðakstur

Tuttugu voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Öxnadal milli klukkan sjö í gærkvöld og tvö í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á 164 kílómetra hraða.

Innlent
Fréttamynd

Parið úrskurðað í gæsluvarðhald

Erlent par, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, var seint í gærkvöldi úrskurðað í gæsluvarðhald fram á fimmtudag. Nauðsynlegt þótti að tryggja að fólkið færi ekki úr landi og var parið því úrskurðað í gæsluvarðhald á forsendum rannsóknarhagsmuna.

Innlent
Fréttamynd

Endaði sár á spítala

Eftirför lögreglunnar á Selfossi vegna ökumanns sem sinnti í engu stöðvunarmerkjum endaði með því að viðkomandi ók bíl sínum útaf og þurfti að flytja hann á slysadeild.

Innlent
Fréttamynd

Þrír mánuðir fyrir líkamsárás

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag rúmlega þrítugan karlmann í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa í apríl árið 2001 slegið annan mann í andlitið með glasi með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á neðri vör og fimm framtennur brotnuðu. Ákærði neitaði sök en sannað þótti í samræmi við framburð vitna að hann hefði hent glasinu framan í manninn.

Innlent
Fréttamynd

Sprengjugabb í Íslandsbanka

Lögregla var kölluð í útibú Íslandsbanka við Lækjargötu í Reykjavík skömmu fyrir hádegi í gær vegna miða sem starfsmenn bankans töldu vera sprengjuhótun. Reyndist um gabb eða misheppnað spaug að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Dómur héraðsdóms staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjaness frá janúar síðastliðnum um tæplega sjö ára fangelsi til handa Berki Birgissyni sem slasaði mann alvarlega þegar hann réðst á hann á veitingastaðnum A. Hansen í Hafnarfirði vopnaður öxi.

Innlent
Fréttamynd

Töldu sprengjuhótun felast í miða

Lögreglan var kvödd að útibúi Íslandsbanka við Lækjargötu fyrir hádegið vegna grunsamlegs miða. Samkvæmt lögreglu töldu starfsmenn bankans sig geta lesið sprengjuhótun út úr þeim skilaboðum sem á honum voru og var lögregla því kölluð til. Talið er að börn hafi staðið að baki gabbinu en miðinn sem fjaðrafokinu olli er í vörslu lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir að taka við þýfi

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag þrítugan karlmann í sjö mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa þann 5. janúar síðastliðinn tekið við þremur fartölvum að verðmæti um 700 þúsund krónur úr höndum bróður síns þrátt fyrir að honum hafi mátt vera ljóst að þeim hefði verið stolið úr versluninni Office One um nóttina.

Innlent