Lög og regla

Fréttamynd

Flugþjónustan hafi brotið lög

Flugþjónustan á Keflavíkurflugvelli braut gegn samkeppnislögum þegar hún gerði samning við flugfélagið LTU/International Airways. Þetta er samkvæmt úrskurði Samkeppnisstofnunar sem var birtur í morgun. Í úrskurðarorði segir að Flugþjónustunni sé óheimilt að gera eða framkvæma samninga um flugafgreiðslu vegna farþegaflugs á flugvellinunum sem feli í sér einkakaup á þeirri þjónstu félagsins og selja þá þjónustu á verði sem ekki stendur undir föstum og breytilegum kostnaði við hverja afgreiðslu.

Innlent
Fréttamynd

Stöðvaður með þýfi í Lækjargötu

Lögreglan í Reykjavík handtók ökumann bifreiðar í nótt eftir að ýmsir hlutir sem talið er að ekki hafi verið fengnir á löglegan hátt fundust í bíl hans. Maðurinn var stöðvaður við hefðbundið eftirlit klukkan hálftvö í Lækjargötu. Hann virtist vera undir áhrifum og í bílnum var ýmislegt, tölvubúnaður og fleira, sem grunur leikur á að sé þýfi.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald staðfest

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald yfir manni sem gefin er að sök aðild á smygli á rúmum 7,5 kílóum af amfetamíni með Dettifossi frá Þýskalandi til Íslands síðasta sumar.

Innlent
Fréttamynd

Fangar fara einir í flug

Fangar eru oftast sendir fylgdarlausir í flugi milli Reykjavíkur og Akureyrar. Fangelsisyfirvöld meta í hverju tilviki hvort fylgdarmaður þyki nauðsynlegur. Ef ekki þá er fanganum fylgt á flugvöllinn og miði keyptur handa honum. Tekið er á móti honum á flugvellinum við lendingu.

Innlent
Fréttamynd

Nokkuð lífleg nótt

Þó nokkrir bíða nú skýrslutöku hjá lögreglunni í Reykjavík eftir atburði næturinnar. Í tvígang stöðvaði lögregla bíla, annan á Suðurlandsvegi og hinn á Sæbraut, þar sem undir stýri voru réttindalausir ökumenn með fíkniefni í fórum sínum.

Innlent
Fréttamynd

Út af geðdeild og rændi bílum

Ungur karlmaður, nýkominn af geðdeild Landsspítalans, stofnaði lífi vegfarenda í hættu um hádegisbil í gær. Hann rændi tveimur bílum með því að ógna ökumönnum þeirra.

Innlent
Fréttamynd

Geðsjúkur maður rændi bifreiðum

Tvítugur maður rændi tveimur bifreiðum með skömmu millibili í dag með því að ógna ökumönnum og draga þá út. Hann var útskrifaður af geðdeild um hádegi í dag eftir að hafa verið fluttur þangað með alvarlegt þunglyndi og ranghugmyndir í gærkvöld. Litlu mátti muna að stórslys yrði.

Innlent
Fréttamynd

Krufning bendir til drukknunar

Réttarkrufning á líki Brasilíumannsins Dantas, sem leitað var í síðasta mánuði og fannst á skeri undan Stokkseyri fyrir viku, bendir til að hann hafi drukknað. Lögreglan telur ekki ástæðu til frekari rannsókna á orsökum andláts hans.

Innlent
Fréttamynd

Innbrotum og þjófnuðum fækkar

Innbrotum, þjófnuðum og umferðarslysum í umdæmi Hafnarfjarðarlögreglunnar hefur fækkað á fyrstu fjórum mánuðum ársins samanborið við sama tímabil áranna 2000 til 2004.

Innlent
Fréttamynd

Með 12 lítra af landa og fíkniefni

Tveir piltar, innan við tvítugt, voru gripnir af lögreglu með tólf lítra af landa og fíkniefni á Laugaveginum um klukkan þrjú í nótt. Þessa stundina er verið að yfirheyra mennina en lögregla komst á snoðir um landann og fíkniefnin í bifreið þeirra við hefðbundið eftirlit.

Innlent
Fréttamynd

Lést eftir aðsvif undir stýri

Karlmaður á sjötugsaldri fékk aðsvif undir stýri á Breiðholtsbraut í morgun, missti stjórn á bílnum og ók út af veginum. Hann var úrskurðaður látinn skömmu síðar á slysadeild Landspítalans í Fossvogi.

Innlent
Fréttamynd

Tekinn á 160

Bifhjólamaður gerði tilraun til að stinga lögregluna af þegar hún reyndi að stöðva hann þar sem hann ók á 118 kílómetra hraða eftir Reykjanesbrautinni. Ók hann á meira en 160 kílometra hraða þegar eltingaleikurinn stóð sem hæst.

Innlent
Fréttamynd

Veittu vélhjólamanni eftirför

Lögreglan í Hafnarfirði veitti ökumanni vélhjóls eftirför í nótt eftir að hann sinnti ekki stöðvunarmerkjum hennar en hann ók á 118 kílómetra hraða á Reykjanesbraut. Reyndar hvarf hann úr augsýn um tíma og er talið að hann hafi þá ekið á yfir 160 kílómetra hraða.

Innlent
Fréttamynd

Ástþór sýknaður af eignaspjöllum

Ástþór Magnússon, sem þekktastur er sem forsetaframbjóðandi, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna ákæru um eignaspjöll. Honum var gefið að sök að hafa á síðasta ári tekið myndavél úr höndum annars gests á skemmtistaðnum Glaumbar, slegið henni nokkrum sinnum í barborð og síðan hent henni frá sér þannig að hún týndist.

Innlent
Fréttamynd

Ekið á stúlku á Akureyri

Ekið var á 10 ára stúlku á Hörgárbraut á Akureyri um fjögurleytið í dag en slysið átti sér stað þegar stúlkan var að fara yfir gangbraut. Meiðsl stúlkunnar eru talin minni háttar en hún var þó flutt á slysadeild til skoðunar. Lögreglan á Akureyri segir að stúlkan muni að öllum líkindum fara heim að skoðun lokinni.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla göbbuð að höfn í Gróf

Lögreglan í Keflavík fékk hringingu rétt fyrir hálfþrjú í nótt og kvaðst sá sem hringdi vera við smábátahöfnina í Gróf og ætlaði hann að henda sér í sjóinn. Var lögreglan send á staðinn en þetta reyndist þó vera gabb og var sá sem hringdi staddur á öldurhúsi í Reykjavík að skemmta sér. Ekki er vitað hver hringdi en lögreglan segir málið vera í rannsókn.

Innlent
Fréttamynd

Rengir ekki Hróbjart

"Það er veigamikill munur hvað löggjöfina varðar á tóbaki annars vegar og áfengis hins vegar," segir Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengis og tóbaksverslunar ríkisins.

Innlent
Fréttamynd

Harður árekstur á Akureyri

Harður árekstur varð á gatnamótum Gránufélagsgötu og Glerárgötu á Akureyri laust eftir hádegi í gær. Þar rákust saman jeppabifreið og fólksbíll með þeim afleiðingum að ökumaður fólksbílsins slasaðist nokkuð. Var hann fluttur til aðhlynningar á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri en slapp þó við alvarleg meiðsli.

Innlent
Fréttamynd

Gripnir fyrir akstur utan vega

Þrír mótorhjólamenn voru gripnir fyrir akstur utan vega á norðanverðu Snæfellsnesi í gærkvöldi. Lögreglumenn á eftirlitsferð veittu athygli mannlausri bifreið með eftirvagn fyrir mótorhjól við Grákúlu, sem er eldgígur skammt frá Stykkishólmi. Frá bifreiðinni lágu hjólför sem lögreglumennirnir röktu meðal annars yfir mosavaxna hraunmöl.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í fiskikörum á Stokkseyri

Lögreglunni á Selfossi barst tilkynning um eld í þremur fiskikörum við frystihúsið á Stokkseyri rétt eftir klukkan tvö í nótt. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða. Samkvæmt lögreglunni á Selfossi urðu litlar skemmdir á frystihúsinu sjálfu en körin eru þó talin ónýt. Brunavarnir Árnessýslu komu á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn.

Innlent
Fréttamynd

Myndavél rænt af leikskóla

Lögreglunni í Reykjavík barst tilkynning um hádegi í dag um að brotist hefði verið inn í leikskólann Hólaborg í Breiðholti og þaðan stolið stafrænni myndavél. Lögreglan segir að engin ummerki hafi verið um að brotist hafi verið inn í leikskólann og ekki ólíklegt að einhver hafi gleymt að læsa eftir á eftir sér í gær. Lögreglan biður þá sem urðu varir við eitthvað grunsamlegt í kringum leikskólann í morgun að hafa samband.

Innlent
Fréttamynd

Banaslys á Breiðholtsbraut

Ung kona beið bana í bílslysi á Breiðholtsbraut í morgun. Vegfarandi tilkynnti slysið til lögreglu klukkan níu í morgun en ekki er vitað nákvæmlega hvenær það átti sér stað. Konan, sem er á tvítugsaldri, ók bíl sínum í norðaustur eftir Breiðholtsbraut. Skammt frá Norðlingaholti virðist sem hún hafi ekið á vegrið og farið eftir því öfugum megin og bíllinn síðan oltið fram af veginum, en nokkur halli er þar niður þar sem reiðgöng eru undir veginum á þessum stað.

Innlent
Fréttamynd

Lagði hald á 4 tonn af marijúana

Fíkniefnalögreglan í Mexíkó lagði á mánudaginn hald á meira en fjögur tonn af marijúana sem falin voru í stórum tankbíl sem var á leiðinni til Bandaríkjanna. Efnið fannst eftir að lögregla hafði stöðvað bílinn vegna þess að afturljósin á honum voru biluð. Við nánari athugun kom í ljós að inni í tanknum hafði verið komið fyrir átta hundruð pökkum með marijúana.

Innlent
Fréttamynd

Vissi ekki af fíkniefnunum

Skipverjarnir á Hauki ÍS, sem handteknir voru í Þýskalandi í byrjun janúar eftir að sjö kíló af fíkniefnum fundust í farangri þeirra, hafa verið látnir lausir. Annar mannanna segist ekki hafa vitað af fíkniefnunum um borð í skipinu.

Innlent
Fréttamynd

Slapp ómeiddur frá veltu og eldi

Ökumaður slapp ómeiddur þegar vörubíll hans valt út af veginum upp í Kárahnjúka í gær og eldur kviknaði í bílnum. Hann var að mæta öðrum stórum bíl þegar vegkanturinn gaf sig undan þunganum. Vörubíllinn er talinn ónýtur, bæði vegna skemmda við veltuna og vegna eldsins. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem eldur kviknar í bíl við veltu en fyrra tilvikið var í Norðurárdal í Borgarfirði.

Innlent
Fréttamynd

Bannað að brenna sinu

Frá og með 1. maí var bannað að brenna sinu en sýslumenn geta veitt bændum undanþágu frá banninu fram til 15. maí, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Innlent
Fréttamynd

Óttast um lítinn fiskibát í gær

Óttast var að lítill fiskibátur hefði sokkið suður af Krísuvík á ellefta tímanum í gærkvöldi þegar hann hvarf út af sjálfvirka tilkynningarskyldukerfinu og svaraði ekki kalli. Búið var að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir þegar bátsverjinn svaraði loks kalli og tilkynnti að rafmagnsbilun hefði orðið um borð þannig að öll fjarskiptatæki urðu óvirk. Þurfti hann engrar aðstoðar við og voru þá aðgerðir blásnar af.

Innlent
Fréttamynd

Greiddi 560 milljónir í sekt

OLÍS greiddi ríkissjóði 560 milljóna króna sekt fyrir ólögmætt verðsamráð olíufélaganna. Þar með hafa stóru olíufélögin þrjú greitt samtals einn og hálfan milljarð í sektir.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sóttir til saka vegna klúðurs

Klúður þýskra yfirvalda og ónógur rökstuðningur íslensku lögreglunnar veldur því að tveir Íslendingar sem handteknir voru vegna smygls á miklu magni af marijúana og kókaíni verða ekki sóttir til saka.

Innlent